„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

María Rut Kristinsdóttir: „Stóra verkefnið að breyta viðhorfum til hinsegin fólks“

María Rut Kristinsdóttir: „Stóra verkefnið að breyta viðhorfum til hinsegin fólks“
María Rut Krist­ins­dóttir

UN Women á Íslandi ýtti úr vör á dög­unum Fokk ofbeldi-her­ferð í átt­unda skipti. Í ár var farin ný leið þar sem varn­ing­ur­inn er alís­lenskur.

„Védís Jóns­dóttir prjóna­hönn­uður hann­aði ótrú­lega fal­lega og kraft­mikla vett­linga sem Varmi sá um að fram­leiða,“ segir María Rut Krist­ins­dóttir, kynn­ing­ar­stýra UN Women á Íslandi.

UN Women er sú stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem berst fyrir rétt­indum og mál­efnum hinsegin fólks um allan heim og bendir María Tut á að jafn­rétti verði ekki náð nema með jöfnum rétt­indum allra hópa.

„35% ríkja heims búa yfir lögum sem banna hinseg­in­leika og 84% ríkja heims banna sam­kynja hjóna­bönd. Með því að kaupa vett­linga stuðlar almenn­ingur að því að aukið bol­magn verði hjá UN Women á heims­vísu að berj­ast gegn þessu bakslagi. Hinsegin sjóður UN Women er eins og sakir standa tómur. Því er gríð­ar­lega mik­il­vægt að hrinda af stað söfnun sem þess­ari á þessum tíma­punkti.“

Víða býr hinsegin fólk við gríð­ar­lega mis­munun.

María Rut segir að mikið bakslag hafi orðið í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks á síð­ustu árum, þar með talið innan Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem aðilda­ríki takast á um þessi mál­efni.

„Víða býr hinsegin fólk við gríð­ar­lega mis­munun, skert rétt­indi og ofbeldi sökum kyns og kyn­hneigðar. Það er því gríð­ar­lega mik­il­vægt að UN Women standi áfram vörð um vel­ferð og rétt­indi hinsegin fólks á tímum sem þessum. Við viljum benda á stöð­una í heim­inum gagn­vart rétt­indum hinsegin fólks á sama tíma og hér er að verða ömur­legt bakslag í orð­ræðu og í umræð­unni.“

Erum ekki að biðja um mikið

María Rut segir að hér á landi hafi margt áunn­ist í bar­átt­unni síð­ast­liðna ára­tugi.

Heim­ur­inn væri ekki skemmti­legur ef við værum öll nákvæm­lega eins.

„Hinsegin fólk hefur farið frá því að vera for­dæmt og útskúfuð yfir í að vera virkir þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu okkar. Ég til­heyri auð­vitað þeirri kyn­slóð sem að mörgu leyti tók bara á móti þeim rétt­indum sem kyn­slóð­irnar á undan börð­ust fyrir. Og mörg þeirra töp­uðu ærunni, heils­unni eða jafn­vel sjálfu líf­inu í þeirri bar­áttu. Þannig að mér finnst ábyrgð minnar kyn­slóðar mjög mikil að við­halda þessum rétt­indum og tryggja að hat­rið fái ekki að grass­era í garð hinsegin fólks. 84% ríkja heims banna til dæmis sam­kynja hjóna­bönd eins og þegar hefur komið fram en þau voru lög­leidd á Íslandi 2010. Ég gift­ist ást­inni minni 2018 og ég man að ég hugs­aði þegar ég stóð við alt­arið hversu súr­r­eal­ískt það væri að aðeins átta árum fyrr hefði ég ekki getað átt þessa stund með þessum hætti með mann­eskj­unni minni. Við erum nefni­lega ekki að biðja um mikið; bara að fá að vera til og ekki enda­laust jað­ar­sett fyrir það hvernig við erum. Fjöl­breyti­leik­inn er svo fal­legur og mik­il­vægur. Heim­ur­inn væri ekki skemmti­legur ef við værum öll nákvæm­lega eins, með sömu skoð­anir og lang­anir. Þá kæm­umst við eflaust ekki mjög langt sem sam­fé­lag.“

Alls konar misgáfuleg komment

María Rut seg­ist hafa upp­lifað for­dóma vegna sam­kyn­hneigðar sinnar og hefur henni fund­ist hún þurfa að fela það hver hún er í ákveðnum aðstæðum.

„Við litum ekki út fyrir að vera les­b­íur“.

„Við konan mín lentum mikið í því fyrst þegar við vorum að byrja saman að fólk trúði því ekki að við værum í alvör­unni kærustupar – vegna þess að „við litum ekki út fyrir að vera les­b­íur“ – og alls konar kjána­karlar töldu sig vita betur eða vildu að við „sönn­uðum að við værum saman“ og við heyrðum alls konar mis­gáfu­leg komment.

Þegar við áttum svo von á stráknum okkar sem við eign­uð­umst saman 2019 fundum við fyrir ljótum for­dómum í okkar garð svo sem að við værum að gera barn­inu óleik að eign­ast það því öll börn ættu rétt á að eiga föður og eitt­hvað í þeim dúr.

Það var mjög sárt að sjá og upp­lifa þetta við­mót, enda veit ég sjálf hversu góðir for­eldrar við erum og að við gefum okkar börnum góð og fal­leg skil­yrði. Ég hef svo verið á hlið­ar­lín­unni og fylgst full af aðdáun með því hvernig unga fólkið okkar hefur þorað miklu fyrr en ég nokkurn tíman þorði að vera það sjálft. Og það er orðið mun algeng­ara að ungt fólk sé að koma út úr skápnum í grunn­skólum lands­ins sem er í alvör­unni svo mik­il­væg og góð þróun. Vegna þess að við sem komum seinna út vorum öll allan tím­ann hinsegin í grunn­skóla og mennta­skóla. Við bara þorðum ekki að vera við sjálf af ótta við for­dóma.

Ég var 21 árs þegar ég loks­ins þorði að horfast í augu við sjálfa mig. Þess vegna hef ég líka verið að tala fyrir því að við opnum augun fyrir því að unga, hug­rakka fólkið okkar finnur vel fyrir þessu bakslagi sem við höfum fundið fyrir hvort sem er í formi skemmda­verka, hót­ana, hat­urs­orð­ræðu eða auknu óþoli í garð hinsegin ein­stak­linga. Ég skrif­aði um þetta grein á dög­unum og minnt­ist á að sum þeirra þurfa nú að þola það að kallað sé til þeirra ókvæð­is­orðum, til­vera þeirra ekki við­ur­kennd, gelt að þeim og þeim hótað líf­láti eða þau hvött til þess að taka eigið líf. Þetta er að ger­ast í gegnum skila­boð á sam­fé­lags­miðlum, á skóla­göng­unum, í félags­mið­stöðv­unum eða jafn­vel út á götu. Ég hef því miður séð of mörg dæmi um nákvæm­lega þetta síð­ustu mán­uði.“

Hinseginleikinn

María Rut og eig­in­kona hennar, Ingileif Frið­riks­dóttir, hafa staðið fram­ar­lega í bar­áttu fyrir hinseg­in­rétt­indum síð­ustu ár.

Hinseg­in­leik­inn er orðið mjög stórt verk­efni.

„Við Ingileif stofn­uðum Hinsegn­leik­ann árið 2016 með það að mark­miði að upp­ræta for­dóma, kasta stað­al­myndum hinsegin fólks út á sjó og fjölga fyr­ir­myndum. Við hófum sam­talið á Snapchat og á tíma­bili voru um 8.000 manns sem fylgd­ust með alls kyns hinsegin ein­stak­lingum segja frá sínum hinseg­in­veru­leika. Það eru nokkrar troð­fullar Eld­borgir í Hörpu. Þetta var á sínum tíma algjört braut­ryðj­enda­verk­efni í því að búa til aukið pláss fyrir fjöl­breyti­leik­ann. Og það hefur verið okkar ástríða síðan þá. Hinseg­in­leik­inn er orðið mjög stórt verk­efni.

Árið 2018 varð Hinseg­in­leik­inn að sjón­varps­þætti sem sýndur var á RÚV. Ég veit til þess að mjög margir sýna þessa þætti sem hluta af hinseg­in­fræðslu og það er eitt­hvað sem við erum mjög stoltar af. Árið 2019 gaf Ingileif svo út hlað­varpið Hinseg­in­leik­inn sem fram­leitt var fyrir RÚV í til­efni af 20 ára afmælis Hinsegin daga og 50 ára afmælis Stonewall-upp­þot­anna.

Árið 2020 gáfum við svo út barna­bók­ina Vertu þú! þar sem við lögðum áherslu á lit­ríkar sögur af fjöl­breyti­leik­anum fyrir yngri börn. Bókin er mikið notuð í grunn­skólum og leik­skólum lands­ins til að hefja sam­tal um fjöl­breyti­leik­ann og þá von­andi koma í veg fyrir óþarfa for­dóma. Börn fæð­ast nefni­lega ekki for­dóma­full; skoð­anir á jað­ar­settum hópum og við­mót er lærð félags­leg hegðun. Stóra verk­efnið er að breyta þessum við­horfum svo við getum öll fengið að vera við sjálf. Við Ingileif erum svo alltaf að halda fyr­ir­lestra í nafni Hinseg­in­leik­ans og yfir­leitt með eina til tvær hug­myndir í ofn­inum í þessum dúr. Við vinnum mjög vel saman og okkur finnst fátt skemmti­legra en verk­efni tengd Hinseg­in­leik­anum.“

Svarti köggullinn hvarf

María Rut varð móðir 18 ára gömul og sagði frá kyn­ferð­is­mis­notkun sem hún varð fyrir í æsku í við­tali fyrir um ára­tug.

Ég er í dag að mestu leyti frjáls frá for­tíð­inni.

„Ég hef svo sem ekki farið klakk­laust í gegnum lífið. Ég er 33 ára og hef lík­lega reynt meira en margir jafn­aldrar mínir. Æskan mín var langt frá því að vera full­komin og ég hef oft opnað mig upp á gátt um þau mál. En fyrir ein­hverjum árum fann ég að það var hluti af for­tíð­inni minni og ekki lengur sami drag­bítur á mér. Svarti kögg­ull­inn innan í mér hvarf og skyndi­lega fannst mér miklu betra líf að horfa fram á veg­inn en ekki stöðugt í bak­sýn­is­speg­il­inn.

En það að takast á við þá reynslu sem ég fékk í vega­nesti í æsku er það langerf­ið­asta sem ég hef upp­lifað og mót­aði mig mikið sem mann­eskju. Ég þurfti svo­lítið að læra það að eiga fjöl­skyldu og að það væri gott að til­heyra slíkri. Nú erum við Ingileif ábyrgar fyrir okkar eigin heim­ili, börnum og hundi og það er ekk­ert sem gefur mér meira í heim­inum en að fá að end­ur­for­rita allar þær til­finn­ingar sem snúa að þeirri ver­öld. Það hefur verið alveg ofboðs­lega lær­dóms­ríkt fyrir mig og mik­il­vægt.

En ofbeldið skil­greinir mig ekki lengur og stýrir mér ekki. Ég er í dag að mestu leyti frjáls frá for­tíð­inni. Ég verð lík­lega aldrei alveg heil og það koma alveg dagar sem eru erf­ið­ari en aðrir en þá bara reyni ég að sýna mér mildi og á auð­vitað bara algjöran klett í kon­unni minni sem les mig eins og opna bók og grípur mig ef það þarf sem verður alltaf sjaldnar og sjaldnar með tím­anum.“

Flokkadrættirnir of ráðandi

María Rut var aðstoð­ar­maður for­manns Við­reisnar á sínum tíma. Hvað lærði hún af því að vinna í tengslum við stjórn­málin og lifa í þeim heimi? Hvað ber að laga í íslensku sam­fé­lagi?

Það er gott fólk í öllum flokkum.

„Ég starf­aði sem aðstoð­ar­maður Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur í fjögur og hálft ár. Það var alveg ofboðs­lega lær­dóms­ríkt og góður tími. Ætli stóri lær­dóm­ur­inn sé samt ekki bara sá að það er alveg hrika­lega mik­il­vægt að það séu ein­stak­lingar í þessu landi sem eru til­búnir að taka á sig þetta mik­il­væga hlut­verk að vera full­trúar þjóð­ar­innar á Alþingi. Og það er gott fólk í öllum flokkum. Ég vildi bara óska þess að fólk gæti unnið betur saman og komið sér saman um stóru málin sem við erum lang­flest sam­mála um að séu mik­il­væg að klára. Flokka­drætt­irnir eru alltof ráð­andi í mínum huga. Það á ekki að skipta máli hver fær heið­ur­inn af góðu mál­unum. Það á að skipta máli að klára þau fyrir fólkið sem bíður og bíður eftir ákveðnum rétt­ar­bótum eða betri lífs­skil­yrðum.“

Hver eru mark­miðin og draum­arnir?

„Ég hef ekki verið mjög mark­miða­drifin mann­eskja. Reynslan hefur kennt mér að það er mjög erfitt að setja lífið upp í Excel. En ég geri mitt besta í að við fjöl­skyldan förum sæl að sofa og vöknum spennt fyrir næsta degi. Ætli það sé ekki bara nóg fyrir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins