„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spaðinn leggur upp laupana – ætlaði að setja Dominos á hausinn

Spaðinn leggur upp laupana – ætlaði að setja Dominos á hausinn
Þórarinn Ævarsson. Mynd/skjá­skot RÚV Mynd: ruv

Veit­inga­stað­ur­inn Spaðinn hefur nú lokað eftir um tveggja ára starf­semi. Stað­ur­inn bauð upp á pitsur og hafði fram­kvæmda­stjóri stað­ar­ins hátt um það í við­tölum að ætla sér að setja pitsu­stað­inn Dominos á haus­inn.

Þórarinn Ævarson, fram­kvæmda­stjóri Spaðans, hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem segir að ekki hafi lengur verið rekstr­ar­grund­völlur fyrir starf­semi Spaðans. Því hafi síð­asti opn­un­ar­dagur veit­inga­stað­ar­ins verið í gær, sunnu­dag­inn 3. júlí. Vísir greinir frá lok­un­inni.

Þórarinn Ævarsson var fram­kvæmda­stjóri IKEA á Íslandi áður en hann opn­aði Spaðann. Áður en hann tók við taumunum hjá IKEA stýrði hann hins vegar Dominos, pitsu­staðnum sívin­sæla. Þegar Þórarinn opn­aði Spaðann fór hann mik­inn í fjöl­miðlum og sagð­ist meðal ann­ars ætla sér að keyra Dominos í þrot á fimm árum. Hann baðst síðar afsök­unar á ummæl­unum og sagði stór orð eiga það til að falla í hita leiks­ins. „Ástríða fyr­ir mál­efn­um á það til að hleypa manni kapp í kinn, svo ekki sé kveðið fast­ar að,“ sagði Þórarinn.

Upp úr þessu fór af stað það sem kallað var pitsu­stríð á Íslandi, þar sem Spaðinn fór meðal ann­ars að bjóða upp á þriðju­dagstil­boð sem Dominos reið á vaðið með á sínum tíma, en fleiri veit­inga­staðir höfðu tekið upp. Í verð­könnun Mannlífs síð­ast­liðið haust kom í ljós að Spaðinn bauð betur en Dominos á þriðju­dögum.

Í byrjun árs 2021 kom fram að fjár­festa­hópur sem Þórarinn fór fyrir var einn af þremur fjár­festa­hópum sem vildu kaupa rekstur Dominos á Íslandi. Að end­ingu var til­boð Birgis Þórs Bielt­vedt sam­þykkt.

Spaðinn bauð upp á pitsur á lægra verði en almennt þekkt­ist hér á landi, en Þórarinn hafði gagn­rýnt álagn­ingu Dominos, sem og ann­arra pitsu­staða, og sagt við­skipta­módel þeirra bæði stuðla að mat­ar­sóun og óheil­brigðum lífs­stíl, þar sem fólki væri yfir­leitt beint í þá átt að kaupa meira en það þyrfti.

„Skuldir Spaðans eru nær ein­vörð­ungu við eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins en þar sem rekstr­ar­grund­völlur er brost­inn er það mat eig­anda að rétt­ast sé að hætta starf­semi. Því var síð­asti starfs­dagur þess í gær, sunnu­dag­inn 3. júlí,“ segir í til­kynn­ingu Þórarins.

Spaðinn rak tvo veit­inga­staði, í Kópavogi og Hafn­ar­firði. Útibú Spaðans í Hafn­ar­firði lok­aði þó í maí síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins