„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þolandinn þarf að vilja hlusta á gerandann: „Það vantar vissulega fyrirmyndir“

Þolandinn þarf að vilja hlusta á gerandann: „Það vantar vissulega fyrirmyndir“

„Það er í mjög fáum til­vikum sem ger­end­uraxla ábyrgð. Í þeim til­vikum sem ég man eftir í þess­ari MeToo-bylgju þá hefur það samt yfir­leitt verið klaufa­lega gert. Það hefur til dæmis ekki verið gert í sam­ráði við þolend­urna og það hefur ekki verið öxluð full áabyrgð,“ segir Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, sál­fræð­ingur og for­maður bar­áttu­hóps­ins Líf án ofbeldis.

Aðspurð hvort, að hennar mati, hún telji það geta gerst að ger­endur, sem hafa vísað ásök­unum á bug, sjái að sér – stígi fram og játi, segir Gabríela:

„Hvað marga ger­endur varðar, þá eru þeir að ein­hverju leyti aldir upp í umhverfi þar sem að þeir eru ekki látnir bera ábyrgð á sjálfum sér. Þá er fjöl­skyldan oft líka ekki til­búin til að horfast í augu við að barnið sé búið að brjóta á ein­hverjum öðrum. Það verður miklu erf­ið­ara fyrir ger­and­ann að horfast í augu við gjörðir sínar, ef for­eldrar eða systk­ini eru bara: „nei, þú gerðir þetta ekki“.“

Ljóst er að lítið er um að dæmi þess að ger­endur hafi stigið fram og jafn­vel gefið til baka.„Það vantar vissu­lega fyr­ir­myndir, þar sem ger­endur hafa breyst raun­veru­lega, farið í rosa­lega mikla sjálfs­vinnu og farið að vinna í sér þannig að þeir séu orðnir fyr­ir­myndir fyrir aðra um að hætta að brjóta á öðrum og jafn­vel að gefa til baka á ein­hvern hátt sem hjálpar öðrum og skaðar engan.“

Kjósi ger­andi að stíga fram segir Gabríela mik­il­vægt að það sé gert í sam­ráði við þol­anda.„Það er nátt­úr­lega líka mjög umdeilt að menn séu að tala opin­ber­lega um það ofbeldi sem þeir hafa beitt. Það getur verið mjög þung­bært fyrir þolendur. Ofbeldi felur í sér vald­beit­ingu og þess vegna er mik­il­vægt að valdið sé ekki tekið af þolendum þegar ger­endur vilja bæta fyrir brot sín.

Mann­eskjan sem varð fyrir brot­inu þarf að vilja hlusta á ger­and­ann, það er ekk­ert endi­lega víst. Ger­and­inn getur ekki þröngvað sér upp á þol­and­ann og kraf­ist þess að fara í ein­hvers konar sátta­með­ferð eða sátta­miðlun með þol­anda.“Þá segir Gabríela að það sé fyrst og fremst mik­il­vægt að þol­andi sé við stjórn, kjósi ger­andi að stíga fram og axla ábyrgð. Ljóst er að slíkt ger­ist allt of sjaldan þrátt fyrir að úrræði séu til staðar.

Lesa meira hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins