„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þú gætir þurft að þéna 420.000 krónum meira á ári vegna vaxtahækkana Seðlabankans

Þú gætir þurft að þéna 420.000 krónum meira á ári vegna vaxtahækkana Seðlabankans
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Árlegar afborg­anir af 40 milljón króna óverð­tryggðu hús­næð­is­láni á breyti­legum vöxtum gætu hækkað um 300.000 krónur ef nýjasta stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans, sem til­kynnt var um í morgun, skilar sér beint inn í vaxta­hækk­anir bank­anna. Það gerir 25.000 króna hækkun greiðslu­byrðar á mán­uði. Ein­stak­lingur með slíkt lán þyrfti að þéna um það bil 420.000 krónum meira á ári til þess að mæta hækk­unum.

Seðla­banki Íslands til­kynnti í morgun um 0,75 pró­senta hækkun stýri­vaxta. Vext­irnir standa nú í 5,5 pró­sentum og hafa ekki verið hærri í sex ár. Seðla­bank­inn hefur hækkað stýri­vexti átta sinnum á rúmu ári og gefið það út að vextir verði hækk­aðir áfram eins mikið og þarf til þess að ná verð­bólgu niður.

Stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans hafa óhikað skilað sér í hækkun breyti­legra vaxta hjá við­skipta­bönk­unum. Það hefur valdið því að greiðslu­byrði fólks með óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum hefur jafn­vel hækkað um tugi þús­unda.

Fyrir ein­stak­ling sem tók 50 millj­óna króna óverð­tryggt hús­næð­is­lán á lægstu breyti­legu vöxtum í byrjun árs 2021, 3,4 pró­sent, var mán­að­ar­leg afborgun af lán­inu 190.169 krónur. Á 5,5 pró­senta vöxtum er mán­að­ar­leg afborgun komin upp í 256.709 krónur. Hækkunin nemur 66.540 krónum.

Þarft að þéna 420.000 krónum meira

Fyrir ein­stak­ling með 40 milljón króna óverð­tryggt hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum gæti greiðslu­byrði hækkað um 300.000 krónur á árs grund­velli, ef nýjasta stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans skilar sér beint inn í breyti­lega vexti bank­anna. Hingað til hafa við­skipta­bank­arnir ekki beðið lengi með að hækka vexti sína í kjöl­far stýri­vaxta­hækk­ana.

Hjá þessum ein­stak­lingi myndi mán­að­ar­leg afborgun því hækka um 25.000 krónur við þessa einu hækkun.

Til þess að mæta þeim hækk­unum þyrfti við­kom­andi að þéna um það bil 420.000 krónum meira á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins