„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll segir almenning féflettann: „Plata nógu marga til að halda svikamyllunni gangandi“

Páll segir almenning féflettann: „Plata nógu marga til að halda svikamyllunni gangandi“
Páll Vil­hjálms­son. Samsett mynd.

Páll Vil­hjálms­son, blogg­ari á Morg­un­blað­inu er ekki sáttur við það sem hann kallar vinstri­fjöl­miðla. „Vinstri­flokkar og fjöl­miðlar þeirra eru fitu­lag á þjóð­ar­lík­am­anum sem þykknar með auk­inni vel­megun.“

Hann gefur ekki mikið fyrir íslenska fjöl­miðla sem hann segir stofna flokka til að kom­ast á rík­is­jöt­una. „Mark­miðið er að ná í nægi­lega mörg atkvæði, um 2,5%, og fá rík­isfé.“

En aðal­mark­miðið að hans mati, er að fá þægi­lega inni­vinnu, vel­borg­aða með frjálsum vinnu­tíma.

Hér má rýna betur í það sem Páll er ósáttur við:

„Nýr fjöl­mið­ill sós­í­alista­for­ingj­ans Gunnars Smára bæt­ist við flóru vinstri­fjöl­miðla. Fyrir á fleti eru RÚV, Stundin og Kjarninn, RSK-miðlar. Nú kemur í góðar þarfir rík­is­styrkur Sós­í­alista­flokks­ins. RSK-miðlar eru á rík­is­fram­færi, RÚV alfarið.

Aðrir miðlar með sömu rit­stjórn­ar­stefnu eru Mannlíf og Frétta­blaðið. Báðar útgáf­urnar eru með auð­mannaí­vafi.

Á fjöl­miðla­mark­aði má þekkja aðferða­fræði vinstri­manna úr flokkspóli­tík. Þeir stofna flokka til að kom­ast á rík­is­jöt­una. Flokk­arnir fara hver í sínu lagi á kosn­inga­veiði­lendur að elta uppi kjós­endur fyrir hvert kjör­tíma­bil. Mark­miðið er að ná í nægi­lega mörg atkvæði, um 2,5%, og fá rík­isfé.

Flokkar vinstri­manna bjóða hver upp á sína útgáf­una af vinstripóli­tík og sama gera vinstri­m­iðl­arnir. Þar er bita­munur en ekki fjár. Að baki liggur hugs­unin að á hverjum tíma sé hægt að plata nógu marga til að fylkja liði um ein­hverja vinstri­sér­visku.

Í leið­angri Gunnars Smára er end­ur­nýtt sam­fylk­ing­ar­fólk, Ólína fyrrum þing­maður, Vg-lið­inn Þóra Ásgeirs og eflaust fleiri.

Bæði í flokkspóli­tík og fjöl­miðla­rekstri er mark­miðið það sama; að fá þægi­lega inni­vinnu vel­borg­aða með frjálsum vinnu­tíma. Her­fræðin er alltaf að féfletta almenn­ing með einum eða öðrum hætti.

Einu liða­mótin sem vinstri­menn nenna að hreyfa eru þar sem kjálki mætir kúpu. Mál­beinið gefur sístreymi orða er flæða fram í fjöl­miðlum og á þjóð­ar­sam­kund­unni. Vit­an­lega er ekk­ert að marka orðin. En, sem sagt, á hverjum tíma er hægt að plata nógu marga til að halda svika­myll­unni gang­andi. Þannig er tryggt fram­lag úr rík­is­sjóði og þannig er almenn­ingur féflettur.

Vinstri­flokkar og fjöl­miðlar þeirra eru fitu­lag á þjóð­ar­lík­am­anum sem þykknar með auk­inni vel­megun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins