„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fasteignamarkaðurinn kólnar – Ekki færri kaupsamningar í sjö ár

Fasteignamarkaðurinn kólnar – Ekki færri kaupsamningar í sjö ár

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar kemur fram að kaup­samn­ingar um íbúð­ar­hús­næði hafi ekki verið færri síðan í apr­íl­mán­uði árið 2015, ef miðað er við sex mán­aða hlaup­andi með­al­tal. Íbúðir selj­ast síður mikið yfir ásettu verði. Það eru því blikur á lofti á fast­eigna­mark­aðnum, en í skýrsl­unni segir að fyrstu merki kóln­unar geri nú vart við sig.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nam verð­hækkun á íbúðum í fjöl­býli aðeins um 0,5 pró­sentum í júní, en fimm mán­uð­ina þar á undan hafði mán­að­ar­leg hækkun numið á bil­inu 2,4 til 3,2 pró­sentum.

Seðla­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti ört síð­ustu miss­eri, en hækk­unin nam tveimur pró­sentu­stigum í maí og júní. Auk þess setti Seðla­bank­inn strang­ari lána­skil­yrði í lok júní. Þessi atriði eru meðal þeirra sem auka líkur á kólnun á hús­næð­is­mark­aði, eins og kom fram í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

„Þótt helstu mæli­kvarðar um fast­eigna­mark­að­inn eru ekki ótví­ræðir eru þó lík­lega komin fram fyrstu merki um kólnun á fast­eigna­mark­aði,“ segir í nýj­ustu skýrsl­unni.

Eitt af þeim merkjum sem eru til staðar um kólnum á fast­eigna­mark­aði er aukið fram­boð íbúða, en fram­boð jókst mjög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ágúst; úr 700 í 905 á 20 dögum. Framboð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá byrjun febr­úar á þessu ári.

Íbúðir selj­ast enn yfir ásettu verði, en þeim sem selj­ast 5 pró­sent eða meira yfir ásettu verði hefur þó fækkað tals­vert. Í apríl seld­ust til að mynda 34,6 pró­sent íbúða í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu svo hátt yfir ásettu verði, á meðan þær voru orðnar 20,8 pró­sent í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins