„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ritstjóri DV hitti fyrir tilviljun föður: „hættu­legasta manns inter­netsins“

Ritstjóri DV hitti fyrir tilviljun föður: „hættu­legasta manns inter­netsins“
Mynd sam­sett.

Björn Þor­finns­son, rit­stjóri DV, segir frá því í pistli í dag að hann hafi farið út á lífið með föður Andrew Tate, sem hefur verið nefndur hættu­leg­asti maður inter­nets­ins. Tate hefur verið bann­aður af nær öllum sam­fé­lags­miðlum á síð­ustu vikum vegna við­horfa sinna en Björn og föður hans hitt­ust fyrir algjörri til­viljun.

„Það kom svo­lítið á mig þegar ég las fréttir er­lendra og ís­lenskra miðla um að sam­fé­lags­miðla­stjarnan og millj­arða­mær­ing­ur­inn Andrew Tate væri sagður „hættu­leg­asti maður inter­nets­ins,“ skrifar Björn á DV.

„Hann er geysi­vin­sæll á helstu sam­fé­lags­miðlum, sér­stak­lega hjá ungum drengjum, en á veit­unum úðar hann út ó­geð­felldum skoð­unum sínum sem ein­kenn­ast af kven­hatri og for­dómum. Stærstu sam­fé­lags­miðla­veit­urnar hafa ein af annarri lokað á Tate og því á eftir að koma í ljós í hvaða myrku af­kimum inter­nets­ins hann mun ná að spúa eitri sínu næst. Ég hef bless­unar­lega aldrei hitt Andrew Tate en ein­hvern veg­inn finnst mér ég eins og ég þekki hann lítil­lega. Þetta er sagan af því þegar ég datt í það með föður „hættu­leg­asta manns inter­nets­ins,“ bætir hann við.

Björn seg­ist hafa hitt Emory Tate, föður Andrew, þegar hann tók þátt í skipu­leggja al­þjóð­legt skáks­mómt, Reykja­vík International árið 2007.

„Hann hafði sam­band og vildi endi­lega heim­sækja Ís­land og við á­kváðum að bjóða honum yfir hafið til að taka þátt enda hafði ég oft lesið um kapp­ann sem var hálf­gerð rokk­stjarna í banda­ríska skák­sam­fé­lag­inu. Hann var flug­gáf­aður vél­byssu­kjaftur, tal­aði fjölda tungu­mála, þar á meðal rúss­nesku, og hafði átt far­sælan feril í banda­ríska flug­hernum. Hann þótti tefla ein­stak­lega skemmti­lega og hafði lag á því að valta yfir sterka stór­meist­ara þó inn á milli gerð­ust slys gegn veik­ari skák­mönn­unum.

Hann virt­ist líka geisla af sjálfs­trausti, sagð­ist aldrei æfa sig eða stúd­era skák heldur sett­ist bara niður og léti vaða. Leik­ur­inn flókni væri honum í blóð bor­inn og hann var gjarn á að benda á að ef hann hefði haft þjálf­ar­ana og tæki­færin til að helga sig skák­list­inni þá væri hann einn af þeim allra bestu í heim­inum. Ef maður hefði getað tappað sjálfs­trausti Emory Tate á flöskur og selt þá væri maður vell­auð­ugur.

Emory hafði heyrt lof­ræður um ís­lenskt nætur­líf og því varð það úr, eitt föstu­dags­kvöld á meðan á mót­inu stóð, að ég heim­sótti hann á hót­elið hans í mið­bænum til þess að sýna honum dýrð­ina. Hann bauð mér inn, reif síðan upp 1 lítra vodka­flösku og skenkti í tvö glös. Ég var byrj­aður að skima um her­bergið eftir ein­hvers­konar í­blöndun þegar Emory lyfti upp glasi og sagði: „We drin­k it like the Russians.

Emory Tate var fæddur árið 1958 og hafði greini­lega orðið fyrir þeim á­hrifum af Kalda stríð­inu að Rússar væru upp­haf og endir alls ills. Skák­listin var því að mörgu leyti nokkuð ó­heppi­leg í­þrótt fyrir kapp­ann enda hafa Rússar iðu­lega borið höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir á þeim vett­vangi og á al­þjóð­legum mótum er venju­lega allt krökkt af ógnar­sterkum Rússum. Hann sá því ó­vini á hverju horni á skák­mótum,“ skrifar Björn.

Hér er hægt að lesa frá­sögn Björns í heild sinni á DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins