„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólveig Anna: „Auðvitað óhugnanlegt að þessir menn voru að gæla við að taka mig af lífi“

Sólveig Anna: „Auðvitað óhugnanlegt að þessir menn voru að gæla við að taka mig af lífi“

„Miðað við tíma­setn­ing­una var ég þarna á veit­inga­stað að borða með 15 ára dóttur minni,“ segir Gunnar Smári Egilsson, for­sprakki Sós­í­alista­flokks­ins, eftir að honum var til­kynnt að hinir meintu íslensku hryðju­verka­menn gældu við að drepa sig.

Ekki aðeins var Gunnar Smári á list­anum yfir það fólk sem menn­irnir tveir ræddu um sín á milli að myrða heldur var þar líka Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Samkvæmt Sam­stöð­inni voru henni sýnd sam­skipti þar sem hún var kölluð litla kommalufsan sem vildi gera bylt­ingu. Á eftir fylgdu heit­streng­ingar mann­anna um að drepa hana einn dag­inn.

„Auðvitað er óhugn­an­legt að fá að vita að þessir menn hafi verið að smíða vopn og gæla við að taka mig af lífi fyrir póli­tískar skoð­anir og starf,“ segir Sólveig Anna. „En ég er bara orðin svo dofin eftir linnu­lausar árásir og ásak­anir und­an­farin ár að ég tók þessu fyrst eins og hverju öðru hunds­biti. Þegar dag­arnir líða finn ég hins vegar að til­hugs­unin venst illa. En í dag hef ég um annað að hugsa, má ekki hugsa um þetta,“ segir Sólveig Anna.

Gunnari Smára voru sýnd sam­skipti þar sem annar mað­ur­inn var staddur á sama veit­inga­stað og hann og barm­aði sér yfir að vera ekki vopn­aður. Á eftir fylgdu vanga­veltur um hvað myndi ger­ast ef hann dræpi Gunnar Smára þarna á staðnum.

„Við förum þangað reglu­lega til að borða upp­á­halds­mat­inn hennar. Þetta er hat­urs­orð­ræða og hunda­flaut til íslenskra Proud Boys, eins og þess­ara drengja sem sitja í gæslu­varð­haldi. Í huga þeirra eru þetta skila­boð um að það sé þjóð­þrifa­verk að drepa Sólveigu Önnu, að þannig megi gera Ísland að betra sam­fé­lagi. Fyrir mán­uði sagði ég frá hót­unum sem mér bár­ust frá manni sem ætl­aði að leita vopna til að beita á mig og fjöl­skyldu mína. En því miður voru við­brögðin bara ein­hver derr­ingur í aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra, eitt­hvað í þá ver­una að ég hefði kallað þetta yfir mig,“ segir Gunnar Smári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins