„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Smitaðist af apabólunni á Íslandi – Áhyggjuefni segir Þórólfur

Smitaðist af apabólunni á Íslandi – Áhyggjuefni segir Þórólfur
Mynd/Envato

Karl­maður á miðjum aldri greind­ist með apa­bólu í gær. Þar með hefur fjórða smitið greinst hér á landi, en sótt­varna­læknir segir að lík­lega sé um inn­an­lands­smit að ræða, sem sé áhyggju­efni. Þetta kemur fram hjá RÚV.

„Þetta eru svipuð ein­kenni og hjá hinum þremur, fyrst og fremst húð­ein­kenni og fólk er ekk­ert veikt með þessu,“ segir Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, í sam­tali við RÚV.

Maðurinn sem um ræðir er í ein­angrun á heim­ili sínu.

Þórólfur segir smitrakn­ingu vera í ferli en að allar líkur séu á að um inn­an­lands­smit sé að ræða. Hann segir það áhyggju­efni ef mikið fari að vera um slík smit.

Rúmlega þrjú þús­und ein­stak­lingar hafa greinst með apa­bólu í Evrópu og hefur smitum í álf­unni fjölgað að und­an­förnu.

Á sama tíma og apa­bóla virð­ist farin að smit­ast inn­an­lands hefur Covid-smitum farið fjölg­andi í sam­fé­lag­inu und­an­farið. Í fyrra­dag greindust til að mynda 420 ein­stak­lingar með sjúk­dóm­inn. Nýlega hefur verið fjallað um nýtt afbrigði sem sagt er skæð­ara en þau sem á undan hafa komið. Þórólfur segir þó að of snemmt sé að hafa sér­stakar áhyggjur af því, enda sé sótt­varna­stofnun Evrópu ekki búin að gefa neitt út hvað það varðar. Hann segir að oft komi upp áhyggjur af ein­staka afbrigðum, en að það þurfi að bíða og sjá hvernig sjúk­dóm sé um að ræða, til­raunir séu gerðar á rann­sókn­ar­stofum og þá fáist til­finn­ing fyrir hegðun hinna nýju afbrigða.

„Þannig að ég held það sé of snemmt að koma með ein­hverja slæma spá það á bara eftir að koma í ljós,“ segir Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins