„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórunn Antónía: „Ég greindist í gær“

Þórunn Antónía: „Ég greindist í gær“

Tón­list­ar­konan Þórunn Antonía Magn­ús­dóttir greinir frá því í löngum og átaka­legum pistli sem hún birtir á Facebook að hún hafi verið greind með endometreosis, sjúk­dóm sem eitt sinn var kall­aður legs­límuflakk. Það má segja að saga hennar sé áfell­is­dómur yfir heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

TW – Mig langar að skrifa um Endometreosis.

Ég greind­ist í gær

Ég hef alltaf verið með kvið­verki, Ég hélt að það væri bara eðli­legt. Fann það snemma að það er ekk­ert pláss fyrir konur sem “væla” Þannig ég hef ávalt harkað af mér. Mætt sár­þjáð uppá svið stundum dögum, vikum, mán­uðum og árum saman. Ég hélt bara að svona væri þetta hjá öllum.

Freyja Sóley kemur svo i heim­inn 25.09.2019. Með­gangan gekk mjög illa, ég var með króníska haus­verki, missti sjón­ina um stund og var send í rann­sóknir sem bentu til þess að ég væri með MS sem var svo tekið aftur 5 árum seinna við fæð­ingu Arnadar þílík gjöf, einnig var ég að drep­ast úr verkjum undir  rif­beinum en var hjá svona old school ljósu sem leit á litlu ljós­hærðu mig sem eina af þessum sem allt er að og ég lærði að öll þessi ein­kenni voru bara í hausnum á mér og þetta væri allt bara eðli­legt ástand. skamm skamm ég að finna til á þessu nátt­úru­lega og fal­lega ferli sem ég á bara að vera þakk­lát yfir. Ég end­aði með lífs­hættu­legan með­göngu sjúk­dóm sem heitir HELLP dán­ar­tíðni bæði móðir og barns eru geta farið hátt í  25 – 60%. Og við fórum í gegnum mjög erf­iða fæð­ingar reynslu sem end­aði í bráða­keis­ara.

Kvið­verkirnir urðu miklu verri eftir að ég varð mamma, ég lá oft á gólf­inu í hnipri og gat varla staðið. Ég hef alltaf tekið mikla ábyrgð á eigin heilsu og leit­aði strax til heilsu­gæslu. Þar mætti mér mið­aldra kona sem horfði á mig upp og niður og hreytti í mig að ég þyrfti aug­ljós­lega bara að borða reglu­lega. Ég skipti um heilsu­gæslu­stöð eftir þetta eftir við­mótið sem ég mætti líka á með­göng­unni. í von um betri aðstoð hitti ég nýja lækna á nýrri heilsu­gæslu. Ungur maður sem skoð­aði mig 2-3 svar. “þú þarft greini­lega bara að vinna þig betur úr áfall­inu við fæð­ing­una” „Það er stundum svona með fólk eins og þig að það er með verki útum allt sem eiga sér enga skýr­ingu.” Ég fór all­nokkrum sinnum upp á Bráða­mót­töku þegar verkirnir voru það slæmir að ég gat varla gengið en aldrei neitt að mér í raun. Ég var bara undir álagi, með vefja­gigt, kvíða.

Ég leit­aði til melt­ing­ar­læknis sem hafði reynst vin­konu minni mjög vel. Hann var nú alveg viss hvað amaði að mér og hennti mér á hvern hreinsikúr­inn á fætur öðrum sem létu mig svelta mig i 3 daga og taka ein­hvern 2 lítra hreini­vökva fyrir melt­ing­ar­færin. Ég end­aði í 47 kg. Þá hreytti hann í mig að ég væri bara greini­lega með þrá­hyggju og anor­exiu og hann gæti ekki hjálpað mér frekar. Fyndna er að þrátt fyrir að hafa verið grönn eftir barn­eignir hef ég aldrei verið undir “kjör­þyngd” sem mælt er eftir sér­stak­lega þegar smána á feitt fólk. Ég tók þessu nærri mér og var við það að gef­ast upp og trúa því að ég væri Klikkuð. Allt í hausnum á mér. Ég leita til ann­ars melt­ingar læknis þrátt fyrir það sem reynd­ist mikil hjálp, hann sagði að það væri greini­legat að ég væri með sam­grón­inga og sendi mig til Arnars Hauks kven­sjúk­dóma­læknis. Hann hlust­aði. Hann trúði mér eftir ára­langar heimsoknir til lækna sem nenntu varla að hlusta á mig var ein­hver sem tók mark á mér.

Ég fékk einnig nýjan heim­il­is­lækni sem er kona og hefur reynst mér ótrú­lega þau í sam­ein­ingu hjálp­uðu mér svo mikið. Ég fór í fyrstu sam­grón­inga aðgerð­ina mína 2018. Á Akranesi. Þar var eggja­leið­ari graf­inn upp við kvið­veg­inn og stór partur af leg­inu. Ég vakn­aði og spurði hvort þau hefðu fundið vís­bend­ingar um Endomitri­osis en svo var ekki og ég hvött til að taka stóra skammta af Íbúfen. Sem stendur skýrt í minni sjúkra­skrá að ég megi alls ekki taka. Það getur hrein­lega drepið mig vegna blóð­flögu­fæðar. Eða ITP. Ég verð svo ófrísk af Arnaldi sama ár og hann kemur í heim­inn 01.08.19. Þá fór ég aftur í bráða­keis­ara eftir langa og erf­iða fæð­ingu og beint inn í sam­grón­inga aðgerð. Þá höfðu sam­grón­ingar orðið meiri og flest líf­færi í kvið­ar­holi orðin sam­vaxin með til­heyr­andi sárs­auka. ( Ég hef samt hitt fjöl­marga lækna sem segja við mig blákalt að sam­grón­ingar valdi ekki sárs­auka. Það sé ekki búið að sanna það vís­inda­lega. ) Ef ég heyri þetta bull svara ég orðið hik­laust já, hvernig myndi þér líða vinur ef pung­ur­inn á þér væri vax­inn upp við lærið á þér? Ef eitt­hvað af þessum vanda­málum væru að koma fyrir karl­menn væru til þús­undir rann­sókna um sam­grón­inga eða endo sem þeir væru linnu laust að vitna í.

Ég fer að finna fyrir miklum verkjum aftur þegar Arnaldur er orðin 2 ára. Fyrir ári síðan og hugsa ó nei hvenær verð ég laus við þetta. Þessir verkir eru linnu­lausir, þú skelfur að innan, það er eins og ein­hver kreisti á þér líf­færin og manni sortnar fyrir augun og svimar Einnig er algeng­asta ein­kennið síþreyta sem þú ræður lítið við. Enda ekki skrítið þegar lík­am­inn er á fullu að reyna­láta stór líf­færa­kerfi funkera sem eru vaxin saman við önnur. Það hlýtur að taka orku. Ég fer aftur til Arnars og við ræðum aðeins meira um endo hann hafði nefnt það áður en fyrst það fannst ekk­ert í 2 skurð­að­gerðum þá var ég efins um að þetta hrjáði mig og ég hlyti bara að vera aum­ingi og þetta allt í hausnum á mér. En þá finn ég reysnlu­sögur frá íslenskum konum, hug­rakkar og magn­aðar sem hafa sögur, reynslur og tengja við allt sem ég upp­lifi. Ég finn að ég er ekki ein en upp­lifi líka að ég eigi ekki heima í þessum hóp því ég hef ekki fengið form­lega grein­ingu.

Í byrun Maí á þessu ári byrja ég að fest­ast í mjöð­minni og mjó­baki, sár verkur sem leiðir niður löpp­ina. Ég kann­ast vel við þennan verk því hann er sam­balanda af gömlum meiðslum og þessum linnu­lausu verkjum frá kvið sem leiða aftur í bak og niður lappir. Ég þver­neit­aði að fara upp á Bráða­mótöku. ég vissi hversu mikið álag var þar og er og ég ætlði ekki að fara bæta á það. Heill mán­uður líður þar sem ég haltra og reyni allt til að ná bata. Osteopati, hnykkj­ari, nudd, nála­stungur, yoga….. ein­staka sinnum verkja­lyf sem mér finnst eig­in­lega ekk­ert virka þannig ég sleppi þeim oft­ast.

Ég gefst upp í júní þegar ég skreið annan dag­inn milli her­bergja að reyna sinna börnum mínum tveim og Freyja þurfti að hjálpa mér í skó og sokka meðan ég var grát­andi af sárs­auka. Elsku nágranni minn grípur þarna inn í og skutlar mér uppá Bráða­mótöku, ég fæ kvíða um leið. Kvíði fyrir sama við­mót­inu. Ég hef áður farið þangað þegar ég gat ekki labbað og var hunsuð og send heim. Fékk ekki einusinni að hitta lækni. En í þetta skiptið var ég komin með nóg ég get ekki lifað svona lengur. Ég var látin sofa fyrstu nótt­ina á gang­inum í brjál­uðum látum eftir að karl­kyns­læknir greip í mig og hark­aði mig til í skoðun sinni þrátt fyrir að ég emjaði af sársuka. Hann glotti ískaldur “já já það er bara allt að þér? Já er þér líka illt þarna?” Ég útskýrði rólega að ég fengi þessa verki og ég finndi fyrir þeim í psoas vöðvanm hann hvellti uppúr sér “nohhh þú bara kannt smá anatomyu líka” Ég leit á hjúkr­un­ar­kon­una og spurði hana hvort henni þætti þetta eðli­legt að hann tal­aði svona við mig? Hún hafði engin svör.

Ég var lögð inn og gisti ásamt nokkrum öðrum í tjöldum frekar afskekkt svæði. Stúlkan við hlið mér ældi og ældi og kall­aði á hjálp en engin kom. Ég rétti henni ælu poka og gaf henni ilm dropa sem róa hug­ann. Ekki vissi ég hvað ég gat gert meira. En mig verkj­aði af sam­kennd.  Ég var orðin svo þreytt og þyrst og svöng og það hlust­aði eng­inn mig þegar ég bað ítrekað um að ég þyrfti að fara í mynd­grein­ingu til að sjá hvort þetta væri það “venju­lega” Þá gæti ég farið heim og haft sam­band við minn lækni eða hvort þetta væri eitt­hvað alvar­legra. Kk læknir skoð­aði mig og þegar ég minnst­ist á að þurfa mynda­töku hreytti hann í mig “heyr­irðu þetta? Þetta er ómur­inn frá seg­u­l­ómun­ar­tæk­inu sem er fyrir alar­lega vekt fólk eins og fólk með heila­bilun eða óléttar konur sem mega ekki fara í röng­ten” Ég kvaðst vita vel hvað þetta tæki gerir því ég hafði einmitt verið ein af þessum óléttu konum sem máttu ekki fara í röng­ten og hefði verið í 5 ár í reglu­legum skoð­unum vegna MS grein­ingar. Það kom á hann aðeins meiri mann­eskju bragur á hann og sagði mér að ég þyrfti að láta heim­il­is­lækni minn senda inn beiðni. Ég gerði það. Í lok dags var sim­inn batt­er­is­laus, 2 dagar án matar eða drykkjar. Ég rúlla mér í hjóla­stólnum fram á gang og missi sím­ann í gólfið ég horfi á eftir honum og dett svo sjálf. Skell á gólfið. Örmagna í yfir­liði. Sakna barna minna óend­an­lega mikið og skil ekki afhverju ég er hér. Mér er gefin annar skammtur af mor­fíni.

Seinna um dag­inn / kvöldið fer ég í seg­u­l­ómun og fæ inn á alvöru deild, með gluggum og fékk mat. Ég tárað­ist af þakk­læti. Nú verður allt betra. Þarna var ég búin í þeim mynd­grein­ingum sem voru nauð­syn­legar og ef þær yrðu ok vissi ég að ég fengi að fara heim. Þó ég gæti ekki gengið enþá. Ég lagði hjóla­stólnum við end­ann á rúm­inu til þess að ég gæti farið á kló­settið að vild. Ég er alveg að sofna þá heyri ég stunur. Þær magn­ast. Verða hærri og kyn­ferð­is­legri. Það er bara þunnt tjald milli mín og her­bergis félaga minna. Þarna erum við alla­veg­ana 5 saman. Karlar og konur. Karlinn i næsta rúmi hættir ekki að stynja. ég rís hægt upp og tek simann og tek þetta upp þvi ég vissi bara ekki hvað var i gangi. Ég frís úr hræðslu, við­bjóði, hvað átti ég að gera. Ég sendi vin­konu vidjóið og hún segir mér ð koma mér út. Ég reyni eins hljóð­lega og ég gat að mjaka mér í átt­ina að hjóla­stólnum. Beygi mig niður eftir skóm og tösku og þegar ég rís upp stendur mað­ur­inn fyrir ofan mig. Allt til sýnis. Opin buxna­klauf og hann heldur hjóla­stólnum föstum. Ég öskr­aði og öskr­aði á hjálp. Hendi mér svo á enda rúms­ins þar sem bjallan til að kalla á hjúkr­un­ar­að­stoð var og það kemur hjúkr­un­ar­fræð­ingur hin róleg­asta inn og hann hörfar ég var viti mínu fær að hræðslu og bið hana að hjálpa mér. Koma mér fram. Mér hefur sjaldan liðið jafn varna­lausri. Á stað sem átti að veita mér skjól og aðstoð. Ég næ að renna mér með ógn­ar­hraða fram á gang og inn á skrif­stof­una. Kk læknir situr þar og ég segi honum hvað gerð­ist. Við­brögðin voru. “Var hann ekki bara með óráði? ég skal fylgja þér aftur, þú mátt ekki vera hér inni. Hér eru gögn sem eru trún­að­ar­mál” Eins og ég hafi verið að pæla í því á þesu augna­bliki. Ég var lam­andi hrædd. Ég spyr hvort eng­inn ætli að til­kynna þetta eða gera eitt­hvað í þessu, að þetta sé óboð­legt fyrir mig og aðra sjúk­linga. Nið­ur­staðan var sú að ég fæ að gista inn á bruna­fórn­ar­lamba bað­her­begi. Þar sem hit­inn var á bil­inu 27 – 29 stiga hiti og ekki hægt að opna neina glugga. Þar voru tól og tæki til að sinna fólki sem hafði brunnið illa. Þetta var allt mjög óþægi­legt. Manninum sem um ræðir var boðið að fara að sofa aftur í rúm­inu sínu með útsýni út um glugg­ann og fersku lofti. Ég tjáði fólki á vakt að ég væri nýgengin í gegnum mjög erfið nauðg­un­ar­mála­ferli og ég upp­lifði mig mjög hrædda og óör­ugga og ég vildi fara heim. Ég fékk Bjöllu. Svona sem er úr járni sem var sett á nátt­borðið mitt sem ég ætti að hringja ef…..Ef ein­hver kæmi og myndi gera mér eitt­hvað annað? Ég fékk líka róandi lyf og bólgu­eyð­andi í æð. Sem stendur skýrt að ég megi ekki taka.

Morgunin eftir þá vakna ég. ég er í týpísku áfalla við­bragði og heil­inn á mér er að gera lítið úr þessu öllu. Þess vegna var é þakk­lát fyrir að hafa skrifað niður reynslu mína strax um kvöldið og deilt þessu með nánum vinum og átti þetta allt á upp­töku. Morgunin eftir er ég orðin mjög lasin. Mér var gefin bólgu­eyð­andi lyf. Venjuleg mann­eskja á að vera með 150 -450 ein­ingar af bindi­efnum í blóði sínu en vegna sjálfsof­næmis sjúk­dóms fer ég oft lífs­hættu­lega lágt. Lægsta sem ég hef farið er niður i 4. Þá var ég á Spítala í London í lengri tíma um 25 ára. Ég hef náð full­komnum tökum á þessu ástandi með heil­brigðum lifn­að­ar­háttum og matar­æði en ég hef hrunið þegar heil­brigð­is­st­ars­menn hafa gefið mér röng lyf. Sem ég gerði þarna. Ég er komin með ITP / Blóð­flögu­fæð ofan í allt. Lyfin sem ég fæ við því eru Predn­i­sone. Sterar. Gallinn við þá eru að þeir lama ónæm­is­kerfið. Nokkrir dagar líða og ég fæ að fara heim. Enþá með nístandi kvið­verki. Hölt og líka öll í mar­blettum vegna stungusára frá öllu mor­fín­inu. Ég kem heim og verð fár­veik. Ég fékk Himofilus influ­ensu á spital­anum. Það tók 6 eða 7 sýkla­lyfjak­ura og ég var rúm­liggj­andi i 6 vikur eftir að ég útskrif­að­ist. Bara kona með slæma kvið­verki sem leiddu niður i lappir sem vildi fá mynd en lendir í öllu þessu.

Ég fékk tíma hjá Jóni Ivari eftir ráð­legg­ingar frá konum sem voru með sömu verki og sam­grón­inga. Hann var ynd­is­legur og stað­festi allt sem ég taldi að væri að hrella mig útfrá kvið­verkj­unum. Já sam­grón­ingar og hugs­an­leg endomitri­osis sem er bara hægt að greina með kvið­ar­hols aðgerð. Ég var þarna búin að missa hátt í 2 mán­uði af verk­taka vinnu en hugs­aði eina leiðin útúr þessu hel­víti er að taka sjéns­inn. Ég fékk tíma í aðgerð i lok sum­ars. Aðgerð sem er ekki nið­ur­greidd þrátt fyrir að vera eina við­ur­kennda aðgerðin til þess að ganga 100% úr skugga um að þú sért með Endó. Ég grát­bað að láta færa mig af deild­inni með rún­kar­anum og bruna­fórn­ar­lamba bað­her­berg­inu uppá kvenna­deild en þær vildu ekki taka við mér.

Hvaða vals­kosti hef ég? Að halda áfram að drep­ast úr ein­hverju sem eng­inn skilur eða reynir að skilja. Eða fara til einka­rek­ins aðila sem er sér­fræð­ingur og borga þetta sjálf. Ég kaus seinni val­kost­inn. Reis uppúr 2 mán­aða veik­indum og tók öll gigg sem buð­ust. Sjálf­stæð mamma og verk­taki með heilsu­brest á engra ann­ara kosta völ. Ég fór í aðgerð­ina. Ein og grét mikið, hún ýfði upp alls­konar, erf­iðu fæð­ing­arnar, áföll og und­ir­strik­uðu ein­mana­leik­ann sem poppar upp því ég hleypi fólki yfir­leitt ekki með í þennan veru­leika. Upplifi mig sem byrgði. Það var fjar­lægt mikið af sam­grón­ingum og

Vefjum sem voru sendir i rann­sókn. eitt­hvað sem hafði verið að ýta á taugar og valda því að ég haltr­aði, ga oft ekki labbað. Líffæri losuð i sundur. Ég útskrif­ast, með risatór innri sár á kvið sem ég gat gefið mér nokkra daga til að láta gróa. Svo er það bara glimmer og glans og gigg þar sem ég brosi ég gegnum löngu upp­þornuð tárin því það ger­ist ekk­ert ef ég grenja. Ég bjarga mér bara sjálf.

Vissir þú að

Ein af hverjum 10 konum er með Endomitri­osos, Endo er á lista yfir 20 sárs­auka­fyllstu sjúk­dóma em eru til. Uþb 200 Millj­ónir kvenna eða leg­hafa eru með emdomitri­osis. Samt eru aðeins 200 sér­fræð­ingar i heim­inum.

Á Íslandi er 1. Aðgerðin kostar hátt í milljón, Samt er þetta aðgerð sem er okkur hrein­lega lífs­nauð­syn­leg. Að með­al­tali tekur það 7-10 ár að fá grein­ingu. Ýmindaðu þér hvar ég væri ef fyrsti lækn­ir­inn hefði tekið mig alvar­lega?

Á sama tíma og þetta var að ske fékk ég skila­boð frá mann­inum sem braut á mér eftir að ég fór til hans sem aðila sem átti að hjálpa mér eftir heim­il­is­of­beldi. Hann var virtur nudd­ari þá en seinna komst ég hann hefur brotið á tugum ann­ara kvenna, yngstu fórn­ar­lömb hanns 13 og 14 ára. 35 konur kærðu hann en aðeins fékk hann dóm fyrir 4 af sínum brotum. Hæsta dóm sem kyn­ferð­is­af­brota­maður hefur fengið á Íslandi og ég veit að þar skipti frá­sögn og greina­gerð mín um líf og heilsu kvenna eftir ofbeldi miklu máli. Mér ásamt hinum kon­unum voru dæmdar bætur uþb 1-2 millj­ónir hver. En vegna þess að við kærðum hann ekki innan 2 ára af brot­inu fáum við engar bætur. Það er ömur­leg til­hugsun að þurfa vinna myrkrana á milli með stór ógróin stungu­sár á kvið og þér voru dæmdar bætur sem gætu gert það kleift að borga fyrir þessa aðgerð og jafn­vel tekið smá pásu. Náð að hvíla mig. Náð heilsu.

Það er svo ótrú­lega margt að okkar heil­brigð­is­kerfi að sökum fjársveltis. Ég veit að ALLIR sem vinna i heil­brigð­is­geir­anum eru að gera sitt besta. Meira segja risa­eðl­urnar sem vita sem minnst um líf og heilsu kvenna. Þeir hafa hrein­lega ekki tíma né fjár­magn til að taka sér pásu að læra frekar um okkur. Svo allir hinir sem hlaupa milli sjúk­linga og gera sitt allra besta takk! Þetta er ekki kvörtun um ein­stak­linga sem vinna í þessum geira hedur fjársvelt­ing­una og fram­kom­una sem hvorki sjúk­lingar né stars­menn eiga skilið.

Svo er Bóta­sjóður / ríkið að snuða fórn­ar­lömb alvar­legra brota vegna þess að okkar nálgun passar ekki inní þeirra daga­tal? Hvernig getur maður verið dæmdur, gengur svo laus áreit­andi mig og aðra í langan tíma áður en hann fer inn. En við sem breyttum sög­unni með okkar frá­sögn og styrk.  það var ekki sam­kvæmt þeirra klukku. Computer says no. Engin mann­eskja kærir kyn­ferð­is­brot pen­ing­ana vegna. Trúið mér líka að engin mann­eskja gengur í gegn­um­það ferli að ná styrk og bata eftir slikt ferli ókeypis heldur. Ég hef farið til sáfræð­inga, ráð­gjafa, heil­ara, nudd­ara alls­konar fag­fólks. sem ég hef borgað fyrir að vinna úr gjörðum ann­ara á eigin skinni.

Ef glæpu hanns er ekki búinn að fyrn­ast ættu afleið­ingar ekki að vera það heldur.

Ég þurfti að koma þessum orðum frá mér.

Ég er með Endometri­osis sem er ástand sem er ekki nein lækn­ing til við. Þú ferð í aðgerð og vonar að það poppi ekki upp aftur. Ég er óend­an­lega þakk­lát að ég á 2 heil­brigð og fal­leg börn því margar konur og leg­hafar sem eru með endo geta ekki eign­ast börn. Ég græt af þakk­læti yfir því.

Ég er þakk­lát, bjart­sýn, óend­an­lega sterk en einnig þreytt og buguð og væri til í að mál­efnum kvenna væri tekið með meiri alvar­leika í öllum mála­flokkum. Ég er þreytt að þurfa að klessa ítrekað á vegg og hafa eng­ann annan val­kost en að skríða yfir hann. Hvort sem það er korter eftir aðgerð eða bara að biðja um lág­marks mann­rétt­indi að mér sem og konum almennt sé trúað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins