„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þorsteinn Úlfar ræktaði hamp í stofuglugganum: „Þetta var bara sjálfsvörn að skrifa þessa bók“

Þorsteinn Úlfar ræktaði hamp í stofuglugganum: „Þetta var bara sjálfsvörn að skrifa þessa bók“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er eng­inn annar en rit­höf­und­ur­inn, afglæpasinn­inn og hampakti­vist­inn Þor­steinn Úlfar Björns­son. Hér er brot úr við­tal­inu.

Þor­steinn sem hefur gefið út ógrynni af bókum tengdum gróðri og ræktun alls­konar og ber helst að nefna bæk­urnar Villi­garð­ur­inn og Funga sem er bók um sveppi. Þátt­ur­inn í Þvotta­hús­inu fjall­aði hins­vegar um hamp­inn eða Cannabis sativa eins og hann er nefndur.


Gaf út bók í sjálfs­vörn


Þor­steinn gaf út árið 1978 bók sem bar heitið Hampur, inni og úti rækt­un­ar­leið­bein­ingar. Sú bók er orðin að vissu költ fyr­ir­bæri í heimi hampakti­vista á Íslandi enda má segja að með útgáfu þess­arar bókar hafi Þor­steinn stimplað sig inn sem vissan frum­kvöðul á þessu sviði og verið langt á undan sinni sam­tíð. 

„Bókin er bara leið­bein­ingar um það hvernig þú eigir að rækta hamp­inn. Ég átti svona Dísa-páfa­gauk á þessum tíma og hann vildi ekki borða hamp­fræin, þau urðu eftir í skál­inni. Eins og ég geri með öll fræ sem ég fæ upp í hend­urnar, þá próf­aði ég að henda þeim í mold. Og það spruttu upp þessar líka fínu plöntur, æðis­lega fal­legar og ég komst fljótt að því að þetta væru hampp­löntur. Ég viss ekki einu sinni hvaða fræ þetta voru,“ sagði Þor­steinn um til­urð bók­ar­innar Hampur, inni og úti rækt­un­ar­leið­bein­ingar. „Ég og fyrri kona mín vorum nýflutt á Flyðru­granda 4 og bjuggum sem sagt á neðstu hæð­inni og höfðum smá prí­vat garð­skika og það var ekki búið að ganga frá lóð­inni. Þegar ég var búinn að lesa mér til um þessa jurt hugs­aði ég með sjálfum mér „Ég get búið til lim­gerði í kringum þennan blett okkar úr hampi. Og það skiptir engu máli þó hann drep­ist í haust, það verða settir upp runnar næsta vor“. Svo óx þetta bara hel­víti vel og ég setti stærstu plönt­una út í stofu­glugga og það liðu ein­hverjir tveir til þrír dagar og þá var fíkni­efna­lög­reglan mætt á stað­inn. Þannig að þetta var bara sjálfs­vörn að skrifa þessa bók.“

Illgresi and­skot­ans

Nú í lok Apríl gaf hann Þor­steinn út bók­ina Illgresi and­skot­ans. Bókin er ein alls­herjar hand­bók um hamp­inn, kanabínóð­ana sem hamp­inn inni­heldur sem og sögu hamps­ins og her­ferð­inni sem fyrir aðeins um 100 árum síðan var beitt í þeim til­gangi að sverta hann og gera ólög­legan. Þeir ræddu í við­tal­inu einmitt um það hvernig upp úr ald­ar­mót­unum 1900, hags­muna­að­ilar í papp­írs­iðn­aði og bind­indispost­ular settu af stað hreyf­ingu sem svo átti eftir að vinda upp á sig og gera hamp­inn ólög­legan. Það voru alls­konar for­dómar sem beindust að Mexíkóum sem hafði mikið um það að segja.

„1906 er byrjað að and­skot­ast í hamp­inum. Og hverjir stóðu þar í fram­lín­unni? Það voru trú­ar­of­stæk­is­menn og bind­indispost­ular. Engir aðrir. Og af hverju? Jú, „hel­víts Mexík­ó­arnir sem eru að týna bómull­ina í Suð­ur­ríkj­unum, þeir vilja ekki víma sig með áfengi, þeir eru að nota kanna­bis!“ Þeir höfuð engan áhuga á að víma sig með áfengi sem þeir höfuð hvort eð er ekki efni á, þetta óx villt,“ útskýrði Þor­steinn fyrir þeim Wiium bræðrum, um upp­haf for­dómanna gegn hamp­inum.

Stál­iðn­aður, textil, plast og pappír komu sterkt inn í bar­átt­una sem sterkir hags­mun­ar­að­ilar á móti allri hamp­rækt. Í ára­tugi hefur hamp­ur­inn og hans óend­an­legu mögu­leikar ein­fald­lega legið nán­ast í dvala sökum áróð­ur­her­ferðar hins kapital­íska iðn­aðar. 

Þetta er að breyt­ast en fyrir um þremur árum varð lög­legt að flytja inn iðn­að­ar­hamp­fræ sem er lög­legt til rækt­unar, THC inni­hald plönt­unar má ekki fara upp fyrir 0,2% sem að sögn Þor­steins er auð­velt að stýra í hönnun. Þor­steinn segir að í raun séu bara um eina plöntu ræða er talað er um iðn­að­ar­hamp og svo­kall­aðan lyfja­hamp. Eini mun­ur­inn er í raun bara inn­halds­munur á THC svona að mestu leiti, svo að tala um að það sé um tvær mis­mun­andi plöntur að ræða er kannski ekki rétt heldur eigi að tala frekar um mis­mun­andi afbrigði af sömu plöntu, Cannabis Sativa.

„Iðn­að­ar­hampur er það afbrigði af Cannabis Satvia sem búið er að rækta bara með skipu­lögðum hætti og hugs­an­lega með ein­hverju genafikti, ég veit það ekki, það er að minnsta kosti búið að rækta úr henni nán­ast alla fram­leiðslu á THC,“ útskýrir Þor­steinn fyrir bræðr­unum hvað iðn­að­ar­hampur í raun er.

Þennan athygl­is­verða þátt má sjá i heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan eða heyra á flestum streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu