„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helgi Áss, fyrrverandi heimsmeistari, þolir ekki að tapa: Sjálfstæðisflokkurinn á rangri leið

Helgi Áss, fyrrverandi heimsmeistari, þolir ekki að tapa: Sjálfstæðisflokkurinn á rangri leið

Helgi Áss Grét­ars­son, skák­maður, lög­fræð­ingur og vara­borg­ar­full­trúi, talar í við­tali við Mann­læifið með Reyni Trausta­syni um Sjálf­stæð­is­flokk­inn og dvín­andi fylgi hans, áhrif þess að verða heims­meist­ari í skák 17 ára gam­all svo sem óraun­hæfar vænt­ingar, áfallið við að þurfa að hætta störfum við Laga­deild Háskóla Íslands, dóm­stól göt­unnar og reið­ina sem hann upp­lifði þegar hann árið 2003 tal­aði skák fyrir ein­hverju norsku barni.

Helgi Áss Grét­ars­son stefndi á 5. sæti hjá Sjálf­stæð­is­mönnum í Reykja­vík fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en lenti í 7. sæti og er fyrsti vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins.

„Fyrsti vara­borg­ar­full­trúi hvers flokks, þar á meðal ég, er með fasta stöðu í borg­ar­kerf­inu. Ég fæ aðeins lak­ari starfs­kjör en aðal­borg­ar­full­trúi.“

Hvernig leið Helga með nið­ur­stöð­una hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík?

„Ég held að töl­urnar tali sínu máli. Þetta eru 24,5% í Reykja­vík sem er lakasta hlut­fallstala Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík; lak­ari en hún var 2014 sem var þá rúm 25% og ég tel að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til lengri tíma litið eigi mikil sókn­ar­færi. Þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn starfar sam­kvæmt þeim prinsippum sem voru sett þegar flokk­ur­inn var stofn­aður – sem er sjálf­stæð­is­stefna, að ein­stak­lings­frelsið sé varið eftir atvikum líka og atvinnu­frelsi og fók­us­inn sé á grund­velli kröft­ugs atvinnu­lífs – þá getum við greitt fyrir vel­ferð­ina og að það sé stétt með stétt. Ég hef frá því ég var ungur haft mik­inn áhuga á stjórn­málum og lesið ævi­sögur margra stjórn­mála­manna og pælt í póli­tík alveg síðan ég var smá­krakki,“ segir Helgi og nefnir aftur hug­takið stétt með stétt. „Við í stjórn­mála­sam­starf­inu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins erum öll jöfn og það er mjög mik­il­vægt að þessi prinsipp séu útfærð og fram­kvæmd á hverjum degi þannig að fólk upp­lifi að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé fjölda­hreyf­ing sem tali til þeirra sem eru í efsta lagi sam­fé­lags­ins og hafa það mjög gott en líka þeirra sem hafa það lakast. Ég held að það stafi líka af því að við erum fámenn hérna; íslenska sam­fé­lagið er fámennt. Ég held að sjálfs­bjarg­ar­við­leitnin sé rík í Íslend­ingum; hvernig við komum úr fátækt og fleira. Það þýðir að við viljum hafa ein­stak­linga sem skara fram úr og eru að ná árangri til að síðan hjálpa þeim sem lakar standa þannig að allir ein­stak­lingar eigi séns. Það er alla­vega eitt­hvað sem ég stend fyrir í póli­tík og tel að það sé und­ir­staðan fyrir því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið stærsti flokk­ur­inn á Íslandi í langan tíma og ég tel að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að hlúa að þeirri und­ir­stöðu og að hann þurfi að vinna í því að breyta ásýnd sinni og orð­spori ef svo má að orði kom­ast og vera til­bú­inn að takast á við þær áskor­anir sem núna eru uppi og hvernig er sótt að honum á marg­vís­legum víg­stöðvum. Það þýðir meðal ann­ars það að ég er að fara í stjórn­mál til þess að standa fyrir eitt­hvað.“

Punkt­ur­inn hjá mér er að ég vil tala um alvöru póli­tík fyrir venju­legt fólk.

Helgi seg­ist vilja koma að hlutum og hug­myndum sem komi venju­legu fólki að gagni, búa til kerfi og hafa áhrif á emb­ætt­is­menn og hvernig lög og reglum er fram­fylgt til þess að mann­eskjan sem á erfitt með að ná endum saman eigi meiri mögu­leika á að eiga gott líf. „Og sá sem er hæfi­leik­a­ríkur og hefur náð miklum árangri hafi líka tæki­færi til þess að njóta erf­ið­is­ins, að það sé traust heil­brigð­is­kerfi, traust sam­göngu­mál og svo fram­vegis. Punkt­ur­inn hjá mér er að ég vil tala um alvöru póli­tík fyrir venju­legt fólk. Fyrir sem flesta. Í stað­inn fyrir til dæmis að ein­hver jað­ar­hópur gæti móðg­ast.

Ég er þeirrar skoð­unar í prinsipp­inu að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til lengri tíma litið eigi að standa fyrir ákveðin gildi sem eru traust og hafa stað­ist tím­ans tönn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur haft mest áhrif bæði í borg­ar­mál­unum, í sögu­legu til­liti, og í lands­mál­unum. Og þessi gildi hafa ein­hverja merk­ingu og það á að halda áfram að berj­ast fyrir þeim.“

Þá er fólk á villigötum

En hvað brást í kosn­inga­bar­átt­unni?

Viðræður standa enn yfir og segir Helgi að ekki sé vitað hvar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn standi og að það sé við­kvæmt að ræða það akkúrat á þessum tíma­punkti hvað fór úrskeiðis í kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins eða hvað var vel gert í kosn­inga­bar­áttu flokks­ins. „Ég tel að það sem er jákvætt sé að það er vilji innan flokks­ins að ræða það hrein­skiln­is­lega hvernig var staðið að hlutum og ég hlakka til þeirrar umræðu. Og ég hef mínar skoð­anir á því en ég tel vera óskyn­sam­legt að ég sé að tjá mig um það hér og nú.“

Helgi segir að almennt séð eigi kosn­inga­bar­átta fyrst og fremst að snú­ast um ákveðið grunn­fylgi. „Þá þarftu að tala og grípa til ákveð­inna aðgerða, svo þarftu að átta þig á and­stæð­ingnum svo sem hvað hann er að fara að gera og grípa til ráð­staf­ana til að mæta þeim aðgerðum. Svo í þriðja lagi þarftu að fara að vinna að því að ná til lausa­fylgis.“

Helgi segir að það sem sér hafi fund­ist gaman í póli­tík­inni hingað til, en það eru rétt rúmir þrír mán­uðir síðan hann byrj­aði í póli­tík, sé að hann geti notað margt sem teng­ist hug­mynda­fræði og her­fræði í skák. „Og það þýðir það að svona almennt séð þarftu að vera með skil­greint mark­mið, þú þarft að vera með konsept sem þurfa að vera skýr og þú þarft að segja „þetta, kjós­endur góðir, er það sem við stöndum fyrir, við ætlum að fara með þig hingað og við ætlum að vera öðru­vísi en hinir“.

Gras­rótin. Hún vill að flokk­ur­inn hafi þá ásýnd og hafi þá ímynd að hann standi með öllum.

Helgi segir að það sé mögu­leiki á að þeir sem stýra flokknum séu ekki í nægi­legum tengslum við þann veru­leika sem blasir við mörgum. „Það er eitt­hvað sem ég vil vinna í og hef áhuga á. Þegar ég tala við sjálf­stæð­is­fólk víða þá er það þetta sem fólk vill að flokk­ur­inn standi fyrir. Gras­rótin. Hún vill að flokk­ur­inn hafi þá ásýnd og hafi þá ímynd að hann standi með öllum.“

Er Helgi að tala um að flokk­ur­inn sé of elí­tískur?

„Ég er þeirrar skoð­unar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að end­ur­skoða margt í sínum vinnu­brögðum vegna þess að þetta er flokkur sem var með að með­al­tali vel yfir 30%; ég held nálægt 40% í alþing­is­kosn­ingum og á ákveðnu tíma­bili var hann með yfir 50% í Reykja­vík; fyrir hrun var hann með í Reykja­vík yfir 40% þó að R-list­inn hafi unnið. Og með­al­talið núna er undir 30% í Reykja­vík.“

Hann nefnir þá sem eru í for­ystu flokks­ins. „Ef þeir halda að þetta sé bara í lagi, að flokk­ur­inn eigi að halda áfram að stefna niður á við og það sé ekki ástæða til að end­ur­skoða starfs­að­ferðir, end­ur­skoða fyrir hvað við stöndum, hvernig við lítum út og hvernig við komum skila­boðum á fram­færi þá held ég að fólk sé á villi­götum.“

Aðal­at­riðið er að það sé lögð vinna í að fara eftir ein­hverjum prinsippum.

Helgi segir að það þurfi að stefna að því að end­ur­skil­greina flokk­inn í huga kjós­enda og hann vill taka þátt í þeirri vinnu. „Það er alveg óháð því hverjir eru nákvæm­lega í for­ystu eða hvort henni verði breytt. Aðal­at­riðið er að það sé lögð vinna í að fara eftir ein­hverjum prinsippum eins og til dæmis Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn end­ur­skoð­aði sínar starfs­að­ferðir og fleira fyrir nokkrum árum og margir fram­bjóð­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa gert grein fyrir því. Og það er kom­inn tími á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fari í sam­bæri­lega end­ur­skoðun.“

Hungrið

Helgi Áss Grét­ars­son varð heims­meist­ari í skák 17 ára gam­all meðal 20 ára og yngri.

„Það hafði mikil áhrif á mitt líf að ná þess­ari tign svona óvænt og það steig mér til höf­uðs og margt sem gerð­ist og ég hef lært af því ferli mjög mikið. Eitt af því sem ég tek út úr þessu öllu saman er að þegar þú vinnur stóra sigra þá getur það um leið verið hluti af því að þú sért að fara niður. Og þegar þú tapar mikið í líf­inu þá getur það verið upp­hafið að stórum sigrum.“ Helgi seg­ist elska að keppa og vinna og hati að tapa. „Ég bara þoli ekki að tapa. En það sem ég hef lært er að taka bæði sigrum og töpum af ákveð­inni auð­mýkt. Það er mjög mik­il­vægt hug­tak sem ég er að nota – auð­mýkt og þakk­læti – vegna þess að það sem ég kalla núll­still­ingu þýðir það að það ger­ist eitt­hvað sem er kannski dramat­ískt og breytir aðstæðum og þá þarf maður að aðlaga sig að aðstæð­unum og núll­stilla sig hvort sem það er jákvætt eða slæmt. Því um leið og maður nær að núll­stilla sig þá er haus­inn miklu skýr­ari varð­andi hvað eigi að gera næst; hvað er best að gera til að bæta stöð­una. Og þá er komið að öðru sem er mik­il­vægt og það er hungur. Vera alltaf hungr­aður. Alltaf að sækja fram. Þannig að þetta eru prinsipp sem ég hef til­einkað mér í raun og veru á und­an­förnum árum. Mér hefur þótt vera þrosk­andi að vera í póli­tík því karakt­ersein­kennið var að ef eitt­hvað kom óheppi­legt upp á þá gat ég tekið því mjög illa. En nú finnst mér ég vera með þroska; ákveðna fjar­lægð frá við­burðum til að átta mig á að „ok, þetta er bara svona og hvernig er best að bregð­ast við“?“

Það lýsti sér í að vænt­ing­arnar urðu óraun­hæfar og mér leið ekk­ert sér­stak­lega vel á eftir.

Það steig Helga til höf­uðs að verða heims­meist­ari í skák 20 ára og yngri. Hvernig lýsti það sér?

„Það lýsti sér í að vænt­ing­arnar urðu óraun­hæfar og mér leið ekk­ert sér­stak­lega vel á eftir og ég tók nokkur ár í að þroskast og finna sjálfan mig í skák­inni aftur. Það varð breyt­ing til batn­aðar. Ég flutti til Tékk­lands og bjó í Prag í tvö ár.“ Hann eign­að­ist konu og barn og seg­ist þá hafa tekið tölu­verðum fram­förum. „Ég sýndi fram á alla­vega gagn­vart sjálfum mér að þetta væri eitt­hvað sem ég gæti valið. En það var ein­hvern veg­inn þannig að ég var búinn að ákveða ein­hverjum árum fyrir Tékk­lands­ferð­ina eða -dvöl­ina að afla mér mennt­unar og fara að starfa við eitt­hvað annað en við skák.“

Hann ein­beitti sér að skák­inni í Tékk­landi eins og hann hafði gert áður heima á Íslandi. „Málið er að í Tékk­landi kynnt­ist ég svo mörgum nýjum hliðum á skák­inni. Í Austur-Evrópu eru margir öfl­ugir fag­menn eða fag­fólk. Það er bæði hvernig þú þjálfar, hvernig þú hugsar, hvernig þú tekur ákvarð­anir og hvernig þú metur stöður. Þetta er eins og iðn­aður í raun og veru. Fólk sem sér skák­ina utan frá heldur að þetta sé ein­hver dans á rósum eða leikur en þetta er að mörgu leyti til­tölu­lega stór iðn­aður og mennt­un­ar­stigið í grunn­inn frá Austur-Evrópu var miklu hærra en á Vest­ur­löndum.“

Hann talar um fall Berlín­ar­múrs­ins og járn­tjalds­ins og segir að eftir það hafi þekk­ing og sá grunnur sem Sov­ét­menn og aðrir höfðu lagt í skák­ina dreifst út um allan heim. „Þannig eru til dæmis Ind­verjar mjög öfl­ugir í dag og Banda­ríkja­menn. Skák er ótrú­lega fjöl­breytt í raun og veru þegar þú þarft að afla þér upp­lýs­inga um öll smá­at­riði til að geta keppt við þá bestu.“

Ég gat tekið töpum eða áföllum mjög per­sónu­lega.

Hvað þarf til að ná miklum árangri? Hvernig þarf ryþm­inn og hug­ar­farið að vera til að menn nái langt?

„Prinsippin eru að þú þarft að hafa mjög mik­inn áhuga, þú þarft að vera til­bú­inn að leggja á þig mjög mikla vinnu og þú þarft í raun og veru að elska þetta mjög mikið. Það þarf mikla ástríðu að ég tel. Það var til dæmis eitt sem ég átti mjög erfitt með þegar ég var upp á mitt besta og það var að ég gat tekið töpum eða áföllum mjög per­sónu­lega. Ef það gekk vel og svo tap­aðir þú í 6. umferð og það voru þrjár umferðir eftir þá gat eitt svona áfall haft veru­leg áhrif á það sem gerð­ist síðar. Og það er það sem ég hef lært almennt sem aðferð í líf­inu: Það er sama hvort þú sért að vinna eða tapa. Það er þessi núll­still­ing.“

Erfitt og viðkvæmt mál

Helgi er lög­fræð­ingur og var árið 2019 sagt upp störfum sem dós­ent við Laga­deild Háskóla Íslands.

„Þetta er erfitt og við­kvæmt mál að tala um en í sem skemmstu máli þá taldi ég að ég hefði skrifað nægi­lega margar fræði­greinar á til­teknum vett­vangi til þess að það ætti að standa mér til boða að fá ráðn­ingu sem væri ótíma­bundin. Um þetta var ágrein­ingur og stjórn­endur háskól­ans töldu að regl­urnar ættu að vera túlk­aðar með öðrum hætti. Þannig að nið­ur­staðan var sú að ég lét af störfum. Ég var í 13 ár við Laga­stofnun HÍ og er þakk­látur fyrir þau ár. Þetta hefur kennt mér margt og ég taldi til dæmis að ég væri orð­inn frá­bær kenn­ari og það hefur finnst mér gagn­ast í stjórn­málum. En í sem skemmstu máli þá tel ég að stjórn­endur HÍ og fyrst og fremst fólk innan laga­deild­ar­innar hafi þá áhuga á að regl­urnar væru túlk­aðar þannig að ég léti af störfum.“

Ágrein­ing­ur­inn 2019 sner­ist um það hvort ég hefði haft full­nægj­andi fram­lag til fræða­heims­ins.

Hvað með LÍÚ og styrkt­ar­stöðu?

„Ég var starfs­maður Laga­stofn­unar Háskóla Íslands 2006-2012 og sá samn­ingur var milli mín, Laga­stofn­unar og HÍ og hann var fjár­magn­aður síðan með samn­ingi sem Laga­stofnun gerði við Lands­sam­band íslenskra útvegs­manna. Það var þannig að Laga­stofnun var að reyna að auka rann­sókn­ar­virkni meðal ann­ars á sviði auð­linda­réttar og gerði samn­ing við LÍÚ og svo var verið að reyna að finna starfs­mann og ég var ekki sá fyrsti sem leitað var til en ég ákvað að taka þetta verk­efni með trompi og skrif­aði mikið um sögu fisk­veiða eða fisk­veiði­stjórn­unar og kynnti mér nákvæm­lega hvernig stjórn­kerfi fisk­veiða hefur þró­ast. Þetta er mjög flókið reglu­verk þannig að ég gaf út fullt af efni á þessum árum. Svo 2012 var ég ráð­inn sem kenn­ari og fékk að end­ingu stöðu dós­ents vegna þess að ég hafði skrifað það mikið að ég átti rétt á að verða dós­ent. Það var ýmis­legt sem gekk á í mínu lífi á þessum árum og ég þurfti virki­lega að taka mig á til þess að verða góður kenn­ari. Það tók mig nokkur ár að ná tökum á því verk­efni. Á meðan var ég ekki eins virkur að skrifa um lög­fræði eins og ég hafði verið. Það var sem sé þannig að ágrein­ing­ur­inn 2019 sner­ist um það hvort ég hefði haft full­nægj­andi fram­lag til fræða­heims­ins. Og ég mat að svo væri en stjórn­endur háskól­ans töldu það ekki vera þannig.“

Þannig að Helgi fór.

„Já, það tók mig 18-24 mán­uði að jafna mig á þessu af því að ég hafði lagt svo mikið á mig að verða góður kenn­ari. En þá not­aði ég skák­ina. Það er góður kostur að eiga góða fjöl­skyldu og góðan maka. Í svona áföllum þarf maður að læra það sem ég kall­aði áðan auð­mýkt.“

Dómstóll götunnar

Helgi var ekki feim­inn við að gagn­rýna RÚV fyrir við­tal við Þórhildi Gyðu sem lýsti áreiti Kolbeins Sig­þórs­sonar knatt­spyrnu­manns. Það þarf svo­lít­inn kjark til að ganga á móti þess­ari bylgju, MeToo. Flestir fara ofan í holu og segja ekki orð.

Þú ert að fara að saka ein­hvern um eitt­hvað sem er alvar­legt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dóm­stóla.

„Árið 2021 fann ég aftur þörf fyrir að fara að skrifa um sam­fé­lags­mál og ég fann að þetta er minn styrk­leiki. Og ég fann að aðilar í háskólaum­hverf­inu höfðu haft slík áhrif á mig að ég hafði dregið úr því og það hafði dregið úr kjarkinum mínum. Það þýddi það að um leið og ég var búinn að vinna mig úr því áfalli að hætta hjá HÍ þá fann ég að fyrir þetta stend ég. Ég stend fyrir eitt­hvað. Ástæðan fyrir því að ég byrj­aði að skrifa um þessi mál  – það er að segja rétt­ar­höld á sam­fé­lags­miðlum og svo fram­vegis – er að ég upp­lifði hvert er við­horf ungu kyn­slóð­ar­innar. Og það hræddi mig svo­lítið með til­liti til rétt­látrar máls­með­ferðar og svo hitt að ég taldi mig hafa næga þekk­ingu á akademíska umhverf­inu og þessi hug­mynda­fræði öll kom frá Banda­ríkj­unum og var síðan inn­rætt í aka­dem­í­una hér á landi og fer svo inn í skóla­kerfið „og så videre“. Það er mik­il­vægt að það sé staðið gegn þessu og sagt „við skulum tala um stað­reyndir“. Og það sem ég var fyrst og fremst að gagn­rýna þarna í við­tal­inu hjá RÚV var þetta til­tekna við­tal: Það laut ein­fald­lega að því að það voru til gögn. Þú ert að tala við við­mæl­anda sem var með mjög alvar­legar ásak­anir og gefa eitt­hvað í skyn. Þú ert blaða­maður. Þegar þú birtir þetta við­tal eða áður en það er tekið er eðli­legt að spyrja „hefur þú tök á að reiða fram lög­reglu­skýrslu eða kæruna? Getum við fengið ein­hver sönn­un­ar­gögn?“. Það er þannig sem við lög­fræð­ingar vinnum. Þú ert að fara að saka ein­hvern um eitt­hvað sem er alvar­legt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dóm­stóla: Hvernig væri að fá sönn­un­ar­gögn og heim­ildir um hvað sé satt og rétt? Það sem greinin mín sner­ist um var það, að þá hafði verið gert opin­bert hverjar væru stað­reyndir máls­ins með til­liti til hvað stæði í lög­reglu­skýrslu.

Það sem var aðal­at­riðið var að þessi skjöl, þessi trú­verð­ugu gögn, gáfu til kynna að myndin væri önnur en það sem kom fram í við­tal­inu. Það er eðli­legt að spyrja hver vinnu­brögð fjöl­miðla­manns­ins væru þegar við­talið var tekið.“

Er Helgi ekk­ert smeykur við að blanda sér í þetta mál­efni?

„Ég hef sannað það með verkum mínum að ég stend fyrir ákveðna hluti og ég hef hug­rekki til að fylgja þeim eftir. Það er erfitt.“

Fékk hann ekki á sig hol­skeflu þarna?

„Jú, en hvaða máli skiptir það? Ég er með verk­efni eða sýn og það sem er að ger­ast til dæmis núna í sam­fé­lag­inu er að það er popúl­ismi í gangi sem er til­finn­inga­legur og byggður á því að sam­fé­lags­miðlar eru ný teg­und af miðlum og það er svo auð­velt núna að hræra í hausnum á fólki. Það er svo auð­velt að breyta við­horfum og skoð­unum eftir nokkrar sek­úndur. Það er hættu­legt. Það hefur alltaf sýnt sig þegar kemur ný tækni eða þeir sem berj­ast fyrir því sem ég kalla ofstæki geti í skjóli þekk­ingar sinnar, áróðri og fleiru haft óeðli­lega mikil áhrif og ég man það svo og met það svo að það verður ein­hver að vera til­bú­inn að standa gegn svona þróun vegna þess að það er þannig sem við verjum siðað sam­fé­lag og það er þannig sem við verndum rétt­ar­ríkið.“

Ég var alveg brjálaður

Vara­borg­ar­full­trúi. Hvað með skák­ina? Jú, Helgi Áss Grét­ars­son er far­inn að tefla meira en hann gerði í mörg ár.

„Ein ástæðan fyrir því að ég er kom­inn af svona auknum krafti í skák­ina er að ég varð í fyrsta skipti Íslands­meist­ari í skák mjög óvænt 2018 og komst þá á Ólymp­íu­skák­mót. Það var frá­bær upp­lifun að fara á Ólymp­íu­skák­mót þar sem maður hittir fólk frá öllum heims­álfum. Mér var boðið núna sæti á Ólymp­íu­skák­móti og við förum út 25. júlí held ég og komum til baka 10. ágúst. Ég er að fara núna út til að æfa mig fyrir mótið af því að póli­tíkin hefur tekið hug minn og tím­ann allan í nokkra mán­uði en ég á ekki von á öðru en að þetta verði síð­ustu verk­efni mín í skák­inni í svo­lítið langan tíma.“

Hann seg­ist gjarnan vilja geta orðið skák­list­inni að liði eins mikið og hann getur vegna þess að hann elski skák. „Mér finnst skák frá­bær og hún gefur manni mjög mikið og hún þroskar mann. Þetta er mjög gott tæki til að efla hug­ann; efla mjög marga þætti ein­stak­lings­ins. Ég er með þessi verk­efni fram til 10. ágúst í skák­inni en ég á ekki von á öðru en að þá taki við hinn póli­tíski veru­leiki og það sem ég vil gera. Ég vil vera öfl­ugur í stjórn­mál­unum.“

Er Helgi búinn að gefa upp alla von um að verða heims­meist­ari?

„Ég held það, því miður. Ég tap­aði fyrir núver­andi heims­meist­ara, Magnus Carlsen, þegar hann ar á 13. ári. Ég varð alveg brjál­aður. Ég henti skor­blað­inu. Þetta var árið 2003. Það var mikil sorg. Ég var alveg brjál­aður að tapa fyrir ein­hverju norsku barni.“

Sjá má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu