„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Greiða eigi foreldrum bætur í leikskólamálinu – stétt dagforeldra útrýmt

Greiða eigi foreldrum bætur í leikskólamálinu – stétt dagforeldra útrýmt
Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi fyrir hönd Flokk fólks­ins. Samsett mynd

Í til­kynn­ingu frá Flokk fólks­ins sem send var Mannlífi í dag, segir að flokk­ur­inn taki undir til­lögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að greiða for­eldrum bætur sem eiga börn á aldr­inum 12 mán­aða eða eldri og eru enn á biðlista eftir leik­skóla­plássi.

Grípa þarf til fjöl­þættra úrræða til að ná utan um það neyð­ar­á­stand sem mynd­ast hefur vegna skorts á leik­skóla­plássum. Flokkur fólks­ins hefur áður talað fyrir því að veita neyð­ar­styrki til for­eldra sem eru verst settir. Ekki allir for­eldrar eiga stuðn­ings­net í Reykja­vík og hafa því engan til að hlaupa undir bagga. Horfa þarf til þeirra sem eru efna­litlir og fátækir og veita þeim sér­stakan stuðn­ing.

Stétt dagforeldra útrýmt

Flokkur fólks­ins hefur einnig gagn­rýnt harð­lega hvernig búið er að fara með stétt dag­for­eldra. Henni hefur nán­ast verið útrýmt því talið var að verk­efnið „Brúum bilið“ væri handan við hornið. Slík var van­á­ætl­unin hjá síð­asta meiri­hluta.

Styrkja þarf dag­for­eldra með öllum ráðum því nú er sann­ar­lega mikil þörf á þess­ari stétt sem hefur skipað mik­il­vægan sess í gæslu barna svo lengi sem elstu menn muna.

Flokkur fólks­ins hefur einnig lagt til úrræði um heima­greiðslur sem jafn­gildir nið­ur­greiðslum Reykja­vík­ur­borgar fyrir leik­skóla­pláss fyrstu tvö árin. Ein­hverjir for­eldrar hafa tæki­færi til að vera heima hjá barni sínu fyrstu miss­erin og geta vel hugsað sér að þiggja mán­að­ar­legar greiðslur frekar en að þiggja leik­skóla­pláss. Úrræði um heima­greiðslur mun senni­lega létta á biðlistum og gætu for­eldrar átt þess kost að vera heima hjá barni sínu í allt að tvö ár.

Rótgróinn mannekluvandi

Það sem þó stendur upp úr í öllu þessu er hinn rót­gróni mann­eklu­vandi. Það verður að lag­færa launin, það er grunnur að því að þessi störf eru ekki eft­ir­sókn­ar­verð­ari. Ef þessu vand­ræða­á­standi verður ekki aflétt munu for­eldrar barna á bið eftir plássi ekki kom­ast til vinnu sinnar.

Sagt að unnið sé hörðum höndum að tryggja mönnun hjá skóla- og frí­stunda­sviði. En hvað felst í því nákvæm­lega? Þetta hefur verið við­kvæðið í mörg ár, að verið sé að vinna að því að tryggja mönnun. En svona er staðan samt.

Á sama tíma er fólki yfir 70 ára aldri meinað að vinna eftir þann aldur en meðal þess ald­urs­hóps er að finna fjár­sjóð af mannauði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins