„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sölvi Tryggvason snýr aftur og ræðir við Núma: „Ég lenti á botninum og var hættur að geta andað“

Sölvi Tryggvason snýr aftur og ræðir við Núma: „Ég lenti á botninum og var hættur að geta andað“

„Ég lenti á botn­inum. Hvort sem við köllum það burnout eða eitt­hvað annað, þá var hrað­inn á mér búinn að vera allt of mik­ill. Ég var búinn að æfa tvisvar á dag nán­ast allt mitt líf og svo var ég að læra, eign­ast börn og að reka fyr­ir­tæki. Þetta var bara of mikið og ég náði engum tíma fyrir mig og ég var eig­in­lega bara hættur að geta andað,“ segir Númi Katrín­ar­son, nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar.

Númi, sem er þraut­reyndur íþrótta­maður og eig­andi lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Grandi 101, þurfti að end­ur­skoða líf sitt fyrir nokkrum árið eftir að hafa hrunið and­lega og lík­am­lega.

„Það er kannski ekki nema von að maður fari í þessa átt miðað við skil­yrð­ing­arnar. Manni hefur bara verið kennt að vera karl­maður, slá í borðið og drekka meira kaffi og halda áfram og ég var alltaf bara þannig. Ég neydd­ist til að end­ur­skoða mjög margt í mínu lífi eftir þetta tíma­bil og þurfti að hægja all­veru­lega á mér,“ segir Númi, sem seg­ist sjá það vel í störfum sínum hve stór hluti Íslend­inga sé fastur í streitu­á­standi:

„Við gefum okkur fæst almenni­legan tíma og rými til að hægja á okkur og spyrja okkur hvort við séum að gera það sem við viljum gera í líf­inu og hvort við séum að fara í rétta átt. Það er svo mik­il­vægt að jarð­tengja sig mjög reglu­lega, ná að hlusta á inn­sæið og gefa sér rými. Svörin eru öll innra með okkur og lík­am­inn er svona „heal­ing machine“ ef við hlustum almenni­lega á hvað hann er að reyna að segja okkur. Í nútím­anum er áreitið á okkur svo mikið og svo setjum við lík­amann úr jafn­vægi með alls konar áráttu­kenndri hegðun varð­andi mat og annað. Þá endar það bara með því að við erum ein­fald­lega hætt að leyfa lík­am­anum að vinna sína vinnu í friði,“ segir Númi.

Hann segor fólk yfir­leitt ekki á að taka heils­una alvar­lega fyrr en hún gefur sig.

„Svo endum við flest á að átta okkur á því að við þurfum að koma okkur út í nátt­úr­una, borða nátt­úru­legan mat og hægja á okkur. Því miður ger­ist það oft ekki fyrr en allt of seint.“

Hér að neðan má sjá brot úr næstu þáttum Sölva. Viðtalið við Núma og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins