„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aldís Fjóla vill að verslanir taki sig á: „Sveitakonan í mér verður alveg lens út af þessu“

Aldís Fjóla vill að verslanir taki sig á: „Sveitakonan í mér verður alveg lens út af þessu“
Aldís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dóttir. Mynd: Aðsend.

Neytandi vik­unnar er Aldís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dóttir. Aldísi Fjólu er margt til lista lagt. Hún er tón­list­ar­kona, texta­höf­undur, söng­kenn­ari, við­burða­stjóri og þerapisti. Rokkari í hjart­anu, sveita­kona og nátt­úru­barn. Árið 2020 gaf hún út plöt­una Shadows, sem hefur fengið góðar við­tökur, en lög af henni hafa til að mynda ratað inn á vin­sæld­ar­lista Rásar 2. Í vor hélt hún síðan loks­ins útgáfu­tón­leika í Iðnó fyrir fullu húsi, þegar heims­far­aldur var far­inn að halda sig á mott­unni. Næsta plata Aldísar er vænt­an­leg í októ­ber næst­kom­andi.

Aldís Fjóla gaf sér tíma til þess að svara nokkrum spurn­ingum um neyslu­venjur sínar, ein­hvers­staðar á milli starfa sinna.

Aldís Fjóla. Mynd úr einka­safni.

Hvar kaupir þú eða fjöl­skylda þín helst inn mat og rekstr­ar­vörur til heim­il­is­ins og hversu mik­ill er sá kostn­aður að jafn­aði á mán­uði?

Ég er það heppin að vera úr sveit, þannig að allt kjöt kemur frá föður mínum beint frá býli. Aðrar vörur kaupi ég í Nettó eða Krónunni og nota heim­send­ing­arnar þeirra mjög mikið. 

Hvaða aðferðum beitir þú til að nýta mat sem best?

Ég reyni að finna upp nýja rétti og frysta það sem ég nýti ekki dag­inn eftir. Annars er ég í þannig vinnu að ég er örsjaldan heima til að elda þannig að ég geri oft­ast bara skammt fyrir mig. 

Hvert er þitt helsta sparnaðarráð?

Ég elska, elska, elska allar second hand búð­irnar sem eru komnar hingað og versla gríð­ar­lega mikið við Verzlanahöllina, bæði til að selja mín föt og kaupa önnur í stað­inn. 

Er allt rusl flokkað heima hjá þér? Ef svo er, hvaða verk­lag hefur reynst þér eða fjöl­skyldu þinni best til að tryggja að allt rusl sé flokkað?

Ég við­ur­kenni að ég er hræði­leg að flokka. Hræðileg. 

Hvaða hreinsiefni eru notuð heima hjá þér?

Ég nota mikið ilmol­íur og þá sér­stak­lega sítrónu og Thieves út í vatn blönd­una til að þrífa heima. 

Kaupir þú helst ný eða notuð húsgögn?

Ég er mikið í not­uðum hús­gögnum og var líka svo heppin að heim­ili mínu fylgdu hús­gögn.

Aldís Fjóla á mynd­inni framan á plöt­unni Shadows.

Átt þú bíl? Hve miklu eyðir þú að jafnaði í samgöngur á mánuði?

Ég á bíl, hann heitir Tinni og ég eyði að jafn­aði svona 40 þús­und á mán­uði í sam­göngur. 

Leggur þú fyrir? Ef svo er, í hvaða formi er sparnaðurinn?

Ég er alltaf að reyna að leggja fyrir, það gengur mis­vel og ekk­ert þessa stund­ina. 

Hvernig finnst þér verðlag á Íslandi?

Það er alveg rosa­lega hátt miðað við að launin eru ekk­ert að hækka mikið á móti. 

Ert þú með fasteignalán? En önnur lán?

Engin lán. 

Hvaða breytingu myndir þú vilja sjá sem neytandi?

Ég myndi vilja sjá meira af vörum á síð­asta sölu­degi á afslætti eða ein­fald­lega gef­ins. Það er hrika­legt hversu miklu er hent sem hægt er að nota enn, bara út af einni dag­setn­ingu á vör­unni. Sveita­konan í mér verður alveg lens útaf þessu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

neytandi vikunnar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Innlentneytandi vikunnar

Borg­ar­full­trú­inn sem vill kaupa fal­leg föt: „Ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á“

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs. Gerir þú verð­sam­an­burð á vöru og þjón­ustu? Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í...
Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“
Innlentneytandi vikunnar

Tómas er fót­bolta­verk­fræð­ingur sem vill gott úrval: „Löngun sam­hliða þörf“

Tómas Joð Þor­steins­son er 34 ára gam­all bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við upp­bygg­ingu Nýja Lands­spít­al­ans og spil­aði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knatt­spyrnu. Tómas býr ásamt kær­ustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neyt­andi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já ég geri oft verð­sam­an­burð, sér­stak­lega við mat­ar­inn­kaup heim­il­is­ins og ýmsa...
Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“
Innlentneytandi vikunnar

Gerir unn­ustu sína brjál­aða með tuði: „Endar í geymsl­unni“

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu...
Hjálmar gaf vini sínum dósatunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“
Innlentneytandi vikunnar

Hjálmar gaf vini sínum dósa­tunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“

Hjálmar Örn Jóhanns­son er 49 ára verka­maður og skemmti­kraft­ur­bú­settur í Reykja­vík. Hann er fjög­urra barna barna faðir og einn fyndn­asti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn. Hjálmar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Hef ekki gert það. Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður. End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð...
Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“
Innlentneytandi vikunnar

Emil kjúklinga­karl er Pepsi Max fík­ill: „Neysla er lík­lega stærsta vanda­málið“

Emil Ólafur Ragn­ars­son heiti ég, giftur með eitt barn. Búsettur í Hval­fjarð­ar­sveit, fæddur í Reykja­vík, upp­al­inn í Dýra­firði og Kjós. Starfa sem bústjóri á kjúklinga­búi. Hef einnig búið hér og þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ætli maður geri það ekki, þó er ég ekki með það nið­ur­skrifað í excel skjal. En maður reynir að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins