„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Köld kveðja til látinnar drottningar: „Þjálfuð í að ganga með þungar orðabækur á hausnum“

Köld kveðja til látinnar drottningar: „Þjálfuð í að ganga með þungar orðabækur á hausnum“
Guð­mundur Andri Thorsson

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar minnir fólk á ljóta sögu kon­ungs­veld­is­ins í Englandi í nýrri færslu á Facebook. Þar líkir hann kon­ungs­fjöl­skyld­unni bresku við sveita-aðal úr Eyja­firði.

„Elísabet Eng­lands­drottn­ing var aldrei mín drottn­ing og almennt talað er ég lít­ill drottn­ing­ar­maður, hvað þá kónga. Þetta eru tákn­myndir valds og eig­in­leika sem sam­komu­lag ríkir um að haldnir skuli í heiðri. Skyldu­rækni í til­viki hennar, og allir dást að henni þó að minna fari fyrir því að hug­leiða að hverju trún­að­ur­inn beind­ist: sam­veld­inu, heims­veld­inu, völdum og ítökum Eng­lend­inga um allan heim, sem er nú ekki saga sem sú þjóð hefur ástæðu til að vera stolt af. Hún var sam­ein­ing­ar­tákn þess sem var liðið undir lok – til allrar ham­ingju,“ skrif­aði Guð­mundur Andri í færslu sinni.

Í seinni hluta færsl­unnar líkir hann kon­ungs­fjöl­skyld­unni við sveita-aðal úr Eyja­firði sem uni sér best í fjós­inu.

„Á meðan ég ent­ist til að horfa á fjöl­skyldu­dra­mað um hana sýnd­ist mér þetta fólk vera fremur dugn­að­ar­legur sveita-aðall, kannski eins og fólk frá mynd­ar­býli í Eyja­firði sem unir sér best á stíg­vél­unum úti í fjósi en kann sig líka í hásölum valds­ins. Fólk sem lét dag­ana líða við refa­veiðar og útreiðar og tedrykkju með til­heyr­andi hjali, for­pokað en með vissan beittan húmor. Pompið og praktin og prjálið sem fylgir þessum menn­ing­ar­leifum verður erf­ið­ara að rétt­læta þegar það bein­ist að eft­ir­lif­andi með­limum því að Elísa­betu fylgdi reisn og hún bar alltaf skartið vel, tein­rétt og aug­ljós­lega þjálfuð í að ganga með þungar orða­bækur á hausnum og masa við alls konar fólk af þeirri fjar­huga vin­semd sem hátign­ar­fólk þarf að temja sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins