„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Þór: „Tók ekki nema tvö ár af hreyfingarleysi í „þægilegri innivinnu” fyrir líkamann að hrynja“

Jón Þór: „Tók ekki nema tvö ár af hreyfingarleysi í „þægilegri innivinnu” fyrir líkamann að hrynja“

„Fyrir 5 árum gaf lík­am­inn mér 10 kíló í fer­tugs­af­mæl­is­gjöf. Ég var alltaf grannur en vand­ist þessu ótrú­lega fljótt. Var bara „ánægður“ með vel­meg­unar vömb­ina. En fyrir minn lík­ama þýddi þetta líka aug­ljósar hrotur sem trufl­uðu svefn kon­unar minnar og fal­inni kæfisvefn svo ég vakn­aði þreyttur og hafði ekki orku til að hreyfa mig. Prófaði föstur og ketó og að klippa út kol­vetni. Borðaði lítið og mikið. Breytti engu. Það tók svo ekki nema tvö ár af hreyf­ing­ar­leysi í „þægi­legri inni­vinnu” fyrir lík­amann að hrynja. Hægri öxlin lítið not­hæf og verkjuð, sú vinstri stíf með stirð­leika upp í háls og svo vont tak í bakið. Ekkert þol og öll hreyf­ing að verða erf­ið­ari og erf­ið­ari.“

Þetta segir Jón Þór Ólafsson, en hann var kos­inn þing­maður fyrir Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í Alþing­is­kosn­ing­unum 2013. Hann sagði af sér þing­mennsku í júlí árið 2015 og hefur meðal ann­ars sinnt mal­bik­un­ar­vinnu. Jón Þór hyggst gefa út leið­ar­vísi um stjórn­mál. Jón Þór var kos­inn aftur á þing árið 2016 í Suð­vest­ur­kjör­dæmi 2016–2017 og 2017–2021.

Jón var farin að venj­ast þeirri til­hugsun að vera orðin gam­al­menni.

„Ég var að byrja að venja mig við þá hugsun að ég væri bara að verða gam­al­menni. Konan mín var ekki að sætta sig við það og bauð mér með sér í Hot Yoga fyrir byrj­endur hjá Agnari Diego. Það áhuga­verða var að því þreytt­ari sem ég var þegar ég fór í Hot Yoga, því betur leið mér og því meiri orku hafði ég eftir tíman. Hálfu ári síðar er hægri öxlin eins og ný og bakið miklu betra.

Ég kru­fði það hvernig Agnar hefur hannað Hot Yoga tím­ana sína. Þvílík snilld! Það eru svo mörg augna­blik þar sem maður er þakk­látur og ánægður að hafa mætt, sem hefur sál­fræði­leg áhrif á að maður vilji mæta næst. Öll lík­ams­rækt virkar, en aðeins ef maður mætir. Ég hef hreyft mig mesta ævina en ekki nennt í rækt­ina. Mig langar alltaf í Hot Yoga tíma hjá Agnari. Hvíld í heitum sal í upp­hafi sem flæðir inn í vina­leg inn­gangs­orð sem leiða okkur af stað í tempó sem keyr­ist upp þar til maður verður svo þakk­látur fyrir hvíld­ina og kaldan vatns sopan (takið ein­angr­aðan brúsa). Dásam­legt :)“

Jón segir að eftir mörg ár hafi hann loks­ins getað klappað sjálfum sér alls staðar á bak­inu.

„Vinstri öxlin losn­aði svo í tíma hjá Ellý Ármanns, og takið líka upp í stífan háls sem hefur verið mjög við­kvæmur. Konan mín bauð mér með í Hot Body nám­skeið hjá Ellý sem er alls herjar lík­ams­vinna í heitum sal með djúp teygjum í lokin. Eftir fyrsta tíma þá vildi ég helst gubba. Núna eftir aðeins fimm tíma er þolið miklu meira og ég finn hvað vöðvarnir eru að styrkj­ast. Í bónus þá losn­aði svo loks­ins vinstri öxlin og stífleik­inn í háls­inum með einni ein­ustu djúpteygju við herða­blöðin. Eftir mörg ár get ég loks­ins klappað sjálfum mér alls staðar á bak­inu. Það er aug­ljóst að Ellý stundar ekki bara lík­ams­rækt, hún lifir lík­ams­rækt, og henni tókst með gríð­ar­legum áhuga og ákafa sem samt er mildur, að planta þeirri trú hjá mér að ég muni aftur verða hraustur í lík­ama sem gott er að lifa í.

– Takk fyrir mig 🙂 og sjá­umst í næsta tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins