„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Húsnæðiskreppa í borginni: „Stofna byggingarfélag og fjarlægja milliliði“

Húsnæðiskreppa í borginni: „Stofna byggingarfélag og fjarlægja milliliði“
Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd/skjá­skot.

Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sós­í­alista kynnir til­lögu sína í hús­næð­is­málum  – í borg­ar­stjórn í næstu viku. Í henni felst að Reykja­vík­ur­borg stofni bygg­ing­ar­fé­lag. Samkvæmt Sós­í­alista­flokks­ins þekk­ist þetta fyr­ir­komu­lag í borgum víða í kringum okkur og hefur hjálpað við að koma skikk á hús­næð­iskrepp­una.

Tillaga borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks Íslands um stofnun bygg­ing­ar­fé­lags
Reykja­vík­ur­borgar

„Borg­ar­stjórn sam­þykkir að fela við­eig­andi sviðum innan borg­ar­innar að hefja nú þegar
und­ir­bún­ing að stofnun bygg­ing­ar­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar, sem hefur það að
mark­miði að byggja íbúðir fyrir þær mann­eskjur og fjöl­skyldur sem eru í mestum
hús­næð­is­vanda. Markmið bygg­ing­ar­fé­lags­ins verði að sjá um allt ferlið frá upp­hafi til
enda og er umhverfis- og skipu­lags­sviði falið að skoða hvernig megi útfæra slíkt, í
sam­vinnu við vel­ferð­ar­svið og fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­svið borg­ar­innar. Þar þarf
að skoða inn­flutn­ing bygg­ing­ar­efnis og mögu­leg magninn­kaup sem standa þar til boða
og útfæra hug­myndir um ráðn­ingar í verkin. Hlutverk bygg­ing­ar­fé­lags­ins verði að sjá
um upp­bygg­ingu íbúð­anna á borg­ar­landi og leigja út íbúð­irnar í óhagn­að­ar­drifnum
rekstri.“

Sós­í­alistar í borg­inni vilja að upp­bygg­ingin og útleigan komi beint inn á borð borg­ar­innar en með því megi fjar­lægja þá milli­liði sem leit­ast við að græða á hús­næð­is­upp­bygg­ingu og útleigu íbúða út úr jöfn­unni, sem skilar sér í lægra leigu­verði fyrir borg­ar­búa.

Grein­ar­gerð:

„Hús­næð­iskreppa ríkir í borg­inni þar sem mik­ill skortur er á íbúðum, slíkt hefur sprengt
upp leigu­verð á almennum leigu­mark­aði og gerir mann­eskjum í hús­næð­is­vanda erfitt
fyrir. Það er nauð­syn­legt að borgin grípi inn í aðstæður af auk­inni alvöru og sjái um að
byggja fyrir borg­ar­búa sem eru í mestri neyð. Með upp­bygg­ingu bygg­ing­ar­fé­lags
Reykja­vík­ur­borgar getur borgin skapað hús­næð­is­fé­lag sem er algjör­lega aðskilið
fyr­ir­tækjum með gróða­sjón­ar­mið í huga. Eins og staðan er núna koma margir aðilar
að upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni. Með því að koma hluta af upp­bygg­ing­unni og
útleig­unni beint inn á borð borg­ar­innar má fjar­lægja þá milli­liði sem leit­ast við að græða
á hús­næð­is­upp­bygg­ingu og útleigu íbúða út úr jöfn­unni, sem skilar sér í lægra
leigu­verði fyrir borg­ar­búa. Það er nauð­syn­legt að tryggja að nægar íbúðir séu í boði
en hús­næð­iskreppan grefur sífellt undan lífs­kjörum almenn­ings, þó auð­vitað mest
hinna verst settu og það er á ábyrgð borg­ar­innar. Það er full­reynt að líta til mark­að­ar­ins
í von um að hann veiti lausn á vand­anum. Við þurfum að koma félags­legum lausnum
í fram­kvæmd og bygg­ing­ar­fé­lag Reykja­víkur yrði þar kröftug við­bót inn í
hús­næð­is­upp­bygg­inu á meðan unnið er að því að styrkja önnur óhagn­að­ar­drifin
leigu­fé­lög og styðja íbúða­upp­bygg­ingu á vegum verka­lýðs­fé­lag­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins