„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Björn Leví dró sama sætið á þingi þriðja árið í röð: „Teach me your ways!“

Björn Leví dró sama sætið á þingi þriðja árið í röð: „Teach me your ways!“
Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata dró sama sæti á þingi þriðja árið í röð á dög­unum. Líkurnar eru litlar.

Við upp­haf nýs þings þurfa þing­menn að draga númer úr potti sem segir til hvar þeir muni sitja hvert ár. Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son dró sama núm­erið þriðja árið í röð en það er núm­erið 42. Skrifaði hann stutta færslu á Twitter um þessa skemmti­legu til­viljun:

„Þriðja skiptið í röð sem ég dreg sæti nr. 42“

Vakti stað­reyndin nokkra kátínu hjá fylgj­endum hans á sam­fé­lags­miðl­inum og voru flestir á því að lík­urnar á þessu gætu ekki verið miklar.

Félagi hans, Píratinn Smári McCarthy skrif­aði eft­ir­far­andi athuga­semd. „Djöfull er það orðið ólík­legt! Hvernig?! Teach me your ways!“

Björn svar­aði að bragði: „Ég sagði fólki bara að ég ætl­aði að draga 42. Ég hugs­aði um hvernig ég ætl­aði að teygja hend­ina inn í boxið og hræra aðeins í þangað til ég finndi 42 en svo gleymdi ég því og tók bara fyrstu kúl­una sem ég lenti á … voila = 42.“

Þegar Hilmar nokkur spurði hverjar lík­urnar séu svarar Björn: „Jæks, það er slatti flókið að reikna það. Sér­stak­lega af því að það þarf að taka til­lit til fólks­ins sem dregur á undan mér og dregur ekki 42. Í fyrsta skiptið sem ég ætl­aði að draga 42 til dæmis þá var ég minnir mig næst síð­astur …“

Þor­steinn nokkur svar­aði því: „Ja, fer smá eftir því hvernig spurn­ing­unni er hagað. En ef þú spyrð í upp­hafi dráttar, hverjar eru lík­urnar á að þú fáir 42, þá skiptir röðin svo sem engu máli.“

En hverjar eru þá lík­urnar á þessu? Mannlíf heyrði í Excel sér­fræð­ingi sem sér­hæfir sig í töl­fræði. Hann vildi ekki koma undir nafni af ótta við að verða ofsóttur af kven­fólki vegna stærð­fræði­þekk­ingar sinnar. „Í stuttu máli: lík­urnar á því að fá sama sæti (númer 42) þrjú ár í röð er einn á móti 125.047. Líkurnar á því að fá eitt­hvað sæti þrisvar í röð er 1 á móti 3.969,“ svar­aði sér­fræð­ing­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins