„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Halldór Kristján Baldursson teiknari: Stundum í lagi að fara létt yfir strikið

Halldór Kristján Baldursson teiknari: Stundum í lagi að fara létt yfir strikið

Halldór Kristján Bald­urs­son teikn­ari ræðir við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um afleið­ingar þess að danskir teikn­arar teikn­uðu skop­myndir af Múhameð spá­manni og minnst er á tabú sem þarf að hugsa um. Hann tók við af Sigmund á Morg­un­blað­inu sem hann segir að hafi verið sitt „idol“ þegar hann var strákur. Davíð Oddsson varð svo rit­stjóri og segir Halldór að það hafi blasað við að póli­tík þeirra á leið­ar­a­síð­unni hafi ekki runnið vel saman. Halldór hætti síðar á Morg­un­blað­inu og fór yfir á Frétta­blaðið. Hann teikn­aði skop­mynd af Davíð eftir að hann hóf störf á sama vinnu­stað og segi Halldór að almennt megi stundum fara létt yfir strikið.

„Einhvern tím­ann á tíma­bili fékk maður skot frá kvóta­fólk­inu. Það fannst ég vera að mis­skilja svo­lítið. Veiði­gjöld og eitt­hvað þannig. Sendu mér bréf út af því. Ég reyni að skoða hluti frá mörgum hliðum og reyni oft­ast ekki að fella end­an­legan dóm heldur súmmera upp málið,“ segir Halldór Kristján Bald­urs­son teikn­ari í við­tali við Reyni Trausta­son.

Það er verið að drepa teikn­ara úti í heimi.

„Já, þessir dönsku teikn­arar voru hérna á árs­há­tíð í kringum 2007-8 og fóru mjög leynt og þorðu ekki að koma í við­töl,“ segir Halldór en árið 2006 birt­ist í Jylland­sposten skop­mynd af Múhameð spá­manni sem múslímar voru ekki sáttir við.

Það var búið að gefa á þá veiði­leyfi. Þetta er rosa­legt hatur. Skildir þú hvað er á bak við þetta?

„Ég skil ekki af hverju fólk gaf skop­mynd­inni þetta vægi.

Ef við förum í grunn­sög­una þá var verið að gefa út bækur í Danmörku um trú­ar­brögð og það var búið að gefa út eina um Búdda og þessi höf­undur vildi gera bók um Múhameð. Það hófst her­ferð gegn því af því að það má ekki teikna Múhameð og Jylland­sposten fékk teikn­ara til að teikna Múhameð í nafni tján­ing­ar­frels­is­ins. Þannig að þetta var ein­hvers konar ögrun gagn­vart því að þessi við­kom­andi höf­undur í landi sem metur tján­ing­ar­frelsið mik­ils fékk ekki að gefa út bók­ina sína. Og það var nýr veru­leiki fyrir Dani. Jylland­sposten fór út í þetta. Síðan gleymd­ist þessi for­saga með þessa bók. Og rit­stjóri Jylland­sposten sagði „hver vill teikna Múhameð? Okkur finnst það mik­il­vægt til þess að leggja áherslu á tján­ing­ar­frelsi teikn­ara.“ Síðan var þessu tekið sem mik­illi ögrun frá þeim sem eru íslams­trúar. Þetta bar blásið út og það var bætt við ljót­ari myndum. Í súp­unni sátu síðan þessir teikn­arar á end­anum. Margar af þessum myndum eru mjög sak­lausar. Aðrar hafa dálítið rasískt yfir­bragð. En alltaf þarf maður að hugsa hver er það sem ræður hvað við megum teikna; hvenær getur þú fært ný gildi yfir á sam­fé­lagið því við teiknum auð­vitað ekki hvað sem er. Ég er ekk­ert að teikna alla hvernig sem er. Það er alls konar tabú í gangi. Og þarna var búið að bæta við tabú sem við vorum nýbúin að losna við varð­andi kristn­ina; það mátti gera grín að kristn­inni sem mátti ekki ein­hverjum örfáum ára­tugum áður. Hvað þá öldum áður. Það hefur verið dauða­sök ein­hvern tím­ann.“

Það er hluti af okkar sam­fé­lagi svo­lítið að takast á við þessi tabú.

Jesús með brjóst.

„Já, akkúrat. Þá er kom­inn nýr flötur sem er trans­um­ræðan sem er við­kvæm í dag.“

Þetta er jarð­sprengju­svæði. Það eru tabú sem þú þarft alltaf að hugsa um.

„Já, það eru tabú. Það er hluti af okkar sam­fé­lagi svo­lítið að takast á við þessi tabú og reyna að melta hvað er við­eig­andi að gera og hvað ekki. Stundum vill maður kannski brjót­ast aðeins út úr því. Það eru ekki allir sam­mála. Það eru ekki allir sam­mála hvað er bannað og hvað er ekki bannað. Svona í prinsipp­inu viljum við meira frelsi.“

Halldór hefur teiknað Múhameð. Þá var Múhameð kom­inn til himna. „Það voru tvær myndir. Ég man ekki hvernig þær voru. Maður dælir út mynd eftir mynd eftir mynd og það er kannski til­viljun hvað það er sem fólk grípur,“ segir teikn­ar­inn og bætir við að það skipti almennt máli hver sér mynd­ina og ákveður að móðg­ast og gera frétt úr því; móðg­ast sam­kvæmt sínum gildum.

Geðheilsan eða lífsbaráttan

Halldór Kristján Bald­urs­son er Reyk­vík­ingur. Byrjaði ungur að teikna.

„Maður byrj­aði að mót­ast svo­lítið á bernsku­ár­unum. Barna­skóla­árin telj­ast vera mjög mót­andi. Ef ég rifja upp þá sem voru með mér í skóla; þeir eru jafn­vel að gera eitt­hvað svipað og þeir voru að gera í 11 ára bekk. Ég er búinn að rann­saka þetta aðeins. Þetta rataði aðeins inn í loka­verk­efnið mitt í list­kennslu­fræð­unum,“ segir Halldór sem er nýút­skrif­aður með meist­ara­nám. „Þar skoð­aði ég svo­lítið sjálfan mig og mína mennta­sögu í sam­hengi við list­kennslu­fræðin og fór að rifja upp skóla­göng­una. Það kom í ljós að allir gaur­arnir sem voru með mér í bekk eru meira og minna að gera það sama. Það er einn hjá Pfizer í dag og hann var nör­dinn í bekknum; lærði rosa­lega vel og kunni allt – alla stærð­fræði og líf­fræð­ina að sjálf­sögðu. Svo voru þrír með 10 í smíði og mjög flinkir og þeir fóru allir út í þetta. Ég var gaur­inn sem var að teikna myndir; fékk eitt­hvað út úr því að teikna skemmti­legar myndir. Það eru til myndir frá því ég var 11 ára. Mér finnst að mér hafi átt að fara meira fram þegar ég horfi á þetta. Ég fest­ist í að gera skemmti­legar myndir af kenn­ur­unum og maður fékk smá­hlátur.“

Ég ólst upp við ákveðna rót­tækni.

Halldór segir að fyrsta djobbið hafi hann fengið 12 ára gam­all. „Það kom í gegnum mág minn sem var að prenta Stétta­bar­átt­una þegar ég var 12 ára. Ég teikn­aði mynd í til­efni af 1. maí og þar var mynd af úti­fundi og það var einn hundur að horfa á. Þeir voru ekk­ert ánægðir með þetta í stjórn komm­ún­ista­hreyf­ing­ar­innar. Ég hélt alltaf að þetta hefði birst en ég fletti þessu upp ein­hvern tím­ann, blað­inu, af því að nú getur maður fundið þetta en ég fann hvergi þessa mynd. Mér skilst að hún hafi verið rit­skoðuð út. Þetta voru Marx-Lenínist­arnir. Eldri systk­ini mín voru í þessu. Ég ólst upp við ákveðna rót­tækni og þá kom hin hliðin inn – áhugi á póli­tík sem fór þá inn í skop­mynd­irnar sem er sam­bland af list og húmor þeim megin og svo póli­tík­inni hinum megin.“

Það hefur alltaf verið þannig að þú ert með boð­skap. Þetta er ekki bara eitt­hvað djók.

„Nei, það verður að vera í þessum myndum. Ég fer vítt og breitt. Ég tek bæði þessi póli­tísku átaka­mál og svo er ég aðeins í því sem fólk er að glíma við frá degi til dags. Ég tek stundum geð­heils­una með eða lífs­bar­átt­una á breið­ari grund­velli.“

Einhver kergja

Halldór byrj­aði að teikna fyrir Við­skipta­blaðið í kringum 1994. „2005 fór ég að gera þetta dag­lega fyrst fyrir Blaðið ef ein­hver man eftir því sem var frí­blað sem kom í sam­keppni við Frétta­blaðið og 24 stundir. Síðan rann það inn í Moggann. Ég kom inn á Moggann með Ólafi Steph­en­sen sem var rit­stjóri 24 stunda og tók síðan við Mogganum. Þannig að ég er eig­in­lega eini mað­ur­inn sem fékk vinnu í miðju hruni. Þetta var akkúrat í októ­ber 2008 sem ég fór þarna yfir.“

Þú tókst við af Sigmund.

„Ég tók við af Sigmund sem var mitt „idol“ í sjálfu sér. Ef þú talar um æsk­una þá hugsa ég að á ein­hverjum tíma­punkti 11-12 ára hafi ég viljað verða næsti Sigmund.“

Sem þú varðst svo.

„Ég bjóst ekk­ert þannig við því. Ég bjóst frekar við að verða arki­tekt eða eitt­hvað. Það var ákveðið að hann teikn­aði áfram í sunnu­dags­blaðið og ég átti að teikna á virkum dögum. En það var ein­hver kergja í kringum þetta. Ein­hverjir vildu ekki missa Sigmund sinn og hann var kannski ekki mjög sáttur heldur. Það kom verr út heldur en þetta stóð til. Ég held að þetta hafi verið pass­legt fyrir hann að kúpla niður í eina mynd á þessum tíma.“

En það varð ekk­ert.

„Hann hætti þá. Og ég tók þá við.“

Maður sá á net­inu að það voru ein­hverjir fúlir.

Varðstu fyrir ein­hverjum ónotum?

„Nei, ekk­ert per­sónu­lega. Maður sá á net­inu að það voru ein­hverjir fúlir. Maður skilur það ef manni fer að þykja vænt um eitt­hvað sem hefur alltaf verið. Fólk sem er íhalds­samt vill ekk­ert sleppa því sem hefur alltaf verið á staðnum. Það má ekki breyta borg­inni og það má ekki breyta líf­inu á neinn hátt.“

Að skrifa með strokleðri

Svo kom Davíð Oddsson á Moggann.

„Davíð tók við; ætli það hafi ekki verið 2009. Það var auð­vitað mik­ill styr í kringum það. Hann með sína for­sögu auð­vitað. Það fór ekk­ert vel í alla. Það var ekk­ert verið að ýta mér í burtu en það blasti hins vegar við að okkar póli­tík á leið­ar­a­síð­unni rann ekk­ert rosa­lega vel saman. Ég var á þessum tíma mjög Evr­ópu­sinn­aður og klass­ískt frjáls­lyndur svo­lítið; með ein­hverja sýn á lífið þannig. Hann er miklu íhalds­sam­ari maður. Icesave var þarna og mis­mun­andi skoð­anir á hvað átti að gera í því máli. Eig­in­lega fór manni að líða illa við að teikna mynd og svo voru Stak­steinar við hlið­ina á að segja eitt­hvað þver­öf­ugt. Ég var mjög hress með að fara yfir á Frétta­blaðið 2010.“

Hann var að skrifa með strokleðri.

Halldór teikn­aði Davíð í Morg­un­blaðið eftir að Davíð sett­ist þar í rit­stjórn­ar­stól­inn. „Ég teikn­aði Davíð; þetta er svo­lítið hart þegar ég hugsa um það eftir á. Textinn var Davíð end­ur­skrifar sög­una. Hann var að skrifa með strokleðri. Ég hélt samt vinn­unni áfram. Í eitt og hálft ár alla­vega.“

Var þetta ekki bara kjarni máls­ins?

„Jú, við skrifum öll sög­una. Við lifum öll í sitt­hvorri sög­unni svo­lítið. Við erum með okkar sögu. Og við skrifum okkar sögu. Hún stang­ast á við eitt­hvað annað. Sumt eru auð­vitað stað­reyndir. En mikið snýst um að velta upp við­horfum í sam­hengi við okkur sjálf. Og hann kom auð­vitað með allt aðra sýn en ég.“

Þetta er gamla sagan hálf­fullt / hálf­tómt. Sumir sjá það hálf­tómt. Aðrir hálf­fullt. Þannig að þú fórst ekk­ert ósáttur frá Davíð eða Mogganum?

„Nei, hann er nátt­úr­lega svo dul­ar­fullur, karl­inn. Ég hitti hann bara tvisvar þarna á þessum tíma.“

Það var ekki oftar.

„Nei, og það var vin­sam­legt.“

Maður hafði á til­finn­ing­unni að hann hefði húmor fyrir eins og þegar Spaug­stofan var að djöfl­ast á honum og ein­hverjum teikn­ingum því að flestir skilja það að með því að þú ert teikn­aður þá skiptir þú máli. Er það ekki?

„Jú, það er klass­ískt við­horf í póli­tík­inni að vilja komst í mynd. Af því að póli­tíska skop­myndin á svo djúpar rætur. Hún er alveg 2-300 ár aftur í tím­ann; kannski um alda­mótin 1800 sem þetta form skap­ast. Á þeim tíma voru ráða­menn kannski í vand­ræðum með það og reyndu jafn­vel að banna það eins og í Frakk­landi og setja lög um að það megi ekki gera skop­mynd af ein­hverjum nema með leyfi við­kom­andi. En smám saman vann þetta sér sess sem hluti af því að vera við­ur­kenndur; vald þitt sé við­ur­kennt myndi ég halda. Þannig að eftir því sem þú ert oftar í mynd því fleiri valda­stig færðu vænt­an­lega. Hann hefur held ég alveg skilið það þannig. Ég býst við því.“

Sumum finnst þeir sjálfir ein­hvern veg­inn algildur mæli­kvarði á hinar hrein­ustu dyggðir sam­an­ber þetta Múhameð­s­mál; teikn­ing­arnar.

Halldór segir að stundum finn­ist sér vera í lagi að fara létt yfir strikið. „Stundum þarf fólk að hafa þol fyrir því að eitt­hvað sé kannski ekki nógu gott, eitt­hvað gangi aðeins of langt og eitt­hvað sé ekki því að skapi. Fólk verður að hafa þol fyrir því en þannig er veru­leik­inn. Skop­myndir verða að fá að gera þetta líka. Sumum finnst þeir sjálfir ein­hvern veg­inn algildur mæli­kvarði á hinar hrein­ustu dyggðir sam­an­ber þetta Múhameð­s­mál; teikn­ing­arnar. Þeim finnst að þeirra hreina sýn á til­ver­una og algilda, góða sýn eigi bara að ráða og að það eigi ekki að gefa því séns að ein­hverjir aðrir geti haft að hluta til rétt fyrir sér.“

Fjölbreytt verkefni

Jú, Halldór er nýút­skrif­aður með kennslu­rétt­indi.

„Ég hef kennt í mörg ár; ég hef gert meira en að gera þessar skop­myndir í blöðin. Ég hef mynd­skreytt fjölda bóka og auk þess kennt teikn­ingu lengst af í Mynd­list­ar­skóla Reykja­víkur síð­ustu 15 árin og Lista­há­skól­anum eitt­hvað. Ég kláraði Mynd­lista- og hand­íða­skól­ann á sínum tíma og nennti alls ekki að vera í meira námi; mér fannst þetta bara orðið fínt. Það var þessi til­finn­ing að það væri alltaf verið að segja manni hvað maður átti að gera og maður sat bara á ein­hverjum stól. Maður er kannski svo­lítið und­ir­settur sem nem­andi. Manni fer að líða þannig. En þetta snýr öðru­vísi að manni þegar maður er kom­inn á sex­tugs­aldur. Þetta er síð­asti séns að fara í skóla ef maður hefur áhuga á því.“

Aðal­starfið er að teikna. „Ég er með fjórar myndir í Frétta­blað­inu í viku og eina í Við­skipta­blað­inu.“ Svo mynd­skreytir hann jú bækur – nokkrar á ári – og svo eru það alls konar verk­efni svo sem fyrir aug­lýs­inga­stofur. Og svo hefur hann kennt mód­el­teikn­ingu á kvöld­nám­skeiðum og mynd­skreyt­ingu.

Hægt er að sjá við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins