„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Drífa Snædal hrökklast úr embætti forseta ASÍ: „Ókleift að starfa áfram sem forseti“

Drífa Snædal hrökklast úr embætti forseta ASÍ: „Ókleift að starfa áfram sem forseti“
Drífa Snædal og Sólveig Anna hafa staðið í lillindum.

„Ég hef ákveðið að segja af mér emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og þeim trún­að­ar­stöðum sem ég hef gegnt sem for­seti,“ segir Drífa Snædal í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér fyrir stundu.Ákvörðun Drífu kemur nokkuð á óvart, enda aðeins tveir mán­uðir í aðal­fund Alþýðu­sam­bands Íslands þar sem fram fer stjórn­ar­kjör. Skýringu á afsögn­inni er er að finna í

heift­úð­ugum átökum

hennar og Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar. Eldar óvildar hafa logað milli Drífu og hennar. Drífa seg­ist hafa öfl­ugan stuðn­ing en það dugi ekki til.„Ég veit að ég nýt mik­ils stuðn­ings félaga og í sam­fé­lag­inu og fyrir það er ég þakk­lát. Það eru hins vegar sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem for­seti ASÍ,“ skrifar hún.Drífa sendir Sólveigu Önnu og Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, svo pillu í yfir­lýs­ing­unni og vísar til þess þegar allt starfs­fólk Eflingar var rekið.„Þegar stjórn Eflingar stóð fyrir hóp­upp­sögn á skrif­stofu félags­ins sá ég mig knúna til að mót­mæla þeim, enda hefur verka­lýðs­hreyf­ingin barist gegn hóp­upp­sögnum í tím­ans rás. Ég þurfti einnig að bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í sam­skiptum hvert við annað innan hreyf­ing­ar­innar er henni ekki til fram­dráttar og félögum ekki til hags­bóta,“ skrifar hún.Yfir­lýs­ing Drífu í heild sinni.Ég hef ákveðið að segja af mér emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og þeim trún­að­ar­stöðum sem ég hef gegnt sem for­seti. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Þing ASÍ er í byrjun októ­ber og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugs­aði málið varð nið­ur­staða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skyn­sam­legt í ljósi kjara­við­ræðna og und­ir­bún­ing þings­ins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mik­ils stuðn­ings félaga og í sam­fé­lag­inu og fyrir það er ég þakk­lát. Það eru hins vegar sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem for­seti ASÍ.Ég hef ekki vílað fyrir mér að taka slag­inn fyrir launa­fólk gagn­vart stjórn­völdum eða atvinnu­rek­endum enda er það hluti af því að vera í verka­lýðs­bar­áttu. Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbæri­leg og dregið úr vinn­u­gleði og bar­áttu­anda. Þegar við bæt­ast ákvarð­anir og áherslur ein­stakra stétt­ar­fé­laga sem fara þvert gegn minni sann­fær­ingu er ljóst að mér er ekki til set­unnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki sam­leið með í bar­átt­unni. Og ég hef sem for­seti verið í þeirri stöðu sem ég ætl­aði mér aldrei; að telja mig ekki eiga ann­ars kost en að gagn­rýna stjórn­ar­á­kvarð­anir og for­menn stærstu stétt­ar­fé­laga innan ASÍ. Þegar stjórn Eflingar stóð fyrir hóp­upp­sögn á skrif­stofu félags­ins sá ég mig knúna til að mót­mæla þeim, enda hefur verka­lýðs­hreyf­ingin barist gegn hóp­upp­sögnum í tím­ans rás. Ég þurfti einnig að bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í sam­skiptum hvert við annað innan hreyf­ing­ar­innar er henni ekki til fram­dráttar og félögum ekki til hags­bóta.Verka­lýðs­hreyf­ingin er ein merki­leg­asta mann­rétt­inda­hreyf­ing heims og hjarta mitt hefur slegið þar og mun gera það áfram. Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem for­seti ASÍ. Þá er hrein­leg­ast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af ein­hverri stærri fléttu, ég ein­fald­lega hverf af þessum vett­vangi án þess að hyggja á end­ur­komu.Stuðn­ings­fólki mínu þakka ég af öllu hjarta og bið um skiln­ing á þess­ari ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins