„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heilsugæslan er sprungin: „Þú færð ekki að sækja þjónustu“

Heilsugæslan er sprungin: „Þú færð ekki að sækja þjónustu“

Gunn­laugur Már Briem, for­maður Félags sjúkra­þjálf­ara, er einn af fjöl­mörgum sem eru ósattir með heil­brigð­is­kerfið á Íslandi og hversu langan tíma það tekur að kom­ast að hjá heim­il­is­lækni.

„Staðan er nefni­lega þannig í dag að þú færð ekki að sækja þjón­ustu t.d. sjúkra­þjálf­ara án þess að fara fyrst á heilsu­gæsl­una, sem er ákveðið vanda­mál þegar erfitt er að fá tíma á heilsu­gæsl­unni. Ákvæði um bráða­með­ferðir var síð­ast fellt út í októ­ber 2020 af þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Svandísi Svav­ars­dóttur.“

Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra. Mynd/skjá­skot.

Gunn­laugur telur þessa stöðu vera baga­lega fyrir þá ein­stak­linga sem þarfn­ast þjón­ustu því eins og fram hefur komið, þá er bið­tím­inn eftir bók­uðum tímum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mjög langur, 7 vikur í heilsu­gæsl­unni Miðbæ, 4 vikur á Sel­tjarn­ar­nesi og ekki hægt að bóka á heilsu­gæsl­unni Hlíðum. Áður hefur það verið svo að ein­stak­lingar gátu farið í t.d. sex með­ferð­ar­skipti til sjúkra­þjálf­ara án beiðni frá lækni og fengið end­ur­greiðslu eins og aðrir sjúkra­tryggðir. Þyrftu þeir svo langvar­andi með­ferð þurfti að fá beiðni frá lækni því til stuðn­ings.

Gunn­laugur leggur fram í aðsendri grein á Vísi þá spurn­ingu hvort hægt sé að hafa áhrif á bið­tím­ann?

Leggur hann fram hug­myndir til að létta á flösku­háls­inum sem hann segir að hafi verið að mynd­ast síðan 2020.

„Þá hafði sú ákvörðun þáver­andi ráð­herra árið 2020, að allir þyrftu beiðni í sjúkra­þjálfun sama hversu umfangs­mikið vanda­málið væri, tölu­verð áhrif til þess að auka álag á heilsu­gæsl­una. Ef við berum saman gögn yfir fjölda útgef­inna beiðna í sjúkra­þjálfun frá heilsu­gæsl­unni milli áranna 2020 og 2021, þá jókst fjöldi beiðna um 5.309, eða úr 36.035 og í 41.344.

Með því að létta á þessum flösku­hálsi mætti ætla að hægt væri að fækka verk­efnum og komum á heilsu­gæsl­una umtals­vert. Þetta er ein­föld fram­kvæmd sem nú eins og áður gæti borið skjótan árangur.

Mikil tæki­færi fel­ast í því að nýta fleiri fag­stéttir sem fyrsta tengilið á heilsu­gæslum og efla þver­fag­legt sam­starf heil­brigð­is­stétta. Til að mynda hafa verk­efni tengd stoð­kerf­is­mót­tökum gefið góða raun nú í nokkurn tíma og vonum við að okkur hljót­ist gæfa til að lagður verði auk­inn kraftur í fjöl­breyttar lausnir í fram­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins