„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heilbrigðisstofnanir beri ábyrgð alvarlegra mistaka en ekki starfsfólkið

Heilbrigðisstofnanir beri ábyrgð alvarlegra mistaka en ekki starfsfólkið
Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra, hefur lagt til breyt­ingar á lögum Mynd/skjá­skot RÚV.

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram ný áform þess efnis að heil­brigð­is­stofn­anir skulu sæta refsi­á­byrgðar ef kerf­is­legur vandi leiðir til alvar­legra atvika. Breyt­ingin væri tals­verð fyrir starfs­menn stofn­an­anna en ein­staka heil­brigð­is­starfs­menn bera ábyrgð­ina í dag.

Þá segir í áformum Heil­brigð­is­ráðu­neytis: „Með því að breyta reglum verður unnt að koma fram refsi­á­byrgð á hendur heil­brigð­is­stofn­unum, fremur en ein­staka heil­brigð­is­starfs­fólki, þegar óvænt atvik leiða til dauðs­falls eða stór­fellds lík­ams­tjóns, enda megi rekja atvikið til margra sam­verk­andi þátta í starf­semi heil­brigð­is­stofn­unar.“

Bætt öryggi sjúklinga og réttaröryggi starfsmanna

Með bættu öryggi sjúk­linga er átt við að þeir hljóti ekki skaða af þjón­ustu sem ætlað er að bæta heilsu þeirra. Lagt verði upp með að auka öryggi sjúk­linga með efl­ingu örygg­is­menn­ingar innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og fækkun óvæntra atvika sem hafa alvar­legar afleið­ingar í för með sér.

Talið er að breyt­ingar lag­anna myndi bæta starfs­um­hverfi starfs­fólks­ins með skýr­ara og auknu réttr­ar­ör­yggi.

Tilkynningarskylda og rannsóknir

„Jafn­framt er til athug­unar að gera breyt­ingar á reglum um til­kynn­ing­ar­skyldu og rann­sókn óvæntra atvika þannig að hún fari fyrst og fremst fram hjá emb­ætti land­læknis en ekki einnig hjá lög­reglu. Embætti land­læknis geti hins vegar kært mál til lög­reglu þegar grunur er um stór­kost­legt gáleysi eða ásetn­ing. Hins vegar er ekki ætl­unin að breyta þeirri fag­legu og starfs­manna­rétt­ar­legu ábyrgð sem heil­brigð­is­starfs­fólk í þessum til­vikum þarf að bera og getur komið fram í við­ur­lögum af hálfu vinnu­veit­anda eða emb­ættis land­læknis, s.s. með áminn­ingu, starfs­missi eða svipt­ingu rétt­inda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins