„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í fyrsta sinni áfangaheimili fyrir konur í Reykjavík: „Boðið skjól og öryggi“

Í fyrsta sinni áfangaheimili fyrir konur í Reykjavík: „Boðið skjól og öryggi“
Séð inn í íbúð hjá einum íbúa áfanga­heim­il­is­ins. Mynd/skjá­skot. Vefur Reykja­vík­ur­borgar

Reykja­vík­ur­borg var að opna fyrsta áfanga­heim­ilið fyrir konur og er það til húsa að Njáls­götu í Reykja­vík. Í hús­inu eru þrettán ein­stak­lings­í­búðir, ein starfs­manna­í­búð og sam­eig­in­legt rými.

„Opnun áfanga­heim­il­is­ins er mik­il­vægur liður í því að bæta þjón­ustu við heim­il­is­lausar konur í Reykja­vík. Þeim boðið skjól og öryggi þar sem þeim er mætt á þeirra for­sendum,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri afhendir Guðrúnu Þorgerði Ágúst­dóttur blóm­vönd í til­efni opn­unar áfanga­heim­il­is­ins. Mynd/skjá­skot. Vefur Reykja­vík­ur­borgar

Upp­bygg­ing þjón­ustu við heim­il­is­lausa í Reykja­vík hefur á und­an­förnum árum verið frekar sniðin að þörfum karla en kvenna, líkt og fram kemur í stefnu Reykja­vík­ur­borgar um mál­efni heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir.

Unnið með áfallamiðaða hugmyndafræði

Mark­miðið er að veita ein­stak­lingum sem hætt hafa neyslu öruggt heim­ili, stuðn­ing og aðhald meðan þeir aðlag­ast sam­fé­lag­inu á nýjan leik. Á vef Reykja­vík­ur­borgar segir að á áfanga­heim­il­inu verði unnið eftir áfalla­mið­aðri hug­mynda­fræði með náinni sam­vinnu við Mið­stöðvar vel­ferð­ar­sviðs og við­kom­andi með­ferð­ar­að­ila.

Heimilið er tíma­bundið hús­næði og hugsað til þess að leysa bráðan hús­næð­is­vanda þeirra sem hafa átt við áfengis- og annan vímu­efna­vanda að stríða og eru í virkri end­ur­hæf­ingu eftir með­ferð.

Guðrún Þor­gerður Ágústs­dóttir, félags­ráð­gjafi, er for­stöðu­kona áfanga­heim­il­is­ins, en hún hefur unnið með ein­stak­lingum sem hafa glímt við áfengis og vímu­efna­vanda. Guðrún starfar einnig sem for­stöðu­maður áfanga­heim­ils­ins Brautin, sem er fyrir karla sem lokið hafa áfengis- og vímu­efna­með­ferð.

Áætlaður kostn­aður vegna rekst­urs áfanga­heim­il­is­ins verði allt að 25 millj­ónir króna á ári og er þá miðað við að for­stöðu­maður sé í dag­vinnu og félags­ráð­gjafi í hálfu starfi.

Í Reykja­vík er nú starf­rækt níu áfanga­heim­ili sem ýmist eru rekin af félaga­sam­tökum eða af Reykja­vík­ur­borg. Áfanga­heim­ilin rýma um  það bil 200 ein­stak­linga og eru Njáls­gatan og Brautin rekin af Virkni­húsi. Reykja­vík­ur­borg telur reynsl­una af áfanga­heim­il­inu Braut­inni sýna að afar mik­il­vægt sé að tryggja að til staðar séu ein­stak­lings­á­ætl­anir um virkni og bata, sam­hliða því að tryggja öruggt hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins