„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vilja skoða hvort leyfa eigi melatónín – Mikið um innflutning frá nágrannalöndum

Vilja skoða hvort leyfa eigi melatónín – Mikið um innflutning frá nágrannalöndum

Mat­væla­stofnun hefur óskað eftir áliti Lyfja­stofn­unar á því hvort melatónín skuli áfram flokk­ast sem lyf hér­lendis. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Melatónín hefur fram að þessu verið flokkað sem lyf hér á landi og því bannað í mat­vælum og ekki fáan­legt sem fæðu­bót­ar­efni. Efnið er hins vegar leyfi­legt ann­ars­staðar í Evrópu og fæst lög­lega í formi fæðu­bót­ar­efna. Færst hefur í auk­ana að lagt sé hald á efni sem inni­halda melatónín hér á landi.

Melatónín er hormón sem hefur áhrif á svefn okkar. Það á þátt í að stilla af eðl­is­læga klukku okkar og stuðlar að því að okkur syfjar á heppi­legum tíma á kvöldin og erum vak­andi yfir dag­inn.

Hér á landi eru lyf sem inni­halda melatónín lyf­seð­ils­skyld. Slík lyf eru með mark­aðs­leyfi fyrir melatónín í 1 mg magni upp í 5 mg í dag­skammti.

Víða um Evrópu, sem og í Banda­ríkj­unum, er melatónín hins vegar notað í fæðu­bót­ar­efni. Í Banda­ríkj­unum er efnið fáan­legt í hærri dag­skömmtum en hér á landi, allt frá 0,5 mg upp í 10 mg í dag­skammti. Í þeim Evr­ópu­löndum þar sem efnið er fáan­legt sem fæðu­bót­ar­efni er hægt að finna það í allt að 2 mg í dag­skammti.

Sú stað­reynd að melatónín sé lög­lega fáan­legt sem fæðu­bót­ar­efni víða í löndum í kringum okkur gerir það að verkum að inn­flutn­ingur á fæðu­bót­ar­efnum sem inni­halda melatónín hefur færst í auk­ana.

Í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­unar segir að stofn­unin hafi óskað eftir áliti Lyfja­stofn­unar um það hvort melatónín skuli áfram flokk­ast sem lyf hér á landi. Samkvæmt mat­væla­lögum ber Lyfja­stofnun að skera úr um þegar vafi leikur á því hvort ein­stök efna­sam­bönd telj­ist lyf.

„End­ur­skoðun á skil­grein­ingu og setn­ing hámarks dag­skammts melatóníns í fæðu­bót­ar­efni hér á landi er mik­il­vægt skref í því að tryggja öryggi neyt­enda í land­inu og koma í veg fyrir ólög­mæta hindrun á mark­aðs­setn­ingu lög­lega fram­leidds melatóníns, sem fæðu­bót­ar­efni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins