„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hneykslismál skekja þjóðkirkjuna: Biskupinn svarar ekki spurningum

Hneykslismál skekja þjóðkirkjuna: Biskupinn svarar ekki spurningum
Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Hvað er eig­in­lega að ger­ast hjá Þjóð­kirkj­unni?

Þjóð­kirkjan er í mik­illi kreppu – æ færri kjósa að vera innan raða hennar og stjórn­ar­hættir þar minna lítið á kær­leik­ann sem Kristur boð­aði.

Hneyksl­is­mál hafa með reglu­legu milli­bili komið upp og eðli­lega ratað í fjöl­miðla; stærsta dæmið er að sjálf­sögðu tengt Ólafi heitnum Skúla­syni biskup, sem var sak­aður um kyn­ferð­is­brot af ýmsum toga – margir þekkja þá sögu vel.

Fjölmörg önnur mál hafa komið upp sem hafa ekki bætt ímynd stofn­un­ar­innar – of langt mál væri að telja þau öll upp; en Þjóð­kirkjan hefur vissu­lega ekki borið þess bætur. Stöðug fækkun er stað­reynd og ekk­ert sem bendir til þess að þeirri þróun verði snúið við á næst­unni.

Í stað þess að takast á við þau hneyksl­is­mál sem komið hafa upp innan Þjóð­kirkj­unnar hefur Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup frekar kosið að reyna allt hvað hún getur til að þagga niður öll erfið mál er tengj­ast stofn­un­inni; sópa þeim undir teppið.

Nú er svo komið að Agnes biskup og hennar hjörð svarar engum fyr­ir­spurnum sem þykja óþægi­legar, nema frá fjöl­miðlum sem eru henni þókn­an­legir, og velja að spyrja ekki óþægi­legra spurn­inga.

Mannlíf hefur síðan í sept­em­ber fjallað um mál er varðar séra Gunnar Björns­son, sem er sestur í helgan stein. Óskað var eftir því að séra Gunnar fengi að jarð­syngja konu í Hvera­gerð­is­kirkju, en ósk kon­unnar látnu og fjöl­skyldu hennar var virt að vettugi án þess að nokkrar hald­bærar skýr­ingar fengjust frá Agnesi og Þjóð­kirkj­unni.

Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá við­brögð frá Þjóð­kirkj­unni en án árang­urs. Þjóð­kirkjan reynir gam­al­kunn­uga aðferð, sem mögu­lega hefur reynst henni vel hingað til; að hunsa ein­fald­lega þá sem spyrja erf­iðra spurn­inga.

Pétur Georg Markan bisk­ups­rit­ari.

Mannlíf sendi þann 8. sept­em­ber síð­ast­lið­inn tölvu­póst til Péturs Markans bisk­ups­rit­ara, sem var afar ein­faldur og stuttur:

„Komdu sæll og bless­aður Pétur, og afsak­aðu ónæðið. Svanur Már Snorra­son heiti ég og er blaða­maður á Mannlífi.

Ég er með fyr­ir­spurn.

Þegar prestar kom­ast á „aldur“ – 67 til 70 ára, mega þeir samt sem áður sjá um til dæmis brúð­kaup, skírnir og jarð­ar­farir? Eða hætta þeir ein­fald­lega allri þjón­ustu á vegum Kirkj­unnar eftir að eft­ir­launa­aldri er náð?

Með kærri kveðju og von um góð við­brögð,

Svanur“

Ekkert svar hefur borist við þess­ari fyr­ir­spurn.Þann 7. októ­ber sendi Mannlíf tölvu­póst með ítar­legum spurn­ingum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar:

Ég und­ir­rit­aður sendi ykkur þessar spurn­ingar með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012. 

Með áður­nefndri til­vísun í upp­lýs­inga­lög er þess kraf­ist að Þjóð­kirkjan svari eft­ir­far­andi spurn­ingum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að jarð­syngja Sigríði Erlu Ragn­ars­dóttur í Hvera­gerð­is­kirkju 5. sept­em­ber sl.

Mannlíf hefur leitað eftir svörum Þjóð­kirkj­unnar vegna þess að prest­inum var meinað um að starfa í kirkj­unni. Engin svör hafa borist. Pétur Markan bisk­ups­rit­ari hefur fengið fyr­ir­spurn í tölvu­skeyti en hunsað það. Þá virð­ist sem biskup eða kirkju­yf­ir­völd hafi sagt syrgj­endum ósatt í mis­vísandi svörum. 

1. Hver ákvað að séra Gunnar Björns­son mætti ekki sjá um útför frá Hvera­gerð­is­kirkju þann 5. sept­em­ber sl? 

2. Hvers vegna var ákveðið að meina séra Gunnari að sjá um útför­ina?

3. Eru önnur dæmi um að prestum sé meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una séu þeir komnir á eft­ir­laun?

4. Er algengt að prestum með hreina saka­skrá  sé meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una, burtśéð frá aldri þeirra?

5. Hvaða prestum öðrum en séra Gunnari Björns­syni hefur verið meinað að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una frá árinu 2012? Ef svo. Hverjar voru þær ástæður og um hvaða presta ræðir?

6. Er að mati stjórn­enda Þjóð­kirkj­unnar, lög­legt eða verj­andi að meina presti á eft­ir­launum sem er með hreint saka­vott­orð og hefur aldrei verið upp­vís að glæp að þjón­usta fyrir Þjóð­kirkj­una?

7. Gilda siða­reglur Þjóð­kirkj­unnar fyrir presta og alla aðra er koma að starfi Þjóð­kirkj­unnar, þ.m.t biskup, bisk­ups­rit­ara, aðra starfs­menn Bisk­ups­stofu og stjórn Þjóð­kirkj­unnar? Hefur þetta mál komið til Siða­nefndar kirkj­unnar eða sann­leiks­gildi stað­hæf­inga bisk­ups og prests verið til skoð­unnar á vett­vangi Þjóð­kirkj­unnar? 

8.  Í gögnum er Mannlíf hefur undir höndum koma fram mis­vísandi svör til syrgj­enda. Biskup segir séra Ninnu Sif Svav­ars­dóttur ábyrga fyrir ákvörð­un­inni um að neita séra Gunnari Björns­syni að sjá um útför­ina marg­nefndu, en séra Ninna Sif varpar ábyrgð­inni á biskup. Miðað við gögn Mannlífs er ljóst að önnur hvor, Agnes biskup eða séra Ninna Sif eru að segja ósatt. Hvert er hið rétta í mál­inu?

9. Vin­sam­legað afhendið okkur minn­is­blöð eða önnur gögn varð­andi mál þetta. 

10. Hverjum hjá Þjóð­kirkj­unni er falið það starf að sinna upp­lýs­inga­skyldu við fjöl­miðla sem og allan almenn­ing í land­inu? Hvers vegna hefur bisk­ups­rit­ari ekki svarað fyr­ir­spurn Mannlífs frá 8. sept­em­ber? 

Mannlíf áskilur sér rétt til þess að birta spurn­ing­arnar að hluta eða öllu leyti ásamt svörum. 

Ekkert svar hefur borist frá kirkj­unnar þjónum.

Hins vegar hefur Þjóð­kirkjan tjáð sig um áður­nefnt mál séra Gunnars Björns­sonar við Stundina, í grein sem blaða­mað­ur­inn Freyr Rögn­vald­son ritar; virð­ist sem sú grein sé eins konar varn­ar­grein fyrir Þjóð­kirk­una og Agnesi biskup.

Í það minnsta hefur bisk­ups­rit­ari svarað spurn­ingum Stund­ar­innar vegna máls­ins, og í áður­nefndri grein mið­ils­ins segir meðal ann­ars:

„Biskup Íslands hefur haft skýra afstöðu gegn því að sr. Gunnar Björns­son athafni í kirkjum þjóð­kirkj­unnar“ (úr svari Péturs Georgs Markan bisk­ups­rit­ara).

Einnig:

Í skrif­legu svari Péturs Georgs Markans bisk­ups­rit­ara við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar vegna mál­efna Gunnars segir að í sam­þykktum um innri mál­efni þjóð­kirkj­unnar sé skýrt kveðið á um að það sé ákvörðun sókn­ar­presta í hverri kirkju að veita öðrum leyfi til athafna í þeim kirkjum.

Hins vegar hafi séra Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, í sinni bisk­ups­tíð tekið „skýra afstöðu með þolendum og hefur hafnað öllu ofbeldi innan kirkj­unnar og tekið ákveðið og fast á þeim ofbeld­is­málum sem hafa komið upp.

Það er á þeim grund­velli sem biskup Íslands hefur haft skýra afstöðu gegn því að sr. Gunnar Björns­son athafni í kirkjum þjóð­kirkj­unnar.

Biskup Íslands hefur gert sókn­ar­prestum þetta ljóst þegar það hafa komið upp til­felli þar sem óskað hefur verið eftir að sr. Gunnar Björns­son sjái um athafnir. Um þetta hefur verið fullur sam­hugur á milli bisk­ups og sókn­ar­prests hverju sinni, í öllum til­fellum.“

Þá stendur eftir þessi spurn­ing: Hvers vegna svar­aði Agnes biskup eða Pétur Markan bisk­ups­rit­ari ekki fyrstu fyr­ir­spurn Mannlífs né þeirri annarri?

Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir.

Mannlíf átti í sam­skiptum við séra Ninnu Sif Svav­ars­dóttur sem er prestur í Hvera­gerð­is­kirkju, þar sem áður­nefnd kona var jarð­sungin. Séra Ninna Sif varp­aði ábyrgð­inni á máli séra Gunnars Björns­sonar yfir á Agnesi biskup, en Agnes kenndi hins vegar séra Ninnu Sif um.

Séra Ninna Sif sagði í smá­skila­boðum til syrgj­enda að Þjóð­kirkjan vildi ekki að séra Gunnar ann­að­ist athafnir í kirkj­unni. Bannið væri „ákvörðun“ Þjóð­kirkj­unnar. „Ég er ekki að setja skil­yrði heldur Þjóð­kirkjan,“ segir Ninna Sif í smá­skila­boð­unum.

Þegar Mannlíf leit­aði eftir við­brögðum hennar vegna máls­ins var svarið ein­falt:

„Ég tjái mig ekki um það mál við fjöl­miðla.“

Í svar­bréfi til Guð­mundar Jóns Sig­urðs­sonar, sonar hinna látnu, segir Agnes ástæðu banns­ins vænt­an­lega vera fram­komu Gunnars „sem rataði í fjöl­miðla fyrir ein­hverjum árum meðan hann var enn emb­ætt­is­maður þjóð­kirkj­unnar.“

Það sem eftir stendur er að fjöl­skylda kon­unnar sem séra Gunnari Björns­syni var neitað um að jarð­syngja hefur fengið mis­vísandi svör frá þjónum Þjóð­kirkj­unnar, og að Mannlíf hefur ein­fald­lega ekki fengið nein svör sem gætu varpað ljósi á málið.

Þessu til við­bótar er Þjóð­kirkjan í vanda vegna stjórn­leysis í fjár­málum. Biskup fer sínu fram en gripið hefur verið fram fyrir hendur hans til að stöðva óráðs­síu.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið þangað til svör frá æðstu stjórn­endum Þjóð­kirkj­unnar hafa borist miðl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins