„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólöf Helga Adolfsdóttir býður sig fram sem forseta ASÍ: „Ég hef bara unnið láglaunastörf“

Ólöf Helga Adolfsdóttir býður sig fram sem forseta ASÍ: „Ég hef bara unnið láglaunastörf“
Ólöf Helga Adolfs­dóttir

„Ég hef mik­inn áhuga á að taka þátt í hreyf­ing­unni og er Alþýðu­sam­band Íslands eitt það mik­il­væg­asta sem við launa­fólk á Íslandi eigum. Mér finnst ekki vera hægt að setja það bar­áttu­laust í hendur fólks sem hefur í raun­inni ekki trú­verð­ug­leika til þess að leiða hreyf­ing­una, elur á sundr­ungu og setur í raun­inni valda­hags­muni sína fram yfir hags­muni almenns félags­fólks,“ segir Ólöf Helga Adolfs­dóttir, rit­ari Eflingar, sem býður sig fram til for­seta ASÍ en hún hefur sagt að mót­fram­bjóð­andi sinn og for­maður VR, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, taki eigin valda­hags­muni fram yfir hags­muni almenns félags­fólks. Þing ASÍ hófst í morgun og verður nýr for­seti kos­inn á mið­viku­dag­inn.

Ólöf Helga er spurð hverjar áherslur hennar yrðu ef hún sett­ist í stól for­seta ASÍ.

„Ég kem að sjálf­sögðu með mínar áherslur að borð­inu; ég brenn fyrir mál­efnum ungs fólks, fræðslu­málum, hús­næð­is­málum og bara almennt jöfn­uði. Ég er nátt­úr­lega með mína rödd en það sem ég vil gera er að heyra í þing­full­trú­unum á þingi ASÍ, ég vil fylgja þeirri stefnu sem þing ASÍ setur og þeim ákvörð­unum sem teknar eru á mið­stjórn­ar­fundum.

Það er mik­il­vægt að við hugsum vel um hvernig mann­eskju við viljum hafa í þess­ari stöðu.

ASÍ er mjög dýr­mætt og er mik­il­vægt að for­seti ASÍ hafi trú­verð­ug­leika fyrir það fyrsta, hafi áhuga á að eiga sam­tal við öll aðild­ar­fé­lögin og meti sjón­ar­mið allra. Það er mik­il­vægt fyrir hreyf­ing­una að allir geti fengið að tjá skoðun sína; raddir allra þurfa að heyr­ast. Það er mik­il­vægt að við hugsum vel um hvernig mann­eskju við viljum hafa í þess­ari stöðu og gleyma þá ekki að for­maður VR gat ekki for­dæmt hóp­upp­sagnir skrif­stofu­fólks þrátt fyrir að hafa átt þar félags­menn sjálfur og vera for­maður félags sem er með mik­inn fjölda félags­fólks í sínu félagi.“

Til að hleypa öllu upp

Að und­an­förnu hefur verið fjallað um það í fjöl­miðlum að Agnieszka Ewa Ziólkowska, þáver­andi starf­andi for­maður Eflingar, hafi fengið aðgang að tölvu­póst­hólfi Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og Viðars Þor­steins­sonar sem höfðu þá hætt hjá félag­inu. Sólveig til­kynnti svo málið til Per­sónu­verndar. Kjarninn greindi frá því að Agnieszka hafi óskað eftir aðgangi að tölvu­póst­hólf­unum í jan­úar og vísað til álits frá lög­manni um leyfi til þess og hafði hún aðgang að tölvu­póst­inum til 13. apríl en það var stuttu eftir að Sólveig Anna hafði verið end­ur­kjörin for­maður Eflingar og sneri þangað aftur.

Tíma­setn­ingin á þessu upp­þoti er bein­tengd þingi ASÍ.

Hvað vill Ólöf Helga segja um þetta? „Þetta eru venju­legir ferlar sem fóru þarna í gang. Við leit­uðum álits lög­fræð­inga en þau höfðu í þessu til­viki tvær vikur til þess að tæma öll einka­gögn sem mögu­lega voru í þeim póst­hólfum sem tengd­ust vinnu­net­föngum þeirra. Eftir það voru þetta í raun­inni gögn félags­ins enda póstar sem þau fengu vegna þeirrar stöðu sem þau gegndu. Það vant­aði í raun­inni bara gögn sem voru þarna inni til þess að halda áfram með ákveðin mál. Tíma­setn­ingin á þessu upp­þoti er bein­tengd þingi ASÍ. En Sólveig Anna veit til dæmis að ég mun standa uppi á þingi ASÍ og gagn­rýna þau ólýð­ræð­is­legu vinnu­brögð hennar þegar hún valdi þing­full­trúa Eflingar og svo veit hún líka að hóp­upp­sagn­ar­málið er algjör­lega óupp­gert innan ASÍ. Þannig að þetta er bara til þess að sverta mann­orð þeirra sem mögu­lega gætu gagn­rýnt hana – eða þau – á þing­inu.“

Rosalega skrýtið

Ólöf Helga starf­aði hjá Icelandair í nokkur ár sem hlaðmaður á Reykja­vík­ur­flug­velli og hafði verið trún­að­ar­maður starfs­manna Icelandair á Reykja­vík­ur­flug­veli frá árinu 2018 og sem örygg­is­trún­að­ar­maður Vinnu­eft­ir­lits­ins frá 2020 þegar henni var sagt upp í fyrra og vakti það mikla athygli. Mál hennar var tekið fyrir af Félags­dómi og rak ASÍ málið fyrir hönd Eflingar. Aðal­með­ferð fór fram 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og er enn beðið nið­ur­stöðu.

Ólöf Helga hafði verið í stjórn Eflingar þegar hún vann hjá Icelandair og varð svo eftir upp­sögn­ina vara­for­maður Eflingar um tíma. Þar gekk mikið á. Hvernig var fyrir hana að stíga þar inn eftir ólgu­sjó­inn sem tengd­ist upp­sögn­inni?

Þar fundum við hversu mik­il­vægt það er að inn­viðir ASÍ séu góðir.

„Þetta var rosa­lega skrýtið. Ég var nátt­úr­lega í stjórn Eflingar og á þeim tíma­punkti hafði ég ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um að það væri ein­hver óánægja hjá starfs­fólki skrif­stof­unnar. Svo ég vissi í raun ekki hvert ástandið var innan skrif­stof­unnar þar sem upp­lýs­ing­arnar höfðu ekki borist til stjórnar. Svo þegar við Agnieszka fengum starf­semi Eflingar í fangið þá var ég að sjá það í fyrsta skipti með mínum eigin augum hvernig var komið fram við trún­að­ar­menn og starfs­fólkið og var það ótrú­lega leið­in­legt af því að ég var nátt­úr­lega að horfa á þetta beint út frá minni bar­áttu sem trún­að­ar­maður. Ég átti rosa­lega erfitt með það því að þegar mér var sagt upp störfum sem trún­að­ar­maður þá upp­lifði ég nátt­úr­lega mjög mik­inn stuðn­ing frá Eflingu og það var mikið lagt í að gera þetta opin­bert því að það var svo mikil ósvífni að koma svona illa fram við trún­að­ar­mann. Þarna var einmitt mjög mik­il­vægt fyrir mig og Agnieszka að geta leitað til ASÍ og þar fundum við hversu mik­il­vægt það er að inn­viðir ASÍ séu góðir; að aðild­ar­fé­lög geti leitað til þeirra þegar þau eru í vand­ræðum eins og þarna. Við vorum mjög óreyndar en ég kynnt­ist svo sann­ar­lega starf­semi hreyf­ing­ar­innar á met­hraða og lærði ótrú­lega margt. Ég á að sjálf­sögðu ennþá margt ólært en ég er með mikla reynslu samt sem áður bæði sem lág­launa­kona – enda hef ég alltaf unnið lág­launa­störf og það er mik­il­væg reynsla held ég í kom­andi bar­áttu – en líka að taka við félagi sem er klofið, að ákveðnu leyti líkt og eins og ASÍ er núna.“

Ólöf Helga er spurð hvaða áhrif það hafi haft á hana að vinna í þessum hvirf­il­byl.

„Ég veit það ekki. Ég varð að sjálf­sögðu stundum þreytt á kvöldin. Þetta voru oft langir vinnu­dagar þegar maður var í þessu. Mér finnst ekk­ert erfitt að fá ein­hverjar svona leið­inda­sögur og ásak­anir þegar ég veit að þær eru ekki sannar og þá bara leiði ég þær hjá mér. Ég á mína fjöl­skyldu og mína vini; ég finn líka fyrir miklum stuðn­ingi. Þannig að þetta hefur ekki haft mikil per­sónu­leg áhrif á mig. Ég læt ekki sögu­sagnir og nið­ur­rif hafa mikil áhrif á mig.“

Á réttri hillu

Ólöf Helga hefur ljáð öðrum rödd sína und­an­farin ár. Hvað varð til þess að hún fór þessa leið?

„Ég kom fyrst fram í fjöl­miðlum fyrir rétt rúmu ári síðan eftir að mér hafði verið sagt upp hjá Icelandair og það var mjög skrýtið. Síðan þá hef ég verið mjög mikið í fjöl­miðlum og verið svo­lítið mikil rödd fyrir ákveð­inn hóp fólks alla­vega. Ég leidd­ist út í trún­að­ar­manna­starfið af því að mér finnst rétt­indi vera mik­il­væg og mér finnst vera mik­il­vægt að við stöndum vörð um þau af því að við höfum alveg séð að ef við pössum okkur ekki þá eru atvinnu­rek­endur meira en til­búnir til þess að taka af okkur rétt­indi. Ég var í þeirri stöðu á mínum vinnu­stað að það var eng­inn til­bú­inn til þess að sinna þessu starfi; síð­asti trún­að­ar­maður fór í annað félag þannig að ég tók þetta bara að mér af ákveð­inni skyldu­rækni. Svo fann ég mig í þessu starfi; ég hafði gaman af því að lesa samn­ing­inn og í raun­inni að eiga þetta sam­tal við yfir­menn.“

Hún varð trún­að­ar­maður hjá Icelandair í mars 2018, hún var komin í trún­að­ar­ráð í  nóv­em­ber og vorið 2019 var hún komin í stjórn Eflingar. Og varð svo vara­for­maður.

Ég hef bara unnið lág­launa­störf alla mína starfsævi.

„Jú, að sjálf­sögðu er ég rödd fyrir hluta af félags­mönnum Eflingar og fleira fólks. Ég hef bara unnið lág­launa­störf alla mína starfsævi. Þetta var algjör­lega óvart en ég finn að þetta á vel við mig. Þarna fann ég algjör­lega mína hillu.“

Hún vill verða for­seti ASÍ. Hvað með drauma til enn lengri tíma litið? Frami í stjórn­málum?

„Ég hef enga risa­stóra drauma um ein­hverjar stórar stöður. Ég vil endi­lega fá að taka þátt í að byggja upp betra sam­fé­lag fyrir okkur. Lág­markið er að lægst laun­aða fólkið geti lifað af laun­unum sínum og að við getum öll leitað til læknis og farið til tann­læknis án þess að setja okkur í skuldir. Það þurfa ekki að vera ein­hverjar háar stöður til að vinna að þessu; ég vil bara fá að taka þátt.“

Eigum öll erindi

Ólöf Helga er spurð hvað hún hafi lært á sjálfa sig frá því hún varð trún­að­ar­maður hjá Icelandair og gengið í gegnum það sem síðan tók við.

Við eigum öll erindi í stjórn og hvað sem er.

„Það sem mér finnst vera mik­il­væg­asti lær­dóm­ur­inn er að þó ég sé lág­launa­mannskja og í raun­inni ómenntuð þá eru mínar spurn­ingar og athuga­semdir ekki vit­lausar. Ég hef alveg vit á því hvað er mik­il­vægt fyrir mig. Það er eitt­hvað sem mér finnst að allt launa­fólk þurfi að gera sér grein fyrir varð­andi sig sjálft. Við eigum öll erindi inn í stétt­ar­fé­lögin okkar og við eigum öll erindi í stjórn og hvað sem er. Það er mik­il­vægt að gera sér grein fyrir því að raddir okkar eru mik­il­vægar og ekk­ert rang­ari en aðrar. Ég er að eðl­is­fari mjög feimin og inni í mér þannig að þegar ég fer í við­tal þá þarf ég pínu að róa mig niður en þetta hefur van­ist. Ég er orðin aðeins örugg­ari í þessu og það gerð­ist nokkuð hratt. Þegar ég missti starfið hjá Icelandair þá hringdu fjöl­miðlar mikið í mig og svo í kringum Efl­ing­ar­fram­boðið þannig að þegar það voru mörg sím­töl á dag þá vand­ist þetta. En þetta er samt ennþá svo­lítið óþægi­legt. En ég lærði að það sem ég hef að segja á jafn­mikið rétt á sér og það sem aðrir hafa fram að færa.“

18 ára móðir

Ólöf Helga er Hafn­firð­ingur og býr þar enn þann dag í dag og nú ásamt dóttur sinni og hund­inum þeirra; hún segir að frí­tím­anum verji hún með þeim, kærast­anum og við spil og við­hald á heim­il­inu. Hún er rit­ari Eflingar og stjórn­ar­maður þar og svo er hún í stjórn ASÍ.

Ólöf Helga er fimmta í röð­inni af átta systk­inum. „Ég á stóra fjöl­skyldu og ég ólst alltaf upp við það að einn bróðir minn dó áður en ég fædd­ist þannig að maður lærði strax að meta lífið og vera þakk­látur fyrir að vera til. Við rif­umst öll systk­inin þannig að ég lærði að láta ekki áreiti hafa áhrif á mig og kannski að sætta mig við það þegar maður varð undir.“

Hana dreymdi um að verða lög­fræð­ingur. Hún hóf nám við Kvenna­skól­ann í Reykja­vík eftir grunn­skóla­nám og 18 ára gömul eign­að­ist hún dóttur sína sem er 16 ára í dag.

Ég hafði áhyggjur af því að ég væri að missa barnið.

Ólöf Helga talar um það erf­ið­asta sem hún hefur gengið í gegnum. „Það var þegar ég var gengin 17 vikur á leið en þá byrj­aði að blæða og ég hafði áhyggjur af því að ég væri að missa barnið. Það var rosa­lega erfitt. Ég hringdi upp á spít­ala og fékk spurn­ingar sem mér fannst vera skrýtnar svo sem hversu mikið væri að blæða og hvort það væri eins og ein mat­skeið. Ég skil þessar spurn­ingar í dag en á meðan ég var að ganga í gegnum mik­inn ótta þá gat ég ekki skilið þær. Ég veit í dag að það er ekki pláss, starfs­fólk eða fjár­magn til að taka á móti öllum sem hafa áhyggjur og sem betur fer fór allt saman vel. Þetta var eitt­hvað sem eng­inn gat útskýrt en þetta var mjög erfitt og ég var mjög hrædd.“

Hvernig var að verða móðir 18 ára gömul?

„Þegar ég hugsa til baka þá var þetta ynd­is­legur tími en ég var oft hrædd. Ég var alltaf hrædd um að hún væri ekki að anda eins og flestir kann­ast við sem hafa eign­ast börn; sér­stak­lega hvað vaðar fyrstu börn. Það heyr­ist svo lítið í þeim þegar þau eru sof­andi. Ég er heppin en ég fékk mik­inn stuðn­ing frá fjöl­skyld­unni minni og fékk að búa heima hjá mömmu og pabba fyrst eftir að hún fædd­ist. Ég hef alltaf getað leitað til þeirra og get það enn; ég er mjög heppin að eiga for­eldra sem bæði geta og vilja hjálpa ef eitt­hvað er.“

Hún seg­ist hafa verið sjálf­stæð frá því hún var lítil og ól hún dóttur sína upp ein.

Ólöf Helga flosn­aði upp úr námi eftir að dóttir hennar kom í heim­inn.

„Ég fór nokkrum sinnum aftur í skóla og próf­aði ýmis­legt svo sem bif­véla­virkjun og ljós­mynda­nám en fest­ist aldrei af viti í neinu. Ég er að skoða hvort ég ætti að fara í háskól­ann í haust. Ég sé til. Ég er svo­lítið að pæla í félags­fræði eða lög­fræði.“

Hún fór svo út á vinnu­mark­að­inn og áður en hún fékk vinnu sem hlaðmaður hjá Icelandair vann hún meðal ann­ars í fimm ár sem laug­ar­vörður í sund­laug í Hafn­ar­firði, hún vann sem næt­ur­vörður hjá Vöku, við umönnun, í dag­vistun fyrir heila­bil­aða og í sjoppum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins