„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Agnes og Pétur svara fjölmiðlum sem eru þeim þóknanlegir – Hér eru spurningarnar sem þau svara ekki

Agnes og Pétur svara fjölmiðlum sem eru þeim þóknanlegir – Hér eru spurningarnar sem þau svara ekki
Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Mannlíf hefur und­an­farið fjallað um mál þar sem séra Gunnari Björns­syni var neitað að sjá um útför konu í Hvera­gerð­is­kirkju. Var óskin komin frá konu fjöl­skyld­unnar. Þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir um svar eða svör vegna máls­ins hefur Þjóð­kirkjan ekki séð sér fært um að svara Mannlífi, en hefur samt sem áður tjáð sig um mál séra Gunnars. Má þar nefna nýlega grein í Stund­inni

Í grein Stund­ar­innar kemur fram að bisk­upi Íslands finn­ist koma til greina að svipta séra Gunnar hemp­unni. Mannlíf sendi nýverið tölvu­póst með spurn­ingum er málið varðar; engin svör hafa borist enn þrátt fyrir ítrek­anir.

Pétur Markan.

Hafa þau eitt­hvað að fela?

Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir er prestur í Hvera­gerð­is­kirkju.

Hér að neðan má lesa þær spurn­ingar sem Mannlíf sendi nýverið á for­ráða­menn Þjóð­kirkj­unnar:

Ég und­ir­rit­aður sendi ykkur þessar spurn­ingar með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012.

Með áður­nefndri til­vísun í upp­lýs­inga­lög er þess kraf­ist að Þjóð­kirkjan svari eft­ir­far­andi spurn­ingum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að jarð­syngja Sigríði Erlu Ragn­ars­dóttur í Hvera­gerð­is­kirkju 5. sept­em­ber sl.

1. Hver ákvað að séra Gunnar Björns­son mætti ekki sjá um útför frá Hvera­gerð­is­kirkju þann 5. sept­em­ber sl?

2. Hvers vegna var ákveðið að meina séra Gunnari að sjá um útförina?

3. Eru önnur dæmi um að prestum sé meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una séu þeir komnir á eft­ir­laun?

4. Er algengt að prestum með hreina saka­skrá sé meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una, burtśéð frá aldri þeirra?

5. Hvaða prestum öðrum en séra Gunnari Björns­syni hefur verið meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una frá árinu 2012? Ef svo. Hverjar voru þær ástæður og um hvaða presta ræðir?

6. Er að mati stjórn­enda Þjóð­kirkj­unnar, lög­legt eða verj­andi að meina presti á eft­ir­launum sem er með hreint saka­vott­orð og hefur aldrei verið upp­vís að glæp að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una?

7. Gilda siða­reglur Þjóð­kirkj­unnar fyrir presta og alla aðra er koma að starfi Þjóð­kirkj­unnar, þ.m.t biskup, bisk­ups­rit­ara, aðra starfs­menn Bisk­ups­stofu og stjórn Þjóð­kirkj­unnar? Hefur þetta mál komið til Siða­nefndar kirkj­unnar eða sann­leiks­gildi stað­hæf­inga bisk­ups og prests verið til skoð­unnar á vett­vangi Þjóð­kirkj­unnar?

8. Í gögnum er Mannlíf hefur undir höndum koma fram mis­vísandi svör til syrgj­enda. Biskup segir séra Ninnu Sif Svav­ars­dóttur ábyrga fyrir ákvörð­un­inni um að neita séra Gunnari Björns­syni að sjá um útför­ina marg­nefndu, en séra Ninna Sif varpar ábyrgð­inni á biskup. Miðað við gögn Mannlífs er ljóst að önnur hvor, Agnes biskup eða séra Ninna Sif eru að segja ósatt. Hvert er hið rétta í mál­inu?

9. Vin­sam­legað afhendið okkur minn­is­blöð eða önnur gögn varð­andi mál þetta.

10. Hverjum hjá Þjóð­kirkj­unni er falið það starf að sinna upp­lýs­inga­skyldu við fjöl­miðla sem og allan almenn­ing í land­inu? Hvers vegna hefur bisk­ups­rit­ari ekki svarað fyr­ir­spurn Mannlífs frá 8. sept­em­ber?

Mannlíf áskilur sér rétt til þess að birta spurn­ing­arnar að hluta eða öllu leyti ásamt svörum.

Svanur Már Snorra­son blaða­maður Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins