„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pétur er ánægður með nýja stjórn Festi: „Það var enginn skotinn og skorinn alveg“

Pétur Þor­steins­son var staddur á hlut­hafa­fundi Festis sem hófst í morgun, þar sem ný stjórn félags­ins var kosin. Hann var á leið­inni út af fund­inum þegar blaða­maður Mannlífs náði tali af honum. Hann seg­ist ánægður með nýja stjórn.

„Ég held það, já.“ Hann vill ekki meina að um hall­ar­bylt­ingu hafi verið að ræða. „Nei, ekki sér­stök, voru ekki þrír af fimm sem voru inni? Þannig að það var eng­inn skot­inn og skor­inn alveg. En það er ágætt að þetta verði svona til þess að menn stoppi við og athugi sinn gang, að það verði ekki svona rosa­lega hratt farið eins og í þetta síð­asta.“

Hlut­hafa­fund­ur­inn var boð­aður í kjöl­far þess að Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni var sagt upp sem for­stjóra Festis. Ólga var sögð vera meðal hlut­hafa í félag­inu vegna ákvörð­unar stjórn­ar­innar og var greint frá því að hlut­haf­arnir hafi ekki fengið veður af upp­sögn­inni fyrr en til­kynn­ing um hana var send til Kaup­hall­ar­innar í byrjun júní. Raunar greindi stjórnin fyrst frá því að Eggert hefði sjálfur sagt starfi sínu lausu. Fljót­lega kom í ljós að svo hafði ekki verið, heldur hafði stjórnin átt frum­kvæði að upp­sögn­inni.

Eggert hafði starfað hjá Festi og for­vera félags­ins í 11 ár. Hann er sagður afar vel lið­inn, með gott orð­spor í starfi.

Pétur segir ekki mik­inn hita hafa verið í hlut­hafa­fund­inum. „Nei, nei, ekki var það nú. Það var sátt um þetta.“

Pétur var sá sem lagði það til að nafni félags­ins yrði breytt úr Festi í Sundrung, í ljósi und­an­far­inna atburða. Hann segir að fram að upp­sögn Eggerts hafi verið friður um félagið.

„Þessi fundur var hald­inn í kjöl­far upp­sagn­ar­innar til þess að menn gætu verið sátt­ari þegar uppi er staðið. Að þetta gerð­ist ekki aftur, þannig að það verði friður um starfið í fram­haldi en ekki eins og und­an­farnar umræður í fjöl­miðlum og á sund­ur­fé­lags­miðlum, ekki sam­fé­lags­miðlum, eins og kom fram í ræð­unni hjá mér; að það ætti að breyta nafn­inu í Sundrung.“

Pétur segir ekki ljóst hvort það standi til að reyna að ráða Eggert Þór aftur. „Ný stjórn tekur ákvörðun um það. Það er ekki neitt sem ég veit um.“

Pétur lagði það sjálfur til á fund­inum að til­laga hans um nafna­breyt­ingu yrði felld.

Pétur Þor­steins­son

Nýja stjórn Festis skipa:

Margrét Guð­munds­dóttir

Magnús Júl­í­us­son – nýr með­limur

Sig­ur­lína Ingv­ars­dóttir – nýr með­limur

Guðjón Reyn­is­son

Hjör­leifur Pálsson – nýr með­limur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins