„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Konur í Flokki fólksins á Akureyri sagðar „of vitlausar“ og „geðveikar“

Konur í Flokki fólksins á Akureyri sagðar „of vitlausar“ og „geðveikar“
Mynd/sam­sett

Kven­full­trúar Flokks fólks­ins á Akureyri segj­ast lít­ils­virtar með ótrú­lega niðr­andi og fyr­ir­lit­legri fram­komu í sinn garð af hálfu karl­kyns trún­að­ar­manna flokks­ins í bænum. Þær Mál­fríður Þórð­ar­dóttir, Tinna Guð­munds­dóttir og Hann­esína Scheving Virgild Chester hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þær stíga fram og segja sína sögu.

„Við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömur­lega reynslu af sam­skiptum við þessa ónefndu karlafor­ystu og aðstoð­ar­manna þeirra á frá því snemma í vor,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu þre­menn­ing­anna en fyrr í morgun óskaði vara­for­maður flokks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son eftir stjórn­ar­fundi hjá flokknum vegna ásakan­anna.

Í kjöl­far beiðni Guð­mundar ákváðu Mál­fríður, Tinna og Hann­esína að stíga fram og segja frá sinni hlið. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að þann 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hafi odd­viti flokks­ins boðað til fundar á heim­ili sínu þar sem þær töldu að mark­miðið væri að koma á ró og vinnu­friði.

„Eftir síð­ustu bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingar þar sem flokk­ur­inn okkar vann stór­sigur var mik­ill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakk­læti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýr­mæta atkvæði og um leið tæki­færi til að koma kær­leiks­ríkum góðum mál­stað Flokks fólks­ins á fram­færi. Við ætl­uðum að vinna af krafti við að byggja upp félags­starf flokks­ins okkar hér heima. Einnig ætl­uðum við að hafa sam­ráð varð­andi öll bæj­ar­ráðs­mál með því að styðja og styrkja hvert annað.  En í ljósi reynsl­unnar af sam­skiptum við karl­kyns­for­ystu flokks­ins og aðstoð­ar­manna hefur þessi góði vilji okkar frekar lit­ast af draum­sýn en veru­leika.

Efstu konur á lista flokks­ins voru sífellt lít­ils­virtar og huns­aðar. Á trún­að­ar­fundum flokks­ins vorum við sagðar of vit­lausar eða jafn­vel geð­veikar til að vera mark­tækar. Sumar okkar máttu sæta kyn­ferð­is­legu áreiti og virki­lega óvið­eig­andi fram­komu til við­bótar við að vera ekki starf­inu vaxnar og geð­veikar.

Á fund­inum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfir­gaf vara­bæj­ar­full­trúi hann grát­andi eftir tíu mín­útur.  Odd­vit­inn dró þá fram bréf sem hann las upp og hót­aði að birta. Bréf sem var hlaðið róg­burði, rang­færslum og hót­unum um að við misstum starfs­leyfi okkar sem heil­brigð­is­starfs­menn ef við létum ekki að stjórn.  Alla daga síðan hafa þessar hót­anir verið við­var­andi og umræddu hót­un­ar­bréfi dreift.“

Að lokum viljum við segja þetta:

Það er okkur sár­ara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opin­ber­lega um þá erf­ið­leika og þau inn­an­flokksá­tök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálf­sögðu sú að við viljum ekki á neinum tíma­punkti skaða flokk­inn og allt það góða fólk innan Flokk fólks­ins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar vara­for­mað­ur­inn okkar hefur stígið fram og ætlar aug­ljós­lega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekk­ert annað koma til greina en að segja okkar sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins