„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skyndilegur missir: „Sorg fjölskyldunnar viðurkennd óháð fjölskyldugerð“

Skyndilegur missir: „Sorg fjölskyldunnar viðurkennd óháð fjölskyldugerð“
Sorg­ar­mið­stöðin.is

„Í dag fæ ég tæki­færi til að flytja ávarp á ráð­stefnu Sorg­ar­mið­stöðv­ar­innar sem ber yfir­skrift­ina „Skyndi­legur missir“. Lengi vel þótti það mik­ill per­sónu­legur styrk­leiki að bera ekki til­finn­ingar sínar á torg. Það þótti allt að hetju­legt að harka bara af sér og bera harm sinn í hljóði – en harm­ur­inn minnk­aði ekk­ert við það.“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra sendi frá sér pistil á Vísi þar sem hann talar fyrir mik­il­vægi þess að nú sé búið að sam­þykkja lög um sorg­ar­leyfi.

„Sem betur fer þá erum við fæst á þessum stað lengur. Og, með sam­þykki laga um sorg­ar­leyfi í júní síð­ast­liðnum, höfum við tryggt laga­legan rétt for­eldra til þess að fá leyfi frá störfum í kjöl­far barns­missis og þar með meira svig­rúm til að vinna úr sorg sinni.

Guð­mundur segir þetta sé stórt skref fyrir rétt­indi fólks á vinnu­mark­aði.

„Með sorg­ar­leyf­inu gefst for­eldrum einnig meira rými til að styðja eft­ir­lif­andi systkin við að takast á sorg sína og breyttar aðstæður. Það að for­eldrar geti tekið sér leyfi frá störfum og greiðslur komi til móts við tekju­tap er einnig stórt skref fyrir rétt­indi fólks á vinnu­mark­aði og er lík­legt til að draga úr líkum á því að fólk detti út af vinnu­mark­aði.“

Eins og fyrr segir voru lögin sam­þykkt í júní og taka gildi um ára­mót.

„Lögin taka gildi um ára­mót. Rétt­ur­inn til sorg­ar­leyfis verður sex mán­uðir og greiðslur nema 80% af með­al­tali heild­ar­launa, þó að hámarki 600.000 kr. á mán­uði. Fólk utan vinnu­mark­aðar eða sem er í minna en 25% starfi fær sorg­ar­styrk, þar á meðal náms­menn. Það er líka gert ráð fyrir að for­eldrar geti nýtt rétt sinn til sorg­ar­leyfis sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli yfir lengra tíma­bil.

Eitt af því sem mér þykir sér­stak­lega vænt um í lög­unum er hvernig hug­takið for­eldri er skil­greint, en það er gert með mun víð­tæk­ari hætti en í annarri lög­gjöf. Það geta því fleiri en tveir ein­stak­lingar átt rétt á sorg­ar­leyfi og er þar um sjálf­stæðan rétt hvers for­eldris að ræða. Þannig er sorg fjöl­skyld­unnar í heild við­ur­kennd óháð fjöl­skyldu­gerð en með því er lög­unum ætlað að koma til móts við fjöl­breytt fjöl­skyldu­mynstur í íslensku sam­fé­lagi.

Um leið og við fögnum nýjum lögum um sorg­ar­leyfi þá þarf að huga að næstu skrefum er varða aukin rétt­indi fólks vegna and­láts nákom­inna. Er þar nær­tæk­ast að horfa til barna­fjöl­skyldna og er grein­ing­ar­vinna þess efnis þegar hafin í félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins