„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eitruð karlmennska og kjötætu-kúltúrinn: „Viljum gjörbylta neysluhegðun fólks“

Eitruð karlmennska og kjötætu-kúltúrinn: „Viljum gjörbylta neysluhegðun fólks“
Mynd/skjá­skot.

„Businesss-aktí­vismi er það að í stað­inn fyrir að pen­ingar og hagn­aður sé fyrsti for­gangur þá er for­gang­ur­inn sá að gera rétt og hafa sem mest áhrif til góðs. Við þurfum auð­vitað tekjur til að gera þessa hluti en við munum aldrei græða á ein­hverju sem er sið­ferð­is­lega rangt.“ segir Sæunn Ingi­björg Mar­ín­ós­dóttir fram­kvæmda­stjóri, með­eig­andi og með­stofn­andi Vegan­matar sem rekur Vegan­búð­ina og Jömm er gestur í nýjasta þætti hlað­varps­ins Karl­mennskan.

Þar segir Sæunn meðal ann­ars frá ævin­týra­legri stækkun Vegan­búð­ar­innar, sem á örfáum árum varð stærsta vegan­búð í heim­inum, hvað það þýðir að vera bus­iss­ness-aktí­visti og hvernig eitruð karl­mennska er stærsti óvinur vegan­ism­ans.

Eitruð karlmennska og kjötætu-kúltúrinn er andstæða veganismans

Þor­steinn, umsjón­ar­maður hlað­varps­ins, veltir upp þeirri spurn­ingu hvers vegna stóru bak­aríin í Reykja­vík bjóði ekki upp á jafn gott úrval af vegan bakk­elsi eins og sum bak­arí í mun smærri byggðum eins og á Akureyri og Grinda­vík. Sæunn hikar í smá stund og svarar: „Þetta hljómar eins og ég sé að smjaðra en ég segi að svarið sé svoldið eitruð karl­mennska.“

Steinunn bætir því við að þetta eigi ekki bara við um bakk­elsi heldur sé kjöt- og karl­remba nátengt þar sem litið er niður á karla sem eru vegan, þeir gjarnan upp­nefndir soy­boys eða álitnir ekki alvöru karlar. „Eitruð karl­mennska og kjöt­ætu-kúlt­úr­inn eru and­stæða vegan­ism­ans og ein stór ástæða hvers vegna það er hávaði á móti vegan.“

Markmiðið að umbylta neysluhegðun fólks

Hún nefnir sem dæmi að hún versli ekki við Nestlé og ekki heldur  vörur sem fram­leiddar eru á hernumdum svæðum í Palest­ínu.

„Á tíma­bili var rosa­legur hávaði yfir vegan KitKat sem kom á markað erlendis og fólk bað okkur um að selja. En við vildum ekki að pen­ingar úr okkar rekstri fari í að styðja Nestlé. Við erum ekki með Hälsans Kök sem er fram­leitt á hernumdum svæðum í Palest­ínu. Við tökum ekki þátt í þessu, þó það sé mikil eft­ir­spurn eftir þessum vörum.“

Þá segir Sæunn að mark­mið rekst­urs­ins sé að umbylta neyslu­hegðun fólks. „Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta, við viljum gjör­bylta neyslu­hegðun fólks. Ég er ekki að tala um að gjör­bylta með „sham­ing“ og látum, heldur viljum við sjá til þess að það sé skemmti­legra, auð­veld­ara og ljúf­feng­ara að vera vegan en vera það ekki.“

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni á karl­mennskan.is, Podcasts, Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins