„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Svandísi nákvæmlega sama: „Þá var hann laminn í hálftíma og líklega er skepnan bara dauð“

Segir Svandísi nákvæmlega sama: „Þá var hann laminn í hálftíma og líklega er skepnan bara dauð“
Illa farið með fal­legar skepnur. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Steinunn Árna­dóttir hesta­kona segir Mat­væla­stofnun algjör­lega van­hæfa en hún kom hrossa­níð­ings­mál­inu í Borg­ar­nesi á hreyf­ingu. Það gerði Steinunn með því að birta ljós­myndir af illa förnum hross­unum sem um var rætt.

Steinunn Árna­dóttir

„Þetta er mjög sorg­legt. Kerfið er algjör­lega að bregð­ast enda tók Rík­is­end­ur­skoðun þá afdríf­a­ríku afstöðu eftir að málið kom upp, að þeir myndu fara yfir þessa verk­ferla hjá þeim,“ sagði Steinunn í sam­tali við Mannlíf.

Hefur áhyggjur af vetrinum

Aðspurð hvort hún vissi hvað væri að frétta um hrossin og hvar þau séu stödd sagði Steinunn að hrossin væru ekki komin aftur á sinn stað eftir að hafa verið færð í skjóli nætur. „Þetta eru um 28 hestar sem þessir ein­stak­lingar eru með rétt fyrir ofan Borg­ar­nes og þar eru þau enn. En það er ekk­ert verið að fylgj­ast með þeim. Og nú stefni í vet­ur­inn og kulda en ég var þarna einmitt í morgun [fyrir helgi, inn­skot blaða­manns] og vegna þess að það var fínt veður þá var þetta í lagi en manni lýst ekk­ert á blik­una þegar það fer að kólna því þau eru búin að vera inni í heilt ár.“ Aðspurð um hold­ar­farið á hross­unum segir Steinunn að þau séu útþanin og bætti við „þau voru auð­vitað svo svöng og eru útþanin núna en það er ekk­ert að marka fyrr en maður kemur nær og snertir þau, til að sjá hvernig þau hafa bragg­ast. En það lýtur ekk­ert vel út með þau, þau eru ekki und­ir­búin fyrir vet­ur­inn og ef þau verða sett inn af þessu sömu aðilum þá nátt­úru­lega er þetta áfram svona hor­fóðrun, þannig að það myndi ekki vera neitt líf. Það sýnir sig nátt­úru­lega með þessum hætti, eins og hvernig þessi trippi voru að þessir ein­stak­lingar eru alls ekki hæfir til að vera með skepnur. Það ætti að vera deg­inum ljós­ara með þessum myndum og maður er bara argur yfir því að það sé ekki búið að taka þessar skepnur af þeim.“ Steinunn segir að fyrri eig­endur hest­anna vilji fá þá aftur til baka. „Það eru nokkrir aðilar sem hafa haft sam­band við mig, fólk sem er að reyna að fá þessi trippi til baka, þau vilja ekki sjá þau í þess­ari nið­ur­læg­ingu. Það ætti að vera búið að svipta þessum ein­stak­lingum umráðum yfir þessum skepnum. Maður er mjög svekktur að það sé ekki búið.“

Illa farið með fal­lega skepnu.

Kerfið virkar ekki

Steinunn segir að vegna fjöl­miðlaum­fjall­anna og birt­ingu ljós­mynd­anna af hross­unum hafi ein­stak­ling­arnir verið mál­aðir út í horn og því fjar­lægt hrossin „í skjóli næt­urs“. Segir hún einnig að Mat­væla­stofn­unin hafi vitað af mál­inu í langan tíma en ekki aðhafst neitt. „Það voru bara engin svör. Ég hringdi í Guðlaug Ant­ons­son sem er eft­ir­lits­maður en hann svar­aði ekki. Ég hringdi held ég þrisvar sinnu í hann en hann svar­aði aldrei. Og ég sendi pósta en þetta er þannig tölvu­póst­kerfi hjá MAST að þú færð aldrei senda stað­fest­ingu á að tölvu­póst­ur­inn hafi verið mót­tek­inn, þannig að þeir geta alveg sagt að það sé eng­inn póstur hjá þeim. Ég þekki fjöldan allan af fólki sem segir mér að það hafi látið MAST vita af þessu. En MAST er ekki að virka, það er algjör­lega búið að sanna sig.“

Illa farið með fal­legar skepnur.

„Svandísi er nákvæmlega sama“

Steinunn seg­ist ótt­ast að ekk­ert verði gert í mál­inu: „Maður ótt­ast bara að þetta fólk fái að hafa skepn­urnar áfram og það er búið að sýna fram á að það er ekki í lagi að þau séu með skepnur undir höndum.“ Nefnir Steinunn að hún hafði sent Svandísi Svav­ars­dóttur bréf á dög­unum þar sem hún sagði henni frá mis­þyrm­ingu á kú sem fest­ist í skurði hjá þessum sömu ein­stak­lingum. „Ég sendi henni þetta á mið­viku­dag­inn því það hringdi í mig nágranni þeirra sem horfði á mann­inn mis­þyrma naut­grip sem hafði dottið út í skurð og var hjálpað upp úr skurð­inum en stóð þá ekki í fæt­urnar. Þá var hann lam­inn í um hálf­tíma og lík­lega er skepnan bara dauð. Þau voru svo miður sín, þessir nágrannar að þau hringdu í mig og þau hringdu í lög­regl­una og ég sendi þetta bréf á Svan­hildi. Ég hef ekki fengið eitt ein­asta svar frá Svandísi, henni er svo nákvæm­lega sama. Ég minnti hana á það í bréf­inu að sem mat­væla­ráð­herra hafi hún yfir­um­sjón með vel­ferð dýra. En það á sýni­lega ekki upp á pall­borðið núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferð dýra

Segir Svandísi ljúga: „Hún er VÍST að láta undan hótunum“
Innlentvelferð dýra

Segir Svandísi ljúga: „Hún er VÍST að láta undan hót­unum“

Illugi Jök­uls­son segir Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra ljúga blákalt í við­tali. Eins og alþjóð veit hrökk Svandís Svav­ars­dóttir frá hval­veiði­bann­inu í morgun. Sagði hún í við­tali eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn að hún hefði ekki látið undan hót­unum Sjálf­stæð­is­manna. Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður skrif­aði harð­orða færslu á Facebook í dag þar sem hann segir ráð­herr­ann hrein­lega ljúga. „Ég hélt í alvöru að hún myndi aldrei...
Segja MAST ekkert gera vegna illrar meðferðar á kindum: „Þetta er bara aðför að okkur“
Innlentvelferð dýra

Segja MAST ekk­ert gera vegna illrar með­ferðar á kindum: „Þetta er bara aðför að okkur“

Árið 2003 var ábú­and­inn á bænum Höfða í Þver­ár­hlíð í Borg­ar­firði sak­felldur fyrir að van­rækja umhirðu og fóðrun á búfé. Hlaut bónd­inn fyrir það sekt. Um fjögur hund­ruð kindur voru annað hvort flutt til slátr­unar eða í fóðrun á næstu bæi en bónd­inn var ekki sviptur leyfi til að hafa dýr. Nú, tutt­ugu árum síðar virð­ist sem ástandið á bænum...
Borgnesingar mótmæltu komu blóðamerafolalda: „Við lýsum andstyggð okkar á hvers konar dýraníði“
Innlentvelferð dýra

Borg­nes­ingar mót­mæltu komu blóða­merafol­alda: „Við lýsum and­styggð okkar á hvers konar dýra­níði“

Steinunn Árna­dóttir, org­anisti og hesta­kona mætti ásamt fleiri dýra­vinum til að sýna sam­stöðu en von var á blóð­merafolöldum í Borg­ar­nes til meintra hrossa­níð­inga sem mikið hefur verið fjallað um að und­an­förnu. Sjá einnig: Hesta­níð­ingur fékk leyfi MAST til að kaupa þrjú ný folold: „Mat­væla­ráð­herra er algjör­lega lamaður“ Gaf Steinunn Mannlífi leyfi til að birta færslu sem hún rit­aði á Facebook...
Hestaníðingur fékk leyfi MAST til að kaupa þrjú ný folold: „Matvælaráðherra er algjörlega lamaður“
Innlentvelferð dýra

Hesta­níð­ingur fékk leyfi MAST til að kaupa þrjú ný folold: „Mat­væla­ráð­herra er algjör­lega lamaður“

Einn af meintum ger­endum í hrossa­níð­ings­mál­inu á Borg­ar­nesi fær þrjú ný folold afhent í kvöld. Mast sá því ekk­ert til fyr­ir­stöðu. Illa farið með fal­lega skepnu.Mynd: Steinunn Árna­dóttir Steinunn Árna­dóttir, hesta­konan sem fyrst vakti athygli á mál­inu með birt­ingu ljós­mynda af hrossum í afar slæmu ásig­komu­lagi, heyrði í Mannlífi vegna nýrra frétta af mál­inu. „Stúlkan sem gekk hvað harð­ast í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins