„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Namibíumenn æfareiðir: Brynjar ritari sendur í stað dómsmálaráðherra

Namibíumenn æfareiðir: Brynjar ritari sendur í stað dómsmálaráðherra
Brynjar Níelsson, aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra. Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra og vara­for­seti stjórna­mála­flokks­ins Swapo, Netumbo Nandi-Ndaiwah. Samsett mynd

Sam­herj­a­málið, ósvífni íslenskra ráða­manna og íslensk spill­ing er tekin fyrir á for­síðu namibíska dag­blaðs­ins Sun í dag. Mikil óánægja er innan nambísku rík­i­s­tjórn­ar­innar með það hvernig íslensk stjórn­völd hafa tekið á mál­inu, eða frekar ekki tekið á því. Namib­íu­menn skilja ekki seina­gang­inn og hvers vegna málið er ekki tekið af alvöru á Íslandi.

Nefnd á vegum namibískra stjórn­valda var send til Íslands, þar sem von­ast var til að fá helstu yfir­menn Samherja fram­selda. Ef marka má tíð­indi blaðs­ins í dag, þá segir að ferðin hafi ekki skilað því sem þeir hafi falist eftir, þ.e. að fá Aðal­stein Helgason, Egil Helga Árnason og Ingvar Júl­í­us­son höf­uð­paura Sam­herj­a­máls­ins fram­selda.

Namib­íu­menn upp­lifa að komið sé fram við þá af miklu virð­ing­ar­leysi. Þá hafi Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra ekki mætt á fund­inn með namibísku nefnd­inni, heldur hafi hann sent Brynjar Níelsson aðstoð­ar­mann og rit­ara í sinn stað. Í blað­inu segir: „að þessi fram­koma sé túlkuð sem virð­ing­ar­leysi, þar sem aðstoð­ar­maður ráð­herra hafi í raun ekk­ert stjórn­sýslu­vald og ætti ekki að vera lát­inn sjá um mál að svo alvar­legum toga.“

Íslenskir ráðherra koma fram af ósvífni

Namibíska nefndin var skipuð; Nandi-Ndaitwah, Martha Imalwa, aðal­sak­sókn­ara og Erna Van der Merwe, fram­kvæmda­stjóra Anti-Corruption Commission (ACC).

Skrif­stofa Transperency International Iceland hafa líka sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem íslensk stjórn­völd eru sökuð um áhuga­leysi og skort á vilja til að leysa úr þessu máli póli­tískt. Að þeirra mati hafa íslensk stjórn­völd engan áhuga á því að taka á spill­ing­unni. Þar segir að; „ráð­herrar komi fram af ósvífni og sýni engan vilja til að taka á spill­ing­unni.“

Vara­for­maður stjórna­mála­flokks­ins Swapo, (stjórn­mála­flokkur sem hefur setið við stjórn rík­is­ins frá því að Namibía hlaut sjálf­stæði árið 1990) Netumbo Nandi-Ndaiwah segir í við­tali við Nambian Sun; „að þau munu leita réttar síns í þessu máli og að þau munu ekki standa hjá. Tveir fyrrum ráð­herrar í namibísku stjórn­inni eru nú þegar í gæslu­varð­haldi og bíða eftir að dómur falli í þeirra máli.“ Netumbo segir að lokum; „að málið sé litið mjög alvar­legum augum.“

Störfin voru tekin af namibískum sjómönnum

Margir hafa misst störfin sín í Namibíu eftir að fiskikvótar voru teknir af namibískum sjó­mönnum og færðir í hendur á rík­is­fyr­ir­tæk­inu, National Fishing Corporation of Namibia, þar sem meintar mútur Samherja áttu sér stað.

Nandi-Ndaitwah sagði þetta svaka­lega mik­inn skandal fyrir nambísku þjóð­ina. „Það hafði gengið svo vel hjá okkur að byggja upp landið og þá sér­stak­lega sjáv­ar­út­veg­inn. Þetta byrj­aði mjög vel hjá okkur og hefur sjáv­ar­tút­veg­ur­inn verið horn­steinn í upp­bygg­ingu efna­hag lands­ins. Því miður þar sem að margir virð­ast líta öfund­ar­augum á Namibíu og auð­lindir þessa lands, hefur okkar eigið fólk verið snúið gegn okkur og notað til þess að grafa undan sjáv­ar­út­vegnum. En við búum við lög og reglur í okkar landi. Tveir af okkar ráð­herrum sitja nú í fang­elsi vegna þessa máls, sem sýnir að við stöndum ekki með spill­ingu og það sem er rangt er rangt og það verður ekki frá því litið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins