„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ógeðslegasta frumvarp sem lagt hefur verið fram – Íslendingar vilja bjóða fólk á flótta velkomið“

„Ógeðslegasta frumvarp sem lagt hefur verið fram – Íslendingar vilja bjóða fólk á flótta velkomið“
Aðal­heiður Ámunda­dóttir

Lög- og blaða­mað­ur­inn Aðal­heiður Ámunda­dóttir kann að munda penn­ann og segir í pistli að „þótt ras­istar leyn­ist í flestum íslenskum stjórn­mála­flokkum hafa þjóð­ern­is­sinnar og flokkar sem hafa útlend­inga­andúð og ras­isma sem sitt helsta stefnu­mál aldrei unnið kosn­inga­sigra hér, líkt og í sumum nágranna­ríkjum okkar.“

Hún bætir við að „mik­ill meiri­hluti Íslend­inga vill bjóða það fólk vel­komið sem leitar skjóls hjá okkur og lang­flestum okkar er alveg sama hvort ein­hver önnur Schengen-þjóð hafi áður lofað skjóli. Ef fólk vill búa hér hjá okkur frekar en í Grikk­landi, höfum við bæði nóg pláss og næga vinnu.“

Katrín Jak­obs­dóttir er for­sæt­is­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn VG, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Að mati hennar er þó hængur á því „svo virð­ist þó sem báðar hendur rík­is­stjórn­ar­innar séu bundnar. Lögin standa í vegi fyrir gest­risni hennar. Útlend­inga­andúðin er í lög­unum og þeim þarf því miður að fram­fylgja. Þetta er kunn­ug­legt stef; í hvert skipti sem íslenska þjóðin rís upp gegn illsku í garð flótta­fólks beita ráð­herrar lög­gjöf­inni sem málsvörn.“

Aðal­heiður vekur máls á því að „af þessum sökum hefur end­ur­skoðun útlend­inga­laga staðið yfir næstum sleitu­laust frá arab­íska vor­inu þegar mik­ill straumur flótta­fólks leit­aði til Evrópu í leit að skjóli. Það kemur því ekki á óvart að nú kalli ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar eftir heild­ar­um­ræðu um útlend­inga­lög­gjöf­ina. Við erum flest sam­mála um að eyða þurfi útlend­inga­andúð úr lögum. En það er með hat­rið eins og margt sem sprottið er af illum rótum. Því er komið fyrir milli lína og undir rós. Hverju skrefi í átt til meiri mann­úðar fylgir líka aukin illska. Þrátt fyrir að útlend­inga­andúðin nái aldrei kjöri ræður hún því að gest­risnin fær aldrei að vera mark­mið lag­anna heldur skil­virkni.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra

Hún segir að „í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra sem nú er til með­ferðar á Alþingi er lagt til að allar synj­anir Útlend­inga­stofn­unar kær­ist sjálf­krafa til kæru­nefndar um útlend­inga­mál. Lítur vel út sam­kvæmt orð­anna hljóðan en þýðir í raun að umsækj­and­inn hefur mun styttri tíma til að und­ir­búa varnir sínar gegn brott­vísun. Þrengja á að mögu­leikum fólks til fjöl­skyldu­sam­ein­ingar og heim­ila Útlend­inga­stofnun að skerða eða fella niður rétt hæl­is­leit­enda til grunn­þjón­ustu á borð við fæði, hús­næði og nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu þegar ákvörðun um brott­vísun liggur fyrir.“

Aðal­heiður bætir þessu við í lokin:

„Það er ekki að ástæðu­lausu að þetta frum­varp hefur verið kallað ógeðs­leg­asta frum­varp sem lagt hefur verið fram. Svona er afrakstur heild­ar­um­ræðu um útlend­inga­lög­gjöf­ina. Það er trún­að­ar­brestur í þessum mála­flokki sem er til­kom­inn af því að venju­legir Íslend­ingar vilja bjóða fólk á flótta vel­komið en stjórn­völd vilja reka það á dyr með skil­virkum hætti. Í því liggur ágrein­ing­ur­inn en ekki í laga­tækni­legum útfærslum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins