„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eyrnasuðssjúklingar: Eiga hættu á að fá þunglyndi og ekki nægan djúpsvefn

Eyrnasuðssjúklingar: Eiga hættu á að fá þunglyndi og ekki nægan djúpsvefn

Talið er að í kring um 15 pró­sent alls mann­kyns þjá­ist af eyrna­suði. Fólk sem þjá­ist af eyrna­suði (tinnitus) er talið fá minni djúpsvefn að með­al­tali. Nú hafa vís­inda­menn við Oxford-háskóla í Englandi gert upp­götvun sem mögu­lega hjálpar við að greina orsak­irnar og þar með skapa betri grund­völl fyrir með­höndlun sem virkar. Linus Milinski, Fernando R. Nodal, Vla­dyslav V. Vyazovskiy og Victoria M. Bajo eru höf­undar greinar í nýju hefti rits­ins Brain Communications, þar sem nið­ur­stöðum rann­sókna er lýst sem sýna fram á tengsl lít­ils djúpsvefns og eyrna­suðs.

Í þekktri rann­sókn frá árinu 2015, sem fjallað var um í viku­rit­inu Time, var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fólk sem varð fyrir ítrek­uðu rofi svefns yfir nótt­ina, og fékk þ.a.l. ekki nægan djúpsvefn, ættu miklu frekar á hættu að fá þung­lyndi, hafa minna streitu­þoli o.fl. en fólk sem svaf álíka lítið í heild­ina en fékk betur sam­hang­andi svefn (og meiri djúpsvefn).

Getur takmarkað lífsgæði verulega

Suð getur verið fyrsta merki þess heyrn sé að dofna, en þó getur suð einnig verið til staðar hjá fólki með eðli­lega heyrn. Suð er sjaldan alvar­legt ein­kenni. Stöðugt eyrna­suð getur haft trufl­andi áhrif og tak­markað lífs­gæði veru­lega en það er mjög ein­stak­lings­bundið hversu mikil áhrif suð hefur á ein­stak­linga. Greina þarf orsök suðs­ins og því er öllum sem finna fyrir eyrna­suði ráð­lagt að leita til læknis.

Jafnvel þótt til séu með­ferðir við eyrna­suði sem hjálpa til við að slá á ein­kennin hjá mörgum, þá er ekki til nein þekkt lækn­ing við þessum hvim­leiða kvilla. Orsakir eyrna­suðs eru líka að ýmsu leyti enn ókunnar.

Verja minni tíma í djúpsvefni

Tengsl djúpsvefns og eyrna­suðs kann því að reyn­ast vís­inda­mönnum gagn­leg vís­bend­ing í leit­inni að með­ferð við kvill­anum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Hjarta­heilla er hljóð sem ein­stak­ling­ur­inn sjálfur heyrir en ekki aðrir í kringum hann kallað eyrna­suð. Hljóðið getur verið í öðru eða báðum eyrum en í sumum til­vikum inni í höfð­inu. Það getur verið stöðugt eða komið og farið.

Þegar við sofum göngum við í gegnum nokkur stig svefns, með ólík stig virkni í heil­anum og ólíkum heila­bylgjum. Djúpsvefn ein­kenn­ist af hægum heila­bylgjum og er talið að djúpsvefn­inn sé mik­il­vægastur til að okkur finn­ist við vera útsofin og vel hvíld. Vöðvarnir slappa vel af, það hægist á hjartslætt­inum og púls­inn dettur niður að lægstu mörkum. Þeir sem fá of lít­inn djúpsvefn finna til þreytu og þess að vera illa upp­lagðir. Djúpsvefn er líka mik­il­vægur fyrir minnið.

Kenning höf­und­anna er sú að hlutar heil­ans í eyrna­suðs­sjúk­lingum er ofvirkur á meðan aðrir hlutar heil­ans sofa; þessu svipar að hluta til þess sem gildir um svefn­gengla. Þetta kann að hjálpa til að finna skýr­ingar á því hvers vegna fólk sem þjá­ist af eyrna­suði upp­lifir meiri svefn­trufl­anir en aðrir, og eyða minni tíma í djúpsvefni en aðrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins