„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sá grunaði áður dæmdur fyrir ofbeldisbrot

Sá grunaði áður dæmdur fyrir ofbeldisbrot
Photo: ja.is Mynd: Lubbi

Karl­mað­ur­inn sem situr í gæslu­varð­haldi grun­aður um að hafa banað öðrum manni í Barða­vogi þann 4. júní síð­ast­lið­inn var dæmdur fyrir ofbeld­is­brot árið 2020. Mbl.is greinir frá þessu.

Auk þess að hafa hlotið dóm fyrir ofbeld­is­brot var mað­ur­inn einnig dæmdur fyrir brot á barna­vernd­ar­lögum fyrir sama atvik, fyrir að hafa veist með ofbeldi, yfir­gangi og van­virð­andi hátt­semi að ungum dreng.

Líkt og segir í frétt mbl.is var þetta í fyrsta sinn sem mað­ur­inn, sem heitir Magnús Aron Magn­ús­son, gerð­ist sekur um refsi­vert brot svo vitað sé til. Atvikið sem um ræðir átti sér stað í októ­ber árið 2019. Þá var Magnús undir lög­aldri, rétt tæp­lega átján ára gam­all, en hann er fæddur í des­em­ber árið 2001.

Greint er frá því að Magnús hafi hlotið 30 daga fang­els­is­dóm fyrir brotið en að dóm­ur­inn hafi verið skil­orðs­bund­inn til tveggja ára. Dómurinn sem um ræðir var kveð­inn upp þann 24. júní árið 2020. Það þýðir að þegar morðið í íbúð­ar­hús­inu við Barðavog var framið var hann enn á skil­orði.

Gert ráð fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Einar Guðberg Jónsson, lög­reglu­full­trúi hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, seg­ist í sam­tali við mbl.is gera ráð fyrir því að lög­regla krefj­ist áfram­hald­andi gæslu­varð­halds yfir hinum grun­aða, en hann var úrskurð­aður í rúm­lega þriggja vikna gæslu­varð­hald við hand­töku á grund­velli almanna- og rann­sókn­ar­hags­muna. Það rennur út 1. júlí.

Samkvæmt Einari er það lík­legt að reynt verði að halda Magnúsi í gæslu­varð­haldi þar til málið verður dóm­tekið. Hann segir lög­reglu vel á veg komna í rann­sókn­inni en að beðið sé eftir ákveðnum gögnum, á borð við skýrslu frá rétt­ar­meina­fræð­ingi og lækna­gögnum.

Nágrannar höfðu áhyggjur

Magnús er tal­inn glíma við geð­ræn vanda­mál og hafa fréttir borist af því að nágrannar telji hann ekki eiga að búa í almennu íbúa­hverfi heldur sér­tæku úrræði. Engar upp­lýs­ingar liggja fyrir um það hvort og þá hvaða úrræða hafi verið leitað fyrir hann í heil­brigð­is­kerf­inu.

Því hefur verið lýst að nágrannar og aðrir íbúar í Lang­holts­hverf­inu hafi lengi haft áhyggjur af ógn­andi hegðun Magnúsar. Hann hefur áður ratað í fréttir fyrir ofbeldi gegn hundum í hverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins