„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bæjarstjórar á ofurlaunum eiga þetta sameiginlegt – Ánægjulegt að fylgjast með þeim dafna í starfi

Bæjarstjórar á ofurlaunum eiga þetta sameiginlegt – Ánægjulegt að fylgjast með þeim dafna í starfi
Kjartan Már Kjart­ans­son Mynd: reykjanesbaer.is

Talsvert hefur verið fjallað um há laun ýmissa bæj­ar­stjóra á Íslandi und­an­farið. Nokkrir þeirra eiga MBA nám í Háskóla Íslands sam­eig­in­legt, ef marka má nýja færslu skól­ans, sem hreykir sér af bæj­ar­stjór­unum knáu.

Á Íslandi er sveit­ar­fé­lag á hverja tæp­lega sex þús­und íbúa lands­ins. Af 64 sveit­ar­fé­lögum á Íslandi eru 41 þeirra með færri en tvö þús­und íbúa. Fjöl­miðlar hafa nýlega fjallað um há laun þeirra sem gegna þessu emb­ætti í byggðum lands­ins, en Vísir fjall­aði til að mynda um átta þeirra nú í sumar.

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, er í þriðja sæti yfir launa­hæstu sveit­ar­stjóra lands­ins, með rúmar 2,4 millj­ónir á mán­uði. Hann er einn þeirra úr röðum íslenskra sveit­ar­stjóra sem Háskóli Íslands bendir á að hafi útskrif­ast úr MBA-námi skól­ans.

„Hátt hlut­fall bæj­ar­stjóra á Íslandi með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands!“ segir í nýrri færslu náms­braut­ar­innar. Í henni segir að ánægju­legt sé að fylgj­ast með útskrif­uðum MBA-nem­endum frá Háskóla Íslands dafna í starfi.

„Á dög­unum var Geir Sveins­son ráð­inn bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði en hann útskrif­að­ist úr MBA-nám­inu frá Háskóla Íslands árið 2004. Hann bætt­ist þannig við í hóp fleiri bæj­ar­stjóra á land­inu sem hafa útskrif­ast úr MBA-námi okkar.“

Hinir bæj­ar­stjór­arnir sem í færsl­unni eru sagðir hafa útskrif­ast úr nám­inu eru:

Fjóla Stein­dóra Krist­ins­dóttir, bæj­ar­stjóri Sveita­fé­lags­ins Árborgar. Hún útskrif­að­ist árið 2021.

Sigríður Ingv­ars­dóttir, bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar. Hún útskrif­að­ist árið 2007.

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ. Hann útskrif­að­ist árið 2002.

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grinda­vík­ur­bæjar. Hann útskrif­að­ist árið 2002.

Magnús Stef­áns­son, bæj­ar­stjóri Suð­ur­nesja­bæjar, hann útskrif­að­ist árið 2009.

Fjóla Stein­dóra Krist­ins­dóttir er meðal ell­efu hæst laun­uðu sveit­ar­stjóra lands­ins, líkt og kom fram í umfjöllum Frétta­blaðs­ins í júní.

Fjórir hæst laun­uðu sveit­ar­stjór­arnir eru með hærri laun en Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Þeirra á meðal er Kjartan Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins