„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dominos sendi hótandi lögfræðinga á Fiskikónginn: „Ég varð alveg brjálaður!“

Dominos sendi hótandi lögfræðinga á Fiskikónginn: „Ég varð alveg brjálaður!“
Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ólgu­sjó.

Kristján Berg Ásgeirs­son, sem rekur Fiski­kóng­inn, vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar þrír jakka­fata­klæddir lög­menn Dominos á Íslandi mættu til hans í fisk­búð­ina með hót­anir. Þetta var þegar Kristján var að koma sér fyrir með fisk­búð sína á Höfða­bakka þar sem upp komu fljót­lega árekstrar milli hans og skyndi­bita­keðj­unnar.

Fiski­kóng­ur­inn ræðir opnun fisk­búðar sinnar á höfða­bakka árið 1994 við Morg­un­blaðið, sem hann síðar seldi en keypti svo aftur árið 2012, þá af Skúla Sig­fús­syni, kenndur við Subway á Íslandi. Hann eign­að­ist hús­næðið og stríðið við Dominos hófst.

„Ég lenti í því að við­skipta­vinir mínir á Höfða­bakka fengu ekki bíla­stæði þegar nágranni okkar Domino‘s, sem vará­efri hæð­inni, aug­lýsti mega­viku. Fyrir vikið minnk­aði salan í fisk­inum og ég varð alveg brjál­aður. Svo fór ég að hugsa málið. Það var alltaf brjálað að gera hjá Domino‘s í mega­viku og ég fór að hugsa af hverju ég gerði ekki eitt­hvað svipað. Þannig að ég ákvað að sjá hvernig það myndi ganga að hafa mega-fiski­viku. Þannig að ég bjó til aug­lýs­ingar og keypti heil­síður í Frétta­blað­inu og Mogganum og síðan á mánu­dags­morgni var bilað að gera. Það var stærsti dagur fisk­búð­ar­innar frá upp­hafi,“ segir Kristján Fiski­kóngur og heldur áfram:

„Nema hvað að korter yfir sex koma þrír jakka­fata­klæddir gaurar inn í fisk­búð til mín. Ég sagði: „Bless­aðir strákar. Það er allt að verða búið en hvað get ég gert fyrir ykkur?“ Menn­irnir sögð­ust vera lög­fræð­ingar frá Domino‘s og spurðu hvort ég væri að aug­lýsa mega-fiski­viku. Ég sagði svo vera og þá sögðu þeir Domino‘s eiga orðið mega og að ég yrði því að hætta að aug­lýsa mega. Ég gerði þeim ljóst hvaða afleið­ingar það hefði fyrir mig en ég hafði planað aug­lýs­ingar í útvarpi út vik­una. Náði fram smá hefndum Ég var aðeins pínu­lít­ill fiski­karl í 40 fer­metra hús­næði uppi á Höfða að selja fisk og þegar lög­fræð­ing­arnir frá Domino‘s stóðu fyrir framan mig hugs­aði ég með mér: „Hver fjár­inn“ og úr varð að ég hringdi í félaga minn og spurði hvort hann gæti ekki bara klippt aug­lýs­ing­una til og sett píp­hljóð yfir orðið mega. Það væri ódýr­ara og ég þyrfti ekki að mæta í stúdíó og tala aftur inn á aug­lýs­ingar. Þeir gerðu það og ég hef ekki heyrt í Domino‘s síðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins