„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Séra Gunnari bannað að jarðsyngja vinkonu sína í Hveragerði – „Þetta ber keim af hatri biskupsins“

Séra Gunnari bannað að jarðsyngja vinkonu sína í Hveragerði – „Þetta ber keim af hatri biskupsins“

Séra Gunnari Björns­syni, fyrr­ver­andi sókn­ar­presti, var bannað að jarð­syngja konu í Hvera­gerði þrátt fyrir ein­dregna ósk fjöl­skyldu hinnar látnu. Um var að ræða mikla vin­áttu milli Gunnars lg fjöl­skyld­unnar allt frá því hin látna og séra Gunnar bjuggu í Önund­ar­firði þar sem hann þjón­aði um ára­bil. Gunnar heim­sótti kon­una í tvígang á sjúkra­beð hennar og aðstoð­aði fjöl­skyld­una í hví­vetna fyrir and­látið.

Guð­mundur Jón Sig­urðs­son, sonur hinnar látnu, segir málið vera allt hið und­ar­leg­asta og bera keim af hatri.

Ninna Sif Svav­ars­dóttir bann­aði að séra Gunnar sæi um útför­ina.

„Við óskuðum eftir því við sókn­ar­prest­inn að jarð­sungið yrði frá Hvera­gerð­is­kirkju. Prest­ur­inn, Ninna Sif Svav­ars­dóttir, bann­aði að Gunnar sæi um athöfn­ina og sagð­ist hafa þau fyr­ir­mæli frá Þjóð­kirkj­unni. Þetta ber keim af hatri bisk­ups­ins,“ segir Guð­mundur. Hann er með sms frá prest­inum sem stað­festir höfn­un­ina. Guð­mundur sendi í fram­hald­inu erindi á Agnesi Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands, með ósk um að Gunnar fengi að jarð­syngja hina látnu.

Hann hefur sinnt for­eldrum mínum í veik­indum móður minnar

„Heil og sæl frú Agnes. Freista þess að leita ásjár hjá þér í smá vand­ræðum. Móðir mín lést í vik­unni sem leið og við fjöl­skyldan ræddum við hina öldnu kempu, séra Gunnar Björns­son, um að syngja yfir henni. Hann tók því vel. Systir mín gekk í að fá inni í kirkj­unni í Hvera­gerði kom­andi mánu­dag og var í sam­bandi við prest­inn í Hvera­gerð­is­kirkju.

Guð­mundur Jón Sig­urðs­son.

Það komu smá­skila­boð frá séra Ninnu Sif um að Gunnar væri ekki leyfður í kirkj­unni, það væri ákvörðun Þjóð­kirkj­unnar. Nú þyk­ist ég vita að um ein­hvern mis­skiln­ing sé að ræða sem auð­velt ætti að vera að greiða úr. Því leita ég lið­sinnis hjá þér með þetta mál. Gunnar varð vinur okkar fjöl­skyld­unnar þegar við öll bjuggum vestur í Önund­ar­firði. Hann hefur sinnt for­eldrum mínum í veik­indum móður minnar nú í sumar, auk þess sem sam­band hefur verið eftir þau sett­ust öll að á Suð­ur­land­inu,“ segir í bréfi Guð­mundar til bisk­ups 29 ágúst sl.

Ekkert svar barst frá bisk­upi, Brynja Dögg Guð­munds­dóttir Briem, yfir­maður fast­eigna­sviðs Þjóð­kirkj­unnar, svar­aði erind­inu níu dögum síðar og tveimur dögum eftir að jarð­ar­för­inni lauk.

„Ég bið þig inni­lega að afsaka hve seint ég svara erindi þínu og votta þér samúð mína. Því miður er séra Gunnar ekki lengur í þjón­ustu svo ekki er hægt að verða við beiðni þinni. Ég vona að þið finnið annan prest í presta­kall­inu sem reyn­ist ykkur vel,“ skrif­aði Brynja Dögg.

Fjöl­skyldan sá sitt óvænna og fékk annan prest til að jarð­syngja hina látnu. Séra Önundur S. Björns­son, prestur á eft­ir­launum sem einnig er úr Önund­ar­firði, tók að sér verk­efnið.

Engin skýr­ing fæst á því af hverju biskup ákvað að úthýsa Gunnari sem er með hreinan skjöld. Hann var sýkn­aður á sínum tíma bæði í und­ir­rétti og Hæsta­rétti af ásök­unum um að hafa mis­boðið ungum stúlkum. Guð­mundur segir að þrátt fyrir bann­fær­ingu bisk­ups­ins hafi fjöl­skyldan fundið Gunnari hlut­verk í athöfn­inni. Hann er selló­leik­ari í fremstu röð og tók að sér að spila við útför­ina. Hann upp­skar mikið lof kirkju­gesta fyrir tóna sem þóttu vera himneskir.

„Hann spil­aði þannig að móðir mín og almættið máttu vel við una,“ segir Guð­mundur Jón.

Fjöl­skyldan bíður þess nú að fá skýr­ingar á fram­komu bisk­ups í garð prests­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins