„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tónlistarkonan Laufey: „Þetta er eins og í kvikmynd“

Tónlistarkonan Laufey: „Þetta er eins og í kvikmynd“
(Mynd: Gemma Warren.)

„Ég trúi þessu eig­in­lega ekki. Ég bjóst ekki við þessu,“ segir Laufey Lin Jóns­dóttir tón­list­ar­maður en platan hennar Everyt­hing I Know About Love situr í tíunda sæti yfir vin­sæl­ustu nýju plöt­urnar á topp­lista Spotify í Banda­ríkj­unum. „Tón­listin mín er í svo­lítið gömlum stíl; það er mikið af djass­tónum og klass­ískum tónum og mark­mið mitt hefur alltaf verið að koma eldri tón­list til nýrrar kyn­slóðar þannig að ég bjóst alls ekki við því að hún kæm­ist á ein­hvern topp­lista þar sem er oft­ast popptón­list. Þetta kom þess vegna mikið á óvart en þetta eru miklar gleði­fréttir.“

Laufey hefur vakið mikla athygli að und­an­förnu. Hver er gald­ur­inn á bak við þetta? „Ég veit það ekki. Ég held að það skipti máli að vera sam­kvæmur sjálfum sér; að halda áfram að gefa út tón­list og vera fljótur að bregð­ast við þegar stórir hlutir ger­ast. Ég held það sé líka mik­il­vægt þessa dag­ana að tón­list­ar­menn nýti sam­fé­lags­miðla og hleypi fólki inn í líf sitt. Segi sögu.“

Spilaði 15 ára með SÍ

Laufey er 23 ára og er dóttir hjón­anna Jóns Sig­ur­geirs­sonar og Wei Lin sem er kín­versk og fiðlu­leik­ari í Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Afi hennar og amma í Kína voru tón­list­ar­pró­fess­orar og dvaldi fjöl­skyldan almennt í Kína í tvo mán­uði á hverju sumri. „Ég tala kín­versku við mömmu mína þannig að Kína er mik­ill partur af mér.“ Laufey á tví­bura­systur, Júníu, sem er fiðlu­leik­ari og list­rænn stjórn­andi.

Syst­urnar ólust upp í Reykja­vík og í fimm ár í Washington þar sem faðir þeirra vann á þeim árum.

„Ég ólst upp í miklum tón­list­ar­heimi á Íslandi. Ég byrj­aði að spila á píanó þegar ég var fjög­urra ára og á selló þegar ég var átta ára og ég var í Tón­list­ar­skól­anum í Reykja­vík í meira en 10 ár. Ég byrj­aði að syngja þegar ég var svona 12-13 ára.“

Sígildir fiðlu­tónar úr fiðlu móð­ur­innar hljóm­uðu mikið á heim­il­inu og segir Laufey að faðir sinn hafi hlustað mikið á djass­tón­list sem hafði líka áhrif. Hún seg­ist hafa heill­ast mjög mikið af djass­tón­list­inni. „Hún er pínu eins og klass­ísk tón­list en samt nýrri. Mér fannst hún svo róm­an­tísk og fal­leg.“ Ella Fitzgerald og Billie Holiday voru í upp­á­haldi. „Svo elskaði ég söng­leikja­myndir eins og Singing in the Rain og Sound of Music.“

Mig lang­aði alltaf til að finna leiðir til þess að blanda þessum stílum ein­hvern veg­inn saman.

Laufey seg­ist hafa verið með frekar djúpa rödd þannig að hún hafi tengt meira við djass­söng­konur heldur en popp­söng­konur.

„Það er alveg ljóst að ást mín fyrir eldri tón­list, klass­ískri tón­list og djass­tón­list hefur komið í gegnum mömmu mína af því að ég ólst upp í kringum þannig tón­list. Og mér finnst hún vera svo fal­leg og svo tíma­laus. Og mig langar til að blanda svona tón­list saman við popptón­list því ég elska líka popptón­list og hlusta mikið á hana. Mig lang­aði alltaf til að finna leiðir til þess að blanda þessum stílum ein­hvern veg­inn saman.“

Laufey seg­ist hafa verið 13-14 ára þegar hún byrj­aði að syngja og spila í hljóm­sveit á sell­óið sitt. Hún var 15 ára þegar hún spil­aði jóla­lag á sell­óið sitt á jólatón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. Hún tók þátt í Ísland Got Talent árið 2014 og hún tók þátt í The Voice Iceland árið 2015. „Þetta var skemmti­legt. Ég tók þetta ekk­ert of alvar­lega enda var ég frekar ung.“

Blanda

Tón­listin tog­aði af svo miklum krafti í Laufeyju að 19 ára gömul flutti hún til Boston til að hefja nám við hinn virta tón­list­ar­skóla Berklee College of Music. Þar hélt hún áfram selló­nám­inu auk þess að nema meðal ann­ars tón­smíðar, pródús­er­ingu og tón­list­ar­við­skipta­fræði.

Ég gaf út mitt fyrsta lag þremur vikum eftir að Covid-far­ald­ur­inn skall og þetta byrj­aði að rúlla frekar hratt.

„Þegar Covid-far­ald­ur­inn hófst var ég mikið heima og byrj­aði að semja mjög mikið. Ég birti upp­tökur á net­inu til að sjá hvort ein­hver myndi hlusta og það er alger draumur hvernig þetta gerð­ist allt. Ég gaf út mitt fyrsta lag þremur vikum eftir að Covid-far­ald­ur­inn skall og þetta byrj­aði að rúlla frekar hratt.“

Og það rúllar enn og stoppar ekki.

„Ég spil­aði alltaf mikið og mig lang­aði til að semja en ég átti svo erfitt með að gera það því að klass­ísk tón­list kennir manni nátt­úr­lega að fylgja reglum og fylgja blað­síðum og nótum. En í djass­tón­list og popptón­list er maður að skapa sjálfur en ekki endi­lega að fylgja ein­hverjum reglum á síðum. Þannig að það tók pínu tíma að aðlag­ast. Þegar ég flutti út og byrj­aði í tón­list­ar­skól­anum þá þurfti ég aðeins að læra að sleppa öllum þessum reglum sem ég var búin að vera að læra og leyfa mér bara að gera hvað sem var og prófa mig áfram sem ég náði loks­ins að gera.“

Það er stundum hægt að þekkja pen­sil­för mynd­list­ar­manna. Hvernig er hægt að þekkja tón­list Lauf­eyjar?

Ég spila á sell­óið í meira en helm­ingi af lög­unum.

„Ég held að það sé í gegnum þessa blöndu af djassi, klassík og popptón­list. Hún er ein­hvers staðar mitt á milli. Ég spila á sell­óið í meira en helm­ingi af lög­unum þannig að það er mikið af strengja­pörtum og text­inn getur líka verið svo­lítið fynd­inn. Ég geri frekar mikið grín að sjálfri mér.“

Hvers vegna?

„Ég held að lífið geti stundum verið svo­lítið alvar­legt og sér­stak­lega þegar kemur að ást­ar­lögum. Sem ung kona getur maður verið svo­lítið skrýt­inn og gert hluti sem maður mun hlæja að eftir nokkur ár. Og ég er bara strax að hlæja í text­unum. Það á ekki að taka hluti of alvar­lega. Lífið getur stundum verið svo erfitt.“

(Mynd: Gemma Warren.)

Ástarsorgin

Laufey semur text­ana við lögin sín.

„Ég átti svo erfitt með að semja texta og vissi ekki hvað ég átti að skrifa um af því að ég var svo sein að byrja að fara á stefnu­mót, hugsa um stráka og fara í partí. Það var ekki fyrr en ég flutti út að ég byrj­aði að upp­lifa það að vera ung kona í nýrri borg og byrj­aði að deita aðeins. Og ég hafði loks­ins eitt­hvað til að semja um. Ég var í pínu ást­ar­sorg þegar ég gaf út fyrsta lagið mitt, Street by Street. Það var strákur sem hætti með mér í Boston og ég ein­hvern veg­inn upp­lifði það að hata alla borg­ina af því að það minnti mig allt á hann. Ég hugs­aði með mér að ég yrði að semja eitt­hvað um þetta svo mér liði betur. Þannig að ég samdi Street by Street og text­inn fjallar um að láta ekki ein­hvern strák eða slæma ímynd eyði­leggja heila borg fyrir manni. Þetta lag var mikið „turn­ing point“ fyrir mig bæði sem tón­list­ar­konu og líka sem mann­eskju.

Ég tala alveg beint út frá hjart­anu í text­unum.

Ég hef alltaf verið mjög hrein­skilin mann­eskja en ég átti erfitt með að vera hrein­skilin með tón­list; en eftir þetta hef ég ef eitt­hvað er verið of hrein­skilin. Ég tala alveg beint út frá hjart­anu í text­unum.“ Hún segir að þrátt fyrir allt sé aug­ljóst að hún hafi aldrei verið almenni­lega ást­fangin þannig séð. „Ást­ar­sorgin mín hefur falist í að maður er að missa eitt­hvað sem maður var ekki einu sinni með. Það er þannig til­finn­ing sem getur verið svo erfið. Ég held að margt ungt fólk tengi við hvernig sé að vera leiður yfir ein­hverju sem var ekki einu sinni til dæmis sam­band.“

Það var í lok árs 2019 og í byrjun árs 2020 sem þetta lista­verk, Street by Street, varð til.

This view used to bring

A smile to my face

Lately it’s done not­hing but

Remind me of the way

The way that you used to

Give me butt­er­flies

Took me 21 days to

Walk our for­mer para­d­ise

Paradise, bu-bu-bu-day duh

Step by step, brick by brick

I’m reclaiming what’s mine

This city is way too small

To give away to just one guy

Street by street, bre­ath by bre­ath

From the Back Bay to the sky

I’m tak­ing back my city

I’m tak­ing back my life

Annað og nýrra lag um ást­ar­sorg sem teng­ist öðrum strák heitir Let You Break My Heart Again. Heil sin­fón­íu­hljóm­sveit spilar undir. „Ég fékk að taka það upp með Fíl­harm­ón­íu­hljóm­sveit­inni í London. Það var klikkað af því að það er svo góð hljóm­sveit.“

Feeling kind of sick ton­ight
All I’ve had is coffee and leftover pie
It’s no wonder why

Still you take up all my mind
I don’t even think that you care like I do
I should stop
Heaven knows I’ve tried

One day
I will stop fall­ing in love with you
Some day
Someone will like me like I like you

Until then I’ll drink my coffee
Eat my pie
Pretend that we are more than fri­ends
Then of course I’ll let you break my heart again

Skemmtilegt, skrýtið og alls konar

Berklee College of Music. Hvaða máli skiptir það fyrir Laufeyju að hafa farið í svona virtan tón­list­ar­skóla?

Það var ákveðið tákn um að þora að fara í tón­list. Ég þorði ekki að verða söng­kona og tón­list­ar­kona og það var ekki fyrr en ég fékk fullan styrk að fara í Berklee að ég hugs­aði að þetta væri séns sem ég yrði að grípa. Ég hefði eig­in­lega engu að tapa. Ég hafði áður verið í sígildu tón­list­ar­námi en í Berklee var aðeins meira popp og djass og ég kynnt­ist þar fólki frá ýmsum löndum sem spil­aði öðru­vísi tón­list. Það var gott fyrir mig.“

Laufey útskrif­að­ist frá Berklee í fyrra og hefur búið í Los Angeles í eitt ár. „Pródúser­arnir eru hér og allir lista­menn­irnir. Þetta er stað­ur­inn til að vera á ef maður ætlar að vera ungur í tón­list þó þetta sé svona langt frá Íslandi. Ég verð að við­ur­kenna að ég hef farið fjórum sinnum til Íslands á þessu ári sem er alveg óeðli­legt miðað við hvað þetta er langt í burtu.“

27. októ­ber kemur hún fram með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands auk þess að koma fram á Iceland Airwaves.

Laufey kemur til Íslands í enn eitt skiptið í haust en fram undan er þriggja mán­aða tón­leika­ferð um Banda­ríkin og Evrópu en 27. októ­ber kemur hún fram með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands auk þess að koma fram á Iceland Airwaves.

Hvernig er lífs­stíll­inn í LA?

„Þetta er eins og í kvik­mynd. Ég verð að við­ur­kenna það. Sólin skín alltaf og ég bý nálægt strönd­inni. Maður er alltaf að sjá eitt­hvað frægt fólk að labba um. Maður fer í þessi klikk­uðu partí í þessum fal­legum húsum og hittir skemmti­legt, skrýtið og alls konar fólk. Ég umgengst aðal­lega lista­menn þannig að það er mjög skemmti­legt að vera alltaf í kringum fólk sem er að búa til tón­list eða kvik­myndir eða er ljós­mynd­arar. Þetta er alger draumur. En það er mjög erfitt að vera svona langt að heiman á svona ungum aldri. Ég bjóst ekki við því.“

Hvað ber að var­ast í þessum heimi?

„Ég held að maður verði að passa sig á að sökkva ekki of mikið inn í ein­hverja frægð. Það eru margir sem detta þá auð­veld­lega inn í slæma ávana. Ég reyni alltaf að muna hver ég er og hvað ég er að gera hérna. Það er mik­il­vægt að umkringja sig og vinna með góðu fólki.“

Allir upp­á­halds­tón­list­ar­menn­irnir mínir hafa spilað áður í Jimmy Kimmel.

Laufey flutti í jan­úar lag sitt Like the Movies í spjall­þætti Jimmy Kimmel sem ku vera einn af vin­sæl­ustu spjall­þátt­unum vest­an­hafs. „Það var mik­ill heiður að fá að syngja í þessum þætti. Allir upp­á­halds­tón­list­ar­menn­irnir mínir hafa spilað áður í Jimmy Kimmel. Ég held að Íslend­ingar hafi í fyrsta skipti farið að taka eftir mér eftir að ég kom þar fram. Ég fékk að vita kvöldið áður að ég væri að fara að spila í þessum þætti af því að hljóm­sveitin sem átti að koma fram var með Covid þannig að umboðs­mað­ur­inn minn sagði mér að ef þeir yrðu líka jákvæðir morg­un­inn eftir þá myndi ég koma fram næsta morgun. Klukkan var orðin sex um kvöldið þegar hann hringdi í mig og sagði að ég ætti að fara heima og æfa mig. Þess vegna var ég ein og ekki með neina hljóm­sveit,“ segir Laufey sem spil­aði á flygil á meðan hún söng þetta djass­skotna lag sitt.

Maybe one day I’ll fall in a bookstore
Into the arms of a guy
We’ll sneak into bars
And gaze at the stars
Surrounded by fireflies

Oh, I’d like to sleep in ’til two on a Sunday
And listen to the bluebirds sigh
Get soa­ked in the rain
And smile through the pain
Slow dance under stormy skies

Maybe I’m just old-fas­hioned
Read too many fairyta­les
It’s no wonder I’ve had no luck
No one’s ever good enough
I want a love like I’ve seen in the movies
That’s why I’ll never fall in love

Oh, maybe I’m just old-fas­hioned
Read too many fairyta­les
It’s no wonder I’ve had no luck
No one’s ever good enough
I want a love like I’ve seen in the movies
That’s why I’ll never fall in love

(Mynd: Gemma Warren.)

Hringdi grátandi heim

23 ára og farin að vekja mikla athygli. Í 10. sæti á Spotify vestra. Þess má geta að í fyrra sá Laufey um tón­list­ar­þátt á BBC Radio 3 þar sem hún lagði áherslu á sígilda tón­list, djass­tón­list og popptón­list þar sem söngv­arar eru í aðal­hlut­verkum.

Hverjir eru draum­arnir? „Ég veit það ekki. Allt sem ég hefði sagt fyrir ári síðan er ég eig­in­lega búin að upp­lifa. Það væri geggjað að vinna Grammy-verð­laun ein­hvern tím­ann. Það er draum­ur­inn. Eða vera bara til­nefnd. Svo langar mig til að semja kvik­mynda­tón­list. En ann­ars langar mig til að halda áfram að kynna fólki fyrir djassi og klass­ískri tón­list og halda áfram að lifa líf­inu og semja tón­list og texta um það.“

Þetta var frekar erfitt fyrir and­legu heils­una.

Laufey er spurð hvaða lífs­reynsla hafi mótað hana mest. Hún segir að það hafi verið frekar mikið áfall að flytja 19 ára gömul til Banda­ríkj­anna og yfir­gefa fjöl­skyld­una á Íslandi. „Ég er mjög náin fjöl­skyld­unni minni og sér­stak­lega tví­bura­systur minni. Þetta var frekar erfitt fyrir and­legu heils­una. Það tók mikið á og mig lang­aði alltaf til að fara heim og hringdi grát­andi í mömmu og pabba á hverjum ein­asta degi. Mér fannst ég ekki passa alveg inn í heim­inn sem allir þessir amer­ísku krakkar voru í. Þannig að það var pínu erfitt. En ég lærði svo mikið af því og ef ég hefði ekki farið í gegnum það þá hefði ég ekki samið þessa tón­list. Og ef ég hefði ekki samið þessa tón­list þá væri ég ekki að gera það sem ég er að gera í dag. Þetta teng­ist allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins