„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ef fyrirtæki upplýsir ekki um skrópgjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið“

„Ef fyrirtæki upplýsir ekki um skrópgjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið“
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir sam­tökin skoða hvert til­felli fyrir sig, sem berst þeim vegna svo­kall­aðra skróp­gjalda þjón­ustu­að­ila. Skróp við­skipta­vina eru sögð stærsta vanda­málið í þjón­ustu, en mikið tekju­tap sé vegna þeirra á ári hverju. Margir þjón­ustu­að­ilar rukka því skróp­gjöld, til­kynni við­skipta­vinir ekki um for­föll tím­an­lega. Mik­il­vægt er að sann­girni sé gætt beggja vegna borðs­ins.

Rukkaður um skrópgjald án skýringa

Í frétt sem birt­ist í gær var sagt frá manni sem var rukk­aður um skróp­gjald vegna tíma sem barn hans átti á snyrti­stofu. Reikn­ingnum fylgdu hins vegar engar skýr­ingar og mað­ur­inn varð að afla sér upp­lýs­inga sjálfur. Auk þess var reikn­ing­ur­inn dag­settur fjóra mán­uði aftur í tím­ann. Maðurinn segir lík­legt að mis­tök hafi verið gerð, þar sem barn hans hafi sann­ar­lega nýtt tím­ann. Hins vegar var hann gagn­rýn­inn á upp­lýs­inga­leysið og velti því í fram­hald­inu upp hvort hver sem er gæti sent reikn­ing á hvern sem honum hugn­að­ist, án nokk­urs rök­stuðn­ings.

Hann velti einnig fyrir sér skróp­gjöldum í laga­legu til­liti; hvort tímapant­anir væru bind­andi við­skipta­samn­ingar og hvort um lög­mæta við­skipta­hætti væri að ræða.

Verða að upplýsa um skrópgjald

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, segir í sam­tali við Mannlíf að í raun sé ekki hægt að setja út á skróp­gjöld sem slík. „Það er eðli­legt að fyr­ir­tæki reyni að tryggja að tímar séu nýttir og við vitum að skróp­gjöld tíðkast víða. Ef hins vegar fyr­ir­tæki upp­lýsir ekki um skróp­gjald er því ekki stætt á að inn­heimta gjaldið.“

Mörg fyr­ir­tæki krefj­ast þess að við­skipta­vinir afbóki tíma ekki seinna en með sól­ar­hrings fyr­ir­vara. Þótt það sé ef til vill eðli­legt í mörgum til­vikum er það ekki alltaf raun­hæft. Ýmislegt óvænt getur komið upp á, til að mynda veik­indi.

Aðspurður hvernig þessar kröfur og tímara­mm­inn horfi við honum segir Breki að vissu­lega geti verið til­felli þar sem fyr­ir­tæki gangi of langt, og stundum megi nýta tím­ana fyrir fólk á biðlista, til að mynda á snyrti­stofum, hjá tann­læknum, sjúkra­þjálf­urum og á nudd­stofum.

„Ef fyr­ir­tæki nær að nýta tím­ann væri óeðli­legt að inn­heimta líka skróp­gjald. Þá finnst okkur líka skipta máli hvort um er að ræða óvænt veik­indi sem upp­lýst er um fyr­ir­fram eða hvort neyt­andi ein­fald­lega mæti ekki án nokk­urra skýr­inga.

Að þessu sögðu þá skoðum við hvert til­felli fyrir sig, svo sem hvort gjaldið sé óeðli­lega hátt, hversu snemma er látið vita um for­föll og hvort neyt­andi hafi verið upp­lýstur um skróp­gjald.“

Þegar blaða­maður spyr Breka um kröfur í net­banka, líkt og þá sem mað­ur­inn lýsti, segir hann að í raun sé ekki hægt að koma í veg fyrir slíkt „ef fyr­ir­tækið telur sig eiga kröfu á neyt­and­ann.“ Hann tekur þó fram að neyt­endur eigi alltaf rétt á því að vita fyrir hvað sé rukkað.

„Hins vegar er skrýtið að reikn­ing­ur­inn hafi farið á föð­ur­inn án þess að hann hafi vitað af því, þar sem ekki er hægt að stofna kröfu í heima­banka nema kennitala liggi fyrir. Þá er ekki hægt að stofna kröfu á ólög­ráða börn,“ segir Breki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Önnur Til hamingju vara innkölluð – Inniheldur ofnæmisvald
InnlentNeytendamál

Önnur Til ham­ingju vara inn­kölluð – Inni­heldur ofnæm­is­vald

Önnur vara frá Til ham­ingju hefur verið inn­kölluð en í þetta sinn er um að ræða Chili jarð­hnetur. Mannlíf sagði frá því á dög­unum að saxaðar döðlur frá Til ham­ingju hafi verið inn­kall­aðar þar sem þær voru taldar óhæfar til neyslu. Nú hefur Nathan & Olsen, að höfðu sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur, nú stöðvað sölu og inn­kallað frá neyt­endum Chili...
Huginn borgaði 20.000 fyrir bílastæði ISAVIA: „Þetta samfélag er orðið svo gegndarlaust gráðugt“
InnlentNeytendamál

Huginn borg­aði 20.000 fyrir bíla­stæði ISAVIA: „Þetta sam­fé­lag er orðið svo gegnd­ar­laust gráð­ugt“

„20.000 fyrir 3,5 sól­ar­hring á ISAVIA bíla­stæði í Rvk. Þvílíka okrið. Ég kom svo að sækja pabba þangað fyrir nokkrum dögum, beið þarna minna en 30 mín­útur og svo rukk­uðu þeir mig 1900 kr. þó ég færi aldrei úr bílnum og sá engin skilti þarna. (svo voru þessir sömu aðilar með vit­lausan komu­tíma inni á vef­síð­unni sinni, svo ég kom...
Greiðslubyrðin tvöfaldaðist um mánaðarmót: „Það má ekkert koma upp á“
FréttirNeytendamál

Greiðslu­byrðin tvö­fald­að­ist um mán­að­ar­mót: „Það má ekk­ert koma upp á“

Greiðslu­byrði af hús­næð­is­láni Gígju Skúla­dóttur tvö­fald­að­ist síð­ustu mán­að­ar­mót. Þegar búið er að greiða önnur mán­að­ar­leg gjöld stendur hún eftir með lítið á milli hand­anna til þess að verja í grunn nauð­synjar á borð mat. Hún segir að lítið megi út af bregða án þess að hún lendi í fjár­hags­vand­ræðum. Hún spyr hvernig venju­legu fólki tak­ist að lifa lífi sínu í núver­andi efna­hags­á­standi.
Lagt til að ósáttir flugfarþegar greiði Samgöngustofu 5.000 króna málskotsgjald
FréttirNeytendamál

Lagt til að ósáttir flug­far­þegar greiði Sam­göngu­stofu 5.000 króna mál­skots­gjald

Drög að nýrri reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega fóru nýverið í sam­ráðs­gátt. Samkvæmt drög­unum er lagt til að kvar­tendur greiði Sam­göngu­stöfu 5.000 króna gjald fyrir máls­með­ferð í ágrein­ings­málum sem skotið er til stofn­un­ar­innar. Þá kveður ný reglu­gerð á um að Sam­göngu­stofa muni fram­vegis ekki taka við erindum vegna skemmds eða glat­aðs far­ang­urs.
Fjársterkir einstaklingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða
FréttirNeytendamál

Fjár­sterkir ein­stak­lingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða

Samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun fjölg­aði íbúðum í eigu lög­að­ila og ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð um 2.300 á síð­asta ári. Á sama tíma hefur fjölgun íbúða í eigu ein­stak­linga sem aðeins eiga eina íbúð dreg­ist mikið saman und­an­farin þrjú ár. Líta þarf aftur til árs­ins 2010 til þess að sjá sam­bæri­lega þróun.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins