„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Félag pípulagningameistara sameinast SI: „Saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni“

Félag pípulagningameistara sameinast SI: „Saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni“
Árni Sig­ur­jóns­son, for­maður SI, og Böðvar Ingi Guð­bjarts­son, for­maður FP, skrifa undir sam­komu­lagið í Húsi atvinnu­lífs­ins

Félag pípu­lagn­inga­meist­ara, FP, hefur gengið til liðs við Samtök iðn­að­ar­ins, SI, en sam­komu­lag þess efnis var und­ir­ritað í Húsi atvinnu­lífs­ins í dag.

Með sam­kom­lag­inu verða allir félags­menn Félags pípu­lagn­inga­meist­ara sem stunda atvinnu­rekstur félags­menn í Samtökum iðn­að­ar­ins og þar með í Samtökum atvinnu­lífs­ins. Þannig bæt­ast 140 nýir félags­menn Félags pípu­lagn­inga­meist­ara í hóp þeirra 1.400 fyr­ir­tækja sem eru nú þegar í Samtökum iðn­að­ar­ins. Inngöngu í Félag pípu­lagn­inga­meist­ara hafa þeir einir sem hafa meist­ara­rétt­indi og lög­gild­ingu í pípu­lögnum.

Með inn­göngu Félags pípu­lagn­inga­meist­ara verða í fyrsta sinn öll meist­ara­fé­lög iðn­greina í bygg­inga- og mann­virkja­iðn­aði hér á landi innan vébanda Samtaka iðn­að­ar­ins. En fyrir eru meist­ara­fé­lög í blikk­smíði, dúk­lögn- og vegg­fóðrun, inn­rétt­inga- og hús­gagna­smíði, skrúð­garð­yrkju, húsa­smíði, mál­ara­iðn, múr­ara­iðn og raf­verk­töku.

Frá und­ir­ritun sam­komu­lags milli Félags pípu­lagn­inga­meist­ara og Samtaka iðn­að­ar­ins sem fram fór í Húsi atvinnu­lífs­ins, talið frá vinstri, Magnús Björn Bragason, stjórn­ar­maður FP, Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri SI, Jóhanna Klara Stef­áns­dóttir, sviðs­stjóri mann­virkja­sviðs SI, Árni Sig­ur­jóns­son, for­maður SI, Sigurður Reynir Helgason vara­maður FP, Böðvar Ingi Guð­bjarts­son, for­maður FP, Kári Sam­ú­els­son, gjald­keri FP, Almar Gunn­ars­son, vara­for­maður FP, og Ársæll Páll Ósk­ars­son, rit­ari FP.

Árni Sig­ur­jóns­son, for­maður SI: „Við fögnum því að fá pípu­lagn­inga­meist­ara til liðs við okkur og hlökkum til sam­starfs­ins. Þetta er stórt skref sem er stigið nú þegar allar iðn­greinar sem til­heyra bygg­inga- og mann­virkja­iðn­aði eru sam­an­komnar undir hatti Samtaka iðn­að­ar­ins. Með þessu eflum við sam­tökin og rödd þess­ara mik­il­vægu atvinnu­greina enn frekar.“

 Böðvar Ingi Guð­bjarts­son, for­maður FP: „Félags­menn okkar sam­þykktu aðild að Samtökum iðn­að­ar­ins í raf­rænni kosn­ingu og verðum við þar með þátt­tak­endur í stærstu og öfl­ug­ustu hags­muna­sam­tökum atvinnu­rek­enda á Íslandi. Við eigum sam­leið með öðrum meist­urum í bygg­inga- og mann­virkja­gerð. Framundan er því spenn­andi sam­starf en saman ætlum við að ráð­ast í mörg krefj­andi verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins