„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Danskt-íslenskt huldufólk selur nuddtæki fyrir augun – Neita að segja hvaðan þau koma

Danskt-íslenskt huldufólk selur nuddtæki fyrir augun – Neita að segja hvaðan þau koma

Íslensk vef­verslun neitar því að vara sem hún selur sé sú sama og seld er á vef­versl­un­inni Ali Express. Versl­unin neitar að gefa upp hver fram­leið­andi vör­unnar er og segir það ekki eðli­legt að neyt­endur fái slíkar upp­lýs­ingar. Fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna segir það und­ar­lega hegðun sölu­að­ila að upp­lýsa ekki um slíkt, enda eigi verslun að geta verið stolt af upp­runa vöru sinnar.

Í sumar var fjallað um sölu sól­gler­augna sem virt­ust keypt á Ali Express en seld hér á landi sem ein­hvers konar hönn­un­ar­vara á upp­sprengdu verði. Mikill fjöldi vef­versl­ana hefur skotið upp koll­inum und­an­farin miss­eri með ótal vörur sem ef til vill má finna tals­vert ódýr­ari á erlendum net­versl­unum. Versl­unum ber laga­lega ekki að upp­lýsa um upp­runa vör­unnar, en með auk­inni neyt­enda­vit­und er krafa þess efnis orðin hávær­ari.

Augnnuddtæki dansk/íslensks fyrirtækis

Mannlíf fékk ábend­ingar um vef­versl­un­ina Saga Eyetech, sem selur augnnudd­tæki á 18.900 krónur. Tækið er sagt geta létt á höf­uð­verk og mígreni, bætt svefn­gæði, dregið úr streitu og kvíða, dregið úr hvarma­bólgu, minnkað bólgu í augum, haft góð áhrif á ADHD, dregið úr augn­pokum, og þurrum og þreyttum augum.

„Nudd­tækið er hannað til að halda aug­unum heil­brigðum og létta á augn­vanda­málum, þar á meðal mígreni, kinn- og enn­is­holu­bólgu, þrýst­ing, augn­þreytu, þrota, augn­pokum og fleiru. Þetta er hin full­komna lausn fyrir alla sem vilja auka lífs­gæði með heil­brigðum augum, góðum svefni og minni höf­uð­verk,“ segir í lýs­ingu á tæk­inu á síðu versl­un­ar­innar.

Um fyr­ir­tækið segir:
„Saga Eyetech er danskt/íslenskt fyr­ir­tæki stofnað árið 2022. Við erum ástríðu­fullir frum­kvöðlar, með bak­grunn í heil­brigð­is­fræðum, sem sjúkra­þjálf­ari og BSc í íþrótta­fræði. Okkur hefur lengi dreymt um að hjálpa fólki sem þjá­ist af verkjum í dag­legu lífi.“

Þess ber að geta að á síð­unni má finna 20 umsagnir sem allar hljóða upp á fimm stjörnur.

Sláandi líkt vöru Ali Express

Ein­stak­lingur sem ræddi við blaða­mann Mannlífs sagð­ist hafa orðið tor­tryggin þegar hún sá vör­una aug­lýsta á Instagram með 10 pró­senta afslátt­ar­kóða nýverið.

„Eftir að hafa skoðað heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins ákvað ég að kíkja á Ali Express því ég er ógeðs­lega gagn­rýnin á allt svona og mér fannst „um okkur“ text­inn voða loð­inn, ég var engu nær um hvaðan varan sjálf kom.“

Textinn lætur hinn almenna neyt­anda sem les þennan texta ógagn­rýnum augum halda að hann sé að kaupa dansk/íslenska vöru þegar hún kemur beint frá drops­hipp­ing fyr­ir­tæki í kína. Það er eitt að dropps­hippa, það er annað að blekkja neyt­and­ann vís­vit­andi,“ segir ein­stak­ling­ur­inn, sem vill ekki láta nafns síns getið, í sam­tali við Mannlíf.

Mannlíf fjall­aði nýverið um hug­takið „drops­hipp­ing“ hér.

Vörur sem koma upp við leit á Ali Express eru óneit­an­lega líkar þeirri sem Saga Eyetech selur. Enginn sjá­an­legur munur er á augnnudd­tækj­unum sjálfum af mynd­unum að dæma, en einnig virð­ist um sömu umbúðir að ræða – fyrir utan það að merki Saga Eyetech hefur verið bætt við á þeirra umbúðir.

Á Ali Express kostar slíkt augnnudd­tæki ein­ungis tæpar 3.000 krónur. Verð­mun­ur­inn er því um 16.000 krónur, að und­an­skildum send­ing­ar­kostn­aði.

Augnnudd­tæki Saga Eyetech.
Augnnudd­tæki Saga Eyetech.
Augnnudd­tæki frá Ali Express.
Augnnudd­tæki frá Ali Express.

„Skrítin spurning hjá þér“

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Saga Eyetech vegna máls­ins. Þegar sölu­að­il­inn var spurður um upp­runa vör­unnar og fram­leið­anda hennar var lítið um svör. „Við pöntum þessa vöru frá fram­leið­anda“ og svo „Við pöntum frá við­ur­kenndum aðila,“ þegar spurn­ingin var ítrekuð.

Aðspurður sagð­ist sölu­að­il­inn ekki stunda svo­kallað „drops­hipp­ing“, en það er þegar verslun gerir samn­ing við fram­leið­anda þess efnis að vörur send­ist beint frá fram­leið­anda til við­skipta­vina sölu­að­il­ans, án milli­göngu. Sölu­að­il­inn merkir sér vör­una, smíðar nýtt kynnis­efni fyrir sína verslun og verð­leggur vör­una síðan eftir eigin höfði. Þegar neyt­andi pantar síðan vör­una er hann í raun og veru að eiga  við­skipti við vöru­hús úti í heimi, til að mynda Ali Express, en vef­versl­unin sem um ræðir fær verð­mis­mun­inn.

„Við pöntum frá við­ur­kenndum aðila“

Sá sem svar­aði fyrir hönd Saga Eyetech sagð­ist panta vör­una beint frá fram­leið­anda til Íslands. „Við erum með lager á Íslandi og sendum með Dropp á Íslandi.“ Við­kom­andi reyndi því næst að ljúka sam­tal­inu.

Blaða­maður spurði þá út í lík­indi milli vöru þeirra og vöru á Ali Express. Eftir að hafa sent versl­un­inni hlekk á vör­una á Ali Express var svarið á þá leið að ekki væri um sömu vöru að ræða.

Augnnudd­tæki frá Ali Express.

„Þetta er ekki tækið okkar, þótt það lík­ist því. Þú getur til dæmis séð það á stærð batt­er­ís­ins.“

Blaða­maður spurði þá hvort tækin væru að öðru leyti sam­bæri­leg, og hvernig tækið sem Saga Eyetech selur væri sam­sett. Þá væri ef til vill hægt að bera tækin betur saman. Versl­unin tók ekki vel í þær spurn­ingar.

„Við fórum í mikla rann­sókn­ar­vinnu þegar við vorum að velja tæki og tækið okkar kom lang­best út. Þessi tæki eru ekki sam­bæri­leg en ef fólk vill kaupa þetta tæki, þá er öllum frjálst að gera það.

Skrítin spurn­ing hjá þér, próf­aðu að spyrja hvernig iphone-inn er sam­settur niðri í Elko, held þú fáir ekki svar við því.“

Þegar blaða­maður sagði það verða að telj­ast eðli­legt að neyt­endur geti fengið að vita hvaðan vörur sem íslenskar versl­anir selji þeim komi, var svarið ein­falt:

„Nei, það er ekki eðli­legt.“

Tæki og umbúðir frá Ali Express.
Tæki og umbúðir frá Saga Eyetech. Eini sjá­an­legi mun­ur­inn er að merki „saga“ er neðst á umbúð­unum, sem og á augnnudd­tæk­inu.

Miðað við fögur fyr­ir­heit um ávinn­ing tæk­is­ins, auk þeirrar stað­reyndar að um raf­tæki sem fer ofan á augu er að ræða, verður að telj­ast enn brýnna að neyt­endur geti rakið upp­runa tæk­is­ins og frætt sig sjálfir um fram­leið­anda þess og metið hvort þeir kjósi að treysta honum eða ekki. Fæstum er sama um það hvers konar tæki fara nálægt við­kvæmum svæðum eins og augum.

„Ætti ekki að vera neitt leyndarmál“

Mannlíf ræddi við Bryn­hildi Pét­urs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Neyt­enda­sam­tak­anna, vegna máls­ins. Þótt versl­unum beri ekki laga­leg skylda til þess að upp­runa­merkja vörur má segja að það stingi bæði í stúf við aukna neyt­enda­vit­und og svo sam­visku og stolt fyr­ir­tækja að neita að upp­lýsa um fram­leið­anda vara sinna.

„Það er mjög óeðli­legt að selj­andi vilji ekki upp­lýsa um upp­runa vör­unnar; til dæmis nafnið á fram­leið­and­anum. Seljandi ætti bara að vera stoltur af þeim vörum sem hann er að selja og það ætti ekki að vera neitt leynd­ar­mál.“

„Mjög óeðli­legt að selj­andi vilji ekki upp­lýsa um upp­runa vör­unnar“

Hún und­ir­strikar mik­il­vægi þess að neyt­endur séu vel á verði, í þeim frum­skógi vef­versl­ana og fram­boðs sem nú er til staðar.

„Það er gott að neyt­endur séu á varð­bergi, séu gagn­rýnir og spyrji spurn­inga. Sér í lagi ef það er verið að kaupa ein­hverjar vörur sem eru ekki sokkapar. Þetta er eitt­hvað sem er á mörk­unum að vera lækn­inga­tæki. Þá verða neyt­endur að vera vissir um að þeir séu ekki að kaupa kött­inn í sekknum.“

Segja vöruna vottaða sem lækningatæki

Þeir ávinn­ingar sem sagðir eru geta feng­ist við notkun augnnudd­tækis Saga Eyetech gera það að verkum að hugs­an­lega sé um svo­kallað lækn­inga­tæki að ræða, en um slík tæki gilda evr­ópskir staðlar. Uppfylli tækið skil­yrði lækn­inga­tækja skal það bera svo­kall­aða CE merk­ingu. Samkvæmt upp­lýs­ingum á síðu Saga Eyetech ber augnnudd­tækið CE vottun. Lyfja­stofnun hefur eft­ir­lit með slíku hér á landi og því getur aðeins Lyfja­stofnun sann­reynt þá full­yrð­ingu versl­un­ar­innar.

Í svari Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn blaða­manns kemur fram að sam­kvæmt lögum um lækn­inga­tæki séu slík tæki skil­greind á eft­ir­far­andi hátt:

„Hvert það verk­færi, bún­aður, áhald, hug­bún­aður, ígræði, pró­fefni, efni­viður eða annar hlutur sem fram­leið­andi ætlar til notk­unar fyrir fólk, eitt og sér eða í sam­setn­ingu með öðru, í a.m.k. einum af eft­ir­far­andi, til­teknum lækn­is­fræði­legum til­gangi:

  1. að greina, hindra, vakta, spá fyrir um, meta horfur, með­höndla eða lina sjúk­dóma,
  2. að greina, vakta, með­höndla, lina eða bæta meiðsli eða fötlun,
  3. að rann­saka, koma í stað eða breyta líf­færi eða líf­eðl­is­legri eða meina­fræði­legri starf­semi eða ástandi,
  4. að veita upp­lýs­ingar með rann­sókn í glasi á sýn­is­hornum sem fengin eru úr manns­lík­am­anum, þ.m.t. úr líf­færa-, blóð- og vefja­gjöfum, og sem ekki gegnir ætl­uðu meg­in­hlut­verki sínu með aðferðum er varða lyfja­fræði, ónæm­is­fræði eða efna­skipti, í eða á manns­lík­am­anum, en styðja má verkun þess með slíkum aðferðum.“

Í sömu lögum segir um aug­lýs­ingar lækn­inga­tækja að aug­lýs­ing skuli „ávallt sett fram með hlut­lægum hætti og veita full­nægj­andi upp­lýs­ingar um lækn­inga­tækið, eig­in­leika þess og notkun. Upplýsa skal not­anda eða sjúk­ling um hugs­an­lega áhættu sem teng­ist notkun tæk­is­ins í sam­ræmi við ætl­aðan til­gang þess.“

Í svari Lyfja­stofn­unar segir jafn­framt:

„Almennt um lækn­inga­tæki: Innan Evrópu er mik­ill fjöldi lækn­inga­tækja á mark­aði og er mark­að­ur­inn frjáls (þ.e. ekki þarf sér­stakt leyfi til að mark­að­setja lækn­inga­tæki innan Evrópu). Engu að síður þarf vara sem skil­greind sem lækn­inga­tæki að vera CE merkt, og vottuð ef um ákveðna áhættu­flokk­anir tækja er að ræða.

Þá þarf að liggja fyrir sam­ræm­is­yf­ir­lýs­ing frá fram­leið­anda til stað­festu CE merk­ingar. Á þeirri yfir­lýs­ingu þarf til­kynntur aðili (e. Notified Body) að vera til­greindur, ef um ákveðna áhættu­flokka er að ræða. Þau dæmi eru til að upp hafa komið til­vik þar sem sölu­að­ilar lækn­inga­tækja hafa haldið fram röngum stað­hæf­ingum og mark­að­sett tækin með óábyrgum hætti. Það er þá í höndum eft­ir­lits­stofn­ana í hverju landi (í til­viki Íslands er það Lyfja­stofnun) að rann­saka og grípa inn í, sé þess þörf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins