„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helgi gagnrýndi RÚV fyrir viðtal við Þórhildi Gyðu: „Hvernig væri að fá sönnunargögn og heimildir?“

Helgi gagnrýndi RÚV fyrir viðtal við Þórhildi Gyðu: „Hvernig væri að fá sönnunargögn og heimildir?“

Helgi Áss Grét­ars­son, skák­maður, lög­fræð­ingur og vara­borg­ar­full­trúi, talar í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni um Sjálf­stæð­is­flokk­inn og dvín­andi fylgi hans, áhrif þess að verða heims­meist­ari í skák 17 ára gam­all svo sem óraun­hæfar vænt­ingar, áfallið við að þurfa að hætta störfum við Laga­deild Háskóla Íslands, dóm­stól göt­unnar og reið­ina sem hann upp­lifði þegar hann árið 2003 tap­aði skák fyrir ein­hverju norsku barni. Hér er brot úr við­tal­inu.

Dómstóll göt­unnar

Helgi var ekki feim­inn við að gagn­rýna RÚV fyrir við­tal við Þórhildi Gyðu sem lýsti áreiti Kolbeins Sig­þórs­sonar knatt­spyrnu­manns. Það þarf svo­lít­inn kjark til að ganga á móti þess­ari bylgju, MeToo. Flestir fara ofan í holu og segja ekki orð.

Þú ert að fara að saka ein­hvern um eitt­hvað sem er alvar­legt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dóm­stóla:

„Árið 2021 fann ég aftur þörf fyrir að fara að skrifa um sam­fé­lags­mál og ég fann að þetta er minn styrk­leiki. Og ég fann að aðilar í háskólaum­hverf­inu höfðu haft slík áhrif á mig að ég hafði dregið úr því og það hafði dregið úr kjarkinum mínum. Það þýddi það að um leið og ég var búinn að vinna mig úr því áfalli að hætta hjá HÍ þá fann ég að fyrir þetta stend ég. Ég stend fyrir eitt­hvað. Ástæðan fyrir því að ég byrj­aði að skrifa um þessi mál  – það er að segja rétt­ar­höld á sam­fé­lags­miðlum og svo fram­vegis – er að ég upp­lifði hvert er við­horf ungu kyn­slóð­ar­innar. Og það hræddi mig svo­lítið með til­liti til rétt­látrar máls­með­ferðar og svo hitt að ég taldi mig hafa næga þekk­ingu á akademíska umhverf­inu og þessi hug­mynda­fræði öll kom frá Banda­ríkj­unum og var síðan inn­rætt í aka­dem­í­una hér á landi og fer svo inn í skóla­kerfið „og så videre“. Það er mik­il­vægt að það sé staðið gegn þessu og sagt „við skulum tala um stað­reyndir“. Og það sem ég var fyrst og fremst að gagn­rýna þarna í við­tal­inu hjá RÚV var um þetta til­tekna við­tal: Það laut ein­fald­lega að því að það voru til gögn. Þú ert að tala við við­mæl­anda sem var með mjög alvar­legar ásak­anir og gefa eitt­hvað í skyn. Þú ert blaða­maður. Þegar þú birtir þetta við­tal eða áður en það er tekið er eðli­legt að spyrja „hefur þú tök á að reiða fram lög­reglu­skýrslu eða kæruna? Getum við fengið ein­hver sönn­un­ar­gögn?“. Það er þannig sem við lög­fræð­ingar vinnum. Þú ert að fara að saka ein­hvern um eitt­hvað sem er alvar­legt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dóm­stóla: Hvernig væri að fá sönn­un­ar­gögn og heim­ildir um hvað sé satt og rétt? Það sem greinin mín sner­ist um var það að þá hafði verið gert opin­bert hverjar væru stað­reyndir máls­ins með til­lit til hvað stæði í lög­reglu­skýrslu.

Það sem var aðal­at­riðið var að þessi skjöl, þessi trú­verð­ugu gögn, gáfu til kynna að myndin væri önnur en það sem kom fram í við­tal­inu. Það er eðli­legt að spyrja hver vinnu­brögð fjöl­miðla­manns­ins væru þegar við­talið var tekið.“

Er Helgi ekk­ert smeykur við að blanda sér í þetta mál­efni?

„Ég hef sannað það með verkum mínum að ég stend fyrir ákveðna hluti og ég hef hug­rekki til að fylgja þeim eftir. Það er erfitt.“

Fékk hann ekki á sig hol­skeflu þarna?

„Jú, en hvaða máli skiptir það? Ég er með verk­efni eða sýn og það sem er að ger­ast til dæmis núna í sam­fé­lag­inu er að það er popúl­ismi í gangi sem er til­finn­inga­legur og byggður á því að sam­fé­lags­miðlar eru ný teg­und af miðlum og það er svo auð­velt núna að hræra í hausnum á fólki. Það er svo auð­velt að breyta við­horfum og skoð­unum eftir nokkrar sek­úndur. Það er hættu­legt. Það hefur alltaf sýnt sig þegar kemur ný tækni eða þeir sem berj­ast fyrir því sem ég kalla ofstæki geti í skjóli þekk­ingar sinnar, áróðri og fleiru haft óeðli­lega mikil áhrif og ég man það svo og met það svo að það verður ein­hver að vera til­bú­inn að standa gegn svona þróun vegna þess að það er þannig sem við verjum siðað sam­fé­lag og það er þannig sem við verndum rétt­ar­ríkið.“

Sjá má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins