„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Séra Davíð Þór um helvíti og tiltal biskups: „Sá ekki fyrir að viðbrögðin yrðu svona heiftarleg“

Séra Davíð Þór um helvíti og tiltal biskups: „Sá ekki fyrir að viðbrögðin yrðu svona heiftarleg“
Séra Davíð Þór Jónsson er í fram­boði

Séra Davíð Þór Jónsson, sókn­ar­prestur í Laug­ar­nes­kirkju, hristi upp í mörgum nýverið þegar hann á Facebook-síðu sinni skaut hörðum skotum að rík­i­s­tjórn­inni vegna mál­efna flótta­manna og hæl­is­leit­enda og not­aði meðal ann­ars orðið „hel­víti“ í þeim pæl­ingum. Hann fékk í kjöl­farið til­tals­bréf frá bisk­upi sem hann líkir við gula spjaldið. Í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni ræðir hann meðal ann­ars um þessar pæl­ingar sínar, til­tals­bréfið og flótta­menn. Þá ræðir hann einnig um Rad­íus­bræður og húmor og svo er það dauð­inn.

Þú varst nú grimmur um dag­inn þegar þú sagðir að rík­is­stjórnin færi til hel­vítis.

„Ég sagði það nú ekki. Ég vitn­aði í orð Martin Luther Kings sem sagði að heit­ustu stað­irnir í hel­víti væru frá­teknir fyrir þá sem ekki taka afstöðu gagn­vart sið­ferð­is­legu ófremd­ar­á­standi. Ég vitn­aði líka í Madel­eine Albright sem sagði að það væri sér­stakur staður í hel­víti fyrir konur sem hjálpa ekki konum. Þetta er bara orð­tak að það sé sér­stakur staður í hel­víti fyrir þessa og hina,“ segir séra Davíð Þór Jónsson, sókn­ar­prestur í Laug­ar­nes­kirkju.

Og það varð allt vit­laust.

„Það varð allt vit­laust, já, af því að þið hafið litið svo á að ég væri með lykla­völd að hel­víti og ég væri búinn að panta svít­urnar þar fyrir rík­is­stjórn Íslands. Og það er kallað „hót­anir“ sem ég skil ekki alveg. Hótun hlýtur að fela það í sér að maður sé í aðstöðu til þess að láta verða af henni, er það ekki? Myndir þú taka það alvar­lega ef ég myndi hóta þér því að þú fengir loft­stein í haus­inn á leið­inni heim?“

Nei, ætli það. Ég myndi halda að þú ættir kannski erindi til læknis.

Þetta kemur kirkj­unni ekk­ert við.

„Nákvæm­lega. Af ein­hverjum ástæðum voru þessi ummæli mín skilin sem hótun og það er vegna þess að ég er prestur. Ef ég hefði verið í ein­hverju öðru starfi þá hefði fólk látið þetta sem vind um eyru þjóta. En pældu í því hvað það er áhuga­vert að við­brögðin eru: „Það er grafal­var­legt að kirkjan sé að tjá sig með þessum hætti.“ Fyr­ir­gefðu, kirkjan var ekk­ert að tjá sig með þessum hætti. Það var ég, borg­ari í þessu sam­fé­lagi, að tjá mig heima á minni per­sónu­legu Facebook-síðu. Þetta kemur kirkj­unni ekk­ert við. Ef ég væri bak­ari hefði þá ein­hver sagt „það er grafal­var­legt að Myllan sé farin að skipta sér af þjóð­fé­lags­um­ræðu“? Þar fyrir utan auð­vitað á kirkjan að skipta sér af þjóð­fé­lags­um­ræðu; það er bein­línis í starfs­lýs­ing­unni.“

Davíð Þór er bent á að hann sé orð­inn svo mikið í far­ar­broddi fyrir presta og akkúrat í þessum málum og það sé þess vegna svo­lítið erfitt að skilja á milli Davíðs Þórs óbreytta og séra Davíðs Þórs.

„Það er nefni­lega málið.“

Þegar ég tek af mér krag­ann og ég verð aftur bara Dabbi Jóns úr Hafn­ar­firði.

Ertu ekki alltaf séra Davíð Þór, alveg sama hvar þú kemur?

„Í raun og veru er ég alltaf séra Davíð Þór, jú, sama hvert ég kem. En það er samt munur á því hvenær ég er í starfi og hvenær ekki. Ég er ekki í vinn­unni núna. Ef sím­inn myndi hringja og ég væri kall­aður eitt­hvað út í bæ í sorg­ar­hús eða af því að það væri eitt­hvað neyð­ar­á­stand þá myndi ég setja á mig krag­ann og þá er ég orð­inn séra Davíð Þór. Þá er ég kom­inn í vinn­una. Og þá gilda allt aðrar reglur um það hvernig ég haga mér og hvað ég segi heldur en þegar ég tek af mér krag­ann og ég verð aftur bara Dabbi Jóns úr Hafn­ar­firði.“

Tiltalsbréf

Davíð Þór var snupraður fyrir ummælin. Hvernig leið honum með það?

„Mér fannst það ósann­gjarnt. Því máli er lokið af hálfu bisk­ups; ég treysti því bara að hún standi við það.“

Það má segja að til­tal sé eins og að vera á gulu spjaldi.

Var það áminn­ing­ar­bréf?

„Já, það heitir til­tals­bréf. Málinu er lokið og ég vil ekki endi­lega tjá mig mikið um inni­hald þess bréfs; ég þarf að hugsa um atvinnu­ör­yggi mitt og fjár­hags­af­komu fjöl­skyld­unnar af því að til­tal er hluti af upp­sagn­ar­á­kvæðum kjara­samn­ings Presta­fé­lags Íslands. Þannig að það má segja að til­tal sé eins og að vera á gulu spjaldi. Og leik­maður sem er búinn að fá gult spjald; það hefur pínu­lítil áhrif á leikstíl­inn. Þannig að alla­vega sem stendur og alla­vega á meðan málið er þar sem það er núna þá vil ég ekki tjá mig um það að öðru leyti en því að segja að mér þótti þessi við­brögð of harka­leg. Það hefði mátt leysa þetta öðru­vísi. Ég veit bara að það barst fullt af kvört­unum undan þessu til Bisk­ups­stofu. Málið er að á mig rigndi stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingum en á biskup rigndi ann­ars konar yfir­lýs­ingum. Þannig að ég vildi óska að þeir sem myndu vilja lýsa yfir stuðn­ingi við mig gerðu það við biskup. Það væri skemmti­legra. Það eina sem biskup sér er nátt­úr­lega allt fólkið sem ég er að reita til reiði.“

Séra Davíð Þór er spurður hvort hann hafi séð eftir að hafa skrifað þetta.

„Já, ég geri það vegna þeirra afleið­inga sem það hafði. Ég sá það ekki fyrir að við­brögðin yrðu svona heift­ar­leg en aðal­lega sé ég eftir að hafa tekið sterkt til orða vegna þess að fyrir vikið fór fók­us­inn af því sem ég var að tala um. Allt í einu vorum við ekki lengur að tala um þá ákvörðun rík­is­stjórnar Íslands að senda tæp­lega 300 manns í aðstæður þar sem vitað er að mann­rétt­indi þeirra eru virt að vettugi og meðal ann­ars börn og segj­andi síðan í hinu orð­inu að við höfum lög­fest Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem er skýrt kveðið á um að hann gildi um öll börn í lög­sögu ríkis óháð því með hvaða hætti þau komu þangað og að allar ákvarð­anir sem varða heill og ham­ingju barna eigi að taka með hags­muni þeirra að leið­ar­ljósi.“

Þér tókst nú að vekja hraust­lega athygli á þessu.

Svo var meira að segja farið að velta upp til­finn­inga­lífi mínu eins og það var fyrir 20 árum.

„Athyglin fór á það hvað ég væri vondur maður, að ég væri að hóta hel­vít­is­vist, hvað til­finn­ingar ákveð­ins þing­flokks væru allt í einu orðnar særðar og hvað ég væri mik­ill ruddi. Og svo var meira að segja farið að velta upp til­finn­inga­lífi mínu eins og það var fyrir 20 árum. Erum við að að tala um hvernig við sem sam­fé­lag komum fram við þá sem höllustum fæti standa mitt á meðal okkar, við­kvæm­asta og veikasta hóp­inn, hóp sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér bók­staf­lega ein­fald­lega vegna þess að þau hafa ekki þann rétt einu sinni að höfða mál? Erum við að tala um það hvernig við sem sam­fé­lag komum fram við þá sem hvergi hafa höfði að halla eða eigum við að tala um það með hverjum ég bjó um síð­ustu alda­mót?“

Þá ertu að tala um Katrínu [Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra].

„Já. Ég sé eftir að hafa sett þetta fram. Ekki vegna þess að ég standi ekki við það sem ég sagði; orða­lagið var mjög óheflað. En það sem ég sé eftir er að við­brögðin urðu á þá lund að í stað­inn fyrir að fók­usera á það sem umræðu­efnið var þá fór það að fók­usera á mína per­sónu, mína sögu og minn tals­mála sem er algjör­lega óvið­kom­andi.“

Róttækari og rauðari

Davíð Þór hefur vænt­an­lega vakið hraust­lega athygli á málum þessa fólks.

„Já, ég vona það.“

Burtséð frá hel­vít­is­vist­inni og öllu því tali þá setti hann málin á dag­skrá; stjórn­völd virð­ast hafa hrokkið aðeins við.

„Biskup var nýbú­inn að senda frá sér yfir­lýs­ingu sem var efn­is­lega sam­hljóma því sem ég sagði nema að ég sagði það eins og tog­ara­sjó­maður.“

Það er fínt að vera tog­ara­sjó­maður.

„Og þá var hlustað.“

Sam­fé­lagið er á yfir­borð­inu slétt og fellt og dýru jepp­arnir eru komnir aftur og menn eru farnir að gambla í verð­bréfum. Sérð þú ein­hvern allt annan veru­leika? Er mikil neyð undir? Er mikil fátækt hjá fleirum kannski en hæl­is­leit­endum?

Ras­ist­arnir og útlend­inga­hat­ar­arnir eru ekki keyr­andi um á 20 millj­óna króna jeppum.

„Já, og það er það sem er svo hættu­legt. Ras­ist­arnir og útlend­inga­hat­ar­arnir eru ekki keyr­andi um á 20 millj­óna króna jeppum. Þeir eru að draga fram lífið á bótum, svelt­andi og horf­andi í hverja ein­ustu krónu. Við búum í sam­fé­lagi þar sem rík­asta pró­sentið er með allan auð­inn fyrir framan sig, allar kök­urnar nema eina: Sá sem verka­mað­ur­inn er með. Og ríki mað­ur­inn segir við verka­mann­inn: „Passaðu þig á útlend­ingnum, hann ætlar að taka kök­una af þér.“ Og þannig nær hann að sitja á toppnum og vera í friði og egna þessum hópum hvorum gegn öðrum. Maður skilur það ósköp vel. Þú átt ekki fyrir salti í graut­inn, þú átt ekki fyrir tóm­stundum fyrir börnin þín og þú átt ekki fyrir vetr­ar­flíkum handa þeim og svo sérðu í fréttum að það er verið að flytja hingað inn fólk frá Sýrlandi, flótta­menn, og Ell­ing­sen eru svo góðir að þeir gefa litlu flótta­börn­unum fínar Did­riksons-vetr­ar­úlpur sem þú getur ekki látið þig dreyma um að þú getir klætt börnin þín í.“

Þarna liggur kannski hluti af mein­inu.

„Þarna liggur meinið. Nákvæm­lega þarna. Ég verð alltaf rót­tæk­ari og rót­tæk­ari og rauð­ari og rauð­ari í póli­tík eftir því sem ég er prestur lenegur og sé betur og kynn­ist betur fólk­inu sem okkar kap­ít­al­íska hag­kerfi er að skilja út undan.“

Varst þú kannski ein­hvern tím­ann til hægri í póli­tík?

„Ég hef nú aldrei verið til hægri í póli­tík; reyndar alinn upp af for­manni Alþýðu­banda­lags­fé­lags Hafn­ar­fjarðar. En ég held ég hafi aldrei verið eins langt til vinstri og ég er í dag.“

Ég vil sjá okkur taka vel á móti fólki á flótta og sjá okkur setja stórfé í að hjálpa því að aðlag­ast.

Davíð Þór er spurður hvað hann vilji sjá breyt­ast.

„Ég vil sjá okkur taka vel á móti fólki á flótta og sjá okkur setja stórfé í að hjálpa því að aðlag­ast. Það er fjár­fest­ing í borg­urum, nýjum og nýtum borg­urum, vegna þess að okkur vantar mann­skap. Það hefur komið í ljós að það tekur tvö ár fyrir með­al­hæl­is­leit­and­ann að borga sig upp. Það er að segja hann er búinn að borga til baka það sem var sett í að hjálpa honum til að koma sér fyrir og aðlaga sig. Á tveimur árum er hann búinn að borga það til baka í tekju­sköttum og neyslu­sköttum. Ef hann á bíl sem eyðir miklu bens­íni þá ábyggi­lega miklu fyrr. Það þarf ekki einu sinni sér­stak­lega þol­in­mótt fjár­magn til að líta á það sem góða fjár­fest­ingu að taka á móti fólki og hjálpa því að koma sér hérna fyrir. Auðvitað þýðir það ekki að við eigum hér að opna dyr okkar fyrir hverjum sem er; ég meina, fólk þarf að laga sig að grund­vall­ar­reglum sam­fé­lags­ins. Ég er ekki að segja að taka upp íslenska menn­ingu. En það eru ákveðnir hlutir sem ég vil kalla ómenn­ingu sem tíðkast í sumum löndum eins og lýsir sér í kvenna­kúgun og nátt­úr­lega órétt­læt­an­legri afstöðu til hinsegin og kynsegin fólks og svo fram­vegis.“ Davíð Þór segir að það þurfi þá að segja að ákveðnir hlutir séu ekki í boði hér í sam­fé­lagi okkar.

Radíusbræður

Hvað var það sem kom Davíð Þór inn á þá braut að verða prestur?

„Það kann að virð­ast skrýtið af því að ég hlaut þannig séð ekki krist­legt eða kirkju­legt upp­eldi. Ég var ekki í KFUM eða sótti sunnu­daga­skóla. Ég ólst mikið upp hjá afa mínum og ömmu á Stóru-Fellsöxl í Borg­ar­firði. Þau voru 19. aldar fólk þannig að maður var signdur áður en maður var settur í ull­ar­bol­inn og bless­aður og þar með er það upp­talið sem er svo­lítið skrýtið af því að afa­bróðir minn var prestur en dó löngu áður en ég fædd­ist. Hann var mikið eldri en afi og afi fædd­ist árið 1894.

Mér hefur alltaf þótt trú og trú­ar­brögð mjög heill­andi fyr­ir­bæri bara sem partur af mann­legu sam­fé­lagi og því hvernig manns­sálin virkar. Mér fannst sem krakki að tíbeskir munkar hlytu að vera topp­ur­inn á því að vera á góðum stað and­lega. Hvort það var af því að ég las of mikið af Tinna í Tíbet eða hvað það var. Þegar ég var 12 ára máttum við skrifa rit­gerð um hvað sem við vildum og ég skrif­aði um trú­ar­brögð mann­kyns.

Ég heill­að­ist af alls konar nýald­ar­þvælu og vit­leysu.

En svo gerð­ist það að ég var mjög leit­andi sem ungur maður. Ég heill­að­ist af alls konar nýald­ar­þvælu og vit­leysu og var að stúd­era þetta þegar ég varð fyrir eins konar trú­ar­legri reynslu þegar ég var á sjónum og á sama tíma átti ég konu og hún varð barns­haf­andi að seinna barni okkar og ég fór að hugsa um að koma mér í land – ég var háseti á línu­báti frá Sand­gerði. Ég ætl­aði að fara í íslensku og fór niður í háskól­ann til að skrá mig í íslensku og sé þar bæk­ling um náms­efnið og þar var deild, guð­fræði­deild. Þannig að ég kíkti aðeins á náms­efnið. Ég átti góðan vin sem hafði verið í guð­fræði­námi en reyndar ekki lokið því. Mér hafði alltaf fund­ist þetta svo­lítið heill­andi fag og þar sá ég kúrsa eins og trú og þjóð­fé­lag Hebrea og saga og bók­menntir Hebrea og gríska og hebr­eska og sam­tíð­ar­saga Gamla testa­ment­is­ins. Mér fannst þetta bara svo heill­andi að ég skráði mig í guð­fræði. Þetta var haustið 1991.“

Davíð Þór Jónsson stund­aði nám við guð­fræði­deild Háskóla Íslands í tvö og hálft ár. Svo fór hann út í skemmt­ana­brans­ann.

Hugsaði með mér að guð­fræði­deildin yrði ekki lögð niður en þessi gluggi yrði ekki enda­laust opinn.

„Á meðan ég var í guð­fræð­inni sló í gegn útvarps­þáttur sem ég og félagi minn, Steinn Ármann, vorum með. Þannig urðu Rad­íus­bræður til. Það hafði alltaf blundað í mér draum­ur­inn um að verða leik­ari; ég hafði haft áhuga á leik­list. Ég sótti um ítrekað í Leik­list­ar­skóla Íslands. Ég komst þrjú ár í röð í loka­úr­takið án þess að kom­ast inn þannig að það var pass­legt þegar ég var búinn að gefa þann draum upp á bát­inn þá var ég kom­inn í þá stöðu eftir tvö og hálft ár í guð­fræð­inni að það var of mikið að vera í fullu námi og vera líka í „show business“. Þannig að ég varð að velja og hafna og hugs­aði með mér að guð­fræði­deildin yrði ekki lögð niður en þessi gluggi yrði ekki enda­laust opinn. Þannig að ég fór „all in“ í „show business“. Eitt leiddi af öðru og 13 árum síðar skráði ég mig aftur í guð­fræði og tók upp þráð­inn.“

Var of mikið

Þið voruð svo­lítið grófir.

„Við vorum það og lögðum upp með það. Við sögðum að það að panta Rad­íus­bræður að skemmta og kvarta yfir því að við værum grófir væri eins og að panta fata­fellu og verða reiður af því að hún fer úr föt­unum. En við vorum ekk­ert að finna þetta upp. Málið er að á þessum tíma í upp­hafi 10. ára­tug­ar­ins á Íslandi var íslenskt grín of svo­lítið á eftir með fullri virð­ingu fyrir þeim frá­bæru lista­mönnum sem þá voru að gera grín eins og Spaug­stofan, Gísli Rúnar, Halli og Laddi og Ómar Ragn­ars­son. Það var svo­lítið frétta­grín og grett, fettu og brettu­húmor en við Steinn höfðum verið að fylgj­ast með Monty Python sem er sýrður og steiktur húmor og við höfðum verið að horfa á mynd­bönd með erlendum uppi­stönd­urum eins og Eddie Murphy, Andrew Dice Clay, Billy Connolly og fleirum og þá var þetta bara línan að vera svona rosa­lega grófur. Við erum í raun og veru afsprengi af þess­ari alþjóð­legu bylgju af húmor sem þá var að ganga yfir heims­byggð­ina. Hún birt­ist í Rad­íus­bræðrum á Íslandi.“

Ég myndi fá aula­hroll.

Davíð Þór er spurður hvernig honum líði þegar hann horfir á þetta í dag.

„Sem betur fer geri ég það ekki. Og ég veit ekki til þess að það séu til neinar upp­tökur af okkur. Eitthvað gerðum við fyrir sjón­varp, en þá völdum við það mildasta fyrir það. Ég myndi fá aula­hroll og ég geri mér alveg grein fyrir því að mikið af Rad­íus­bræðra­húmornum hefur ekki elst neitt vel, enda var hann sam­inn fyrir stað og stund og snið­inn að stað og stund og var ekk­ert ætlað að verða eitt­hvað sígilt sem myndi 30 árum síðar enn þá vera hlegið að. Það var ekk­ert lagt upp með það. Jú, jú, ég gæti rifjað upp ein­hverja brand­ara og beðist afsök­unar á hommafor­dómum og kven­fyr­ir­litn­ingu og jafn­vel ras­isma í ein­hverjum brönd­urum. En þessi húmor var barn síns tíma og ég er ekki lengur þar. Þú bara heldur áfram.“

Þið voruð að gera út á ákveð­inn húmor og sjokkera. Þið voruð ekk­ert endi­lega ras­istar?

„Nei, maður fer bara í hlut­verk á svið­inu.“

Var meira að gera lítið úr og hæð­ast að.

Er eitt­hvað sem þú sérð eftir í ein­hverju uppi­stand­inu?

„Ég get alveg nefnt eitt­hvað. Svo verður fólk svo við­kvæmt. Já, já, ég get alveg nefnt ósmekk­legt grín sem ég gerði af frægu fólki sem ég hugsa eftir á að var eig­in­lega ekki í lagi. Var of mikið. Var í raun og veru kannski ekki fyndið; var meira að gera lítið úr og hæð­ast að. En ég sé enga ástæðu til að vera að rifja það upp. Það er bara búið. Þetta er í for­tíð­inni. Og ég er búinn að setja tapp­ann á í þessa flösku líka.“

Jú, séra Davíð Þór Jónsson er fyrr­ver­andi sjó­maður, fyrr­ver­andi skemmti­kraftur og svo er hann fyrr­ver­andi rit­stjóri tíma­rits­ins Bleikt og blátt.

„Málið er að vegna sögu minnar og for­tíðar þá fæ ég meiri athygli en margir kollegar mínir þó ég sé í raun og veru ekki að gera annað en að segja og gera það sama og þeir eru að gera. Það bara ratar ekki í blöðin þegar þeir gera það. Og því fylgir ákveðin ábyrgð.“ Davíð Þór segir að hann sé ekki eins rót­tækur og fram­sæk­inn og skeri sig úr eins og margir halda.

Dauðinn

Davíð Þór er spurður hvort fólk sé aldrei smeykt við hann; mann sem var með þennan rosa­lega húmor. Er fólk aldrei smeykt við að hann standi ekki undir nafni sem sálu­sorg­ari?

„Ábyggi­lega en það fólk leitar ekki til mín. Það leitar annað. Fólkið sem leitar til mín er voða mikið að leita til mín einmitt vegna þess að það veit hvaðan ég kem og það hefur heyrt mig tala. Partur af rang­hug­myndum sem fólk hefur um presta­stétt­ina er að fólk heldur að það mæti bara ein­hverju bæna­hjali og hall­elú­ja­tali þegar það fer að tala við prest um vanda­málin sín. En gagn­vart mér af ein­hverjum ástæðum virð­ist fólk nokkuð sann­fært um að það mæti ekki svo­leiðis lög­uðu.“

Hvað segir séra Davíð Þór við deyj­andi fólk? Hvað tekur við?

„Ég seti að ég geti ekki vitað það. Ég segi fólki það ekki. Ég spyr það hverju það trúi, hvað það haldi. Ég hjálpa deyj­andi fólki að vald­efla sig vegna þess að þetta er svo mikil sjálf­ræð­is­svipt­ing sem það stendur frammi fyrir þegar það fær þær fréttir að þetta sé að verða búið. Ég hef verið tek­inn í prufur af deyj­andi fólki; það hefur komið til mín og spjallað við  mig og útskýrt fyrir mér sína stöðu og við spjöllum saman og svo „ok, þú stóðst prófið“ Ég vil að þú jarð­syngir mig“.

Útför þess getur verið nákvæm­lega eins og það vill hafa hana.

Ég hef kynnst deyj­andi fólki. Það er búið að taka lífið af því og það er orðið leiksoppur afla og örlaga sem það hefur ekk­ert um að segja. Það getur tekið dauð­ann í sínar eigin hendur. Það getur ekki lifað á sínum eigin for­sendum en það getur dáið á sínum eigin for­sendum.“ Og Davíð Þór talar við deyj­andi fólk um vænt­an­lega útför þess. „Líf þess og dauði getur ekki orðið eftir höfði þess en útför þess getur verið nákvæm­lega eins og það vill hafa hana. Og ég hef orðið var við það að fólk sem er deyj­andi upp­lifir ákveðna reisn og ákveð­inn styrk í því.

Ég er ekk­ert að predika yfir fólki um það hvað bíður handan grafar og dauða vegna þess að við getum ekki vitað neitt um það og stað­reyndin er sú að ef þú ætlar að fara að leita að ein­hverju um það í Bibl­í­unni þá stendur það hvergi. Þú þarft að fara að beita túlkun á ritn­ing­ar­staði eins og himna­ríki. En Jesús sagði líka að himna­ríki væri mitt á meðal okkar eða hið innra með okkur. Þannig að í mínum huga tal­aði Jesús aldrei um himna­ríki sem ein­hvern áfanga­stað eftir dauð­ann. Hins vegar veit ég að dánu fólki líður ekki illa.“

Hvernig veistu það?

„Vegna þess að það er dáið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins