„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rússnesku hjónin Anton og Viktoria verða send úr landi á miðvikudaginn: „Þetta er ekki réttlæti“

Rússnesku hjónin Anton og Viktoria verða send úr landi á miðvikudaginn: „Þetta er ekki réttlæti“

Útlend­inga­stofnun hefur nú neitað rúss­nesku hjón­unum Anton og Viktoriu Garbar um hæli hér á landi.

Viktoria og Anton

Mannlíf gerði frétt fyrir skemmstu þar sem rætt var við Anton en hann var þá að kvarta yfir hávaða á Hótel Sögu þar sem hann dvaldi ásamt eig­in­konu sinni og fleirum hæl­is­leit­endum. Bæði byrj­uðu fram­kvæmdir á hverjum degi fyrir klukkan átta á morgn­ana og bruna­vörnin var biluð og fór í gang reglu­lega með til­heyr­andi svefn­trufl­unum.

Sjá einnig: Hæl­is­leit­endur kvarta undan stöð­ugum hávaða: „Mér líður í raun hræði­lega“

Hjónin komu hingað til lands fyrir sjö mán­uðum eftir að hafa flúið heima­landið Rússland en þau voru bæði virk í mót­mælum gegn inn­rás Pútíns inn í Úkraínu og var þeim því ekki stætt á að dvelja lengur þar í landi. Í morgun hringdi lög­reglu­maður í Anton og tjáði honum að þeim hafi verið neitað um hæli og að þau yrðu flutt til Mílanó á Ítalíu klukkan fimm á mið­viku­dags­morg­unn. Þess má geta að hjónin ráku ferða­þjón­ustu í Rúss­landi sem hefur í fjögur ár átt í sam­skiptum við Ísland en einmitt þess vegna sóttu þau um hæli hér­lendis.

Aðspurður hvað tæki við þeim í Mílanó svar­aði Anton: „Ég veit það ekki … ég veit bara að aðstæð­urnar á Ítalíu eru ekki góðar. Þar er engin vinna fyrir okkur, hús­næði, hjálp eða annað.“ Anton sendi línu á mann­rétt­inda­sam­tök í Mílanó-borg varð­andi hýs­ingu en svörin voru á þá leið að þau gætu litla hjálp fengið á meðan verið væri að fara yfir mál þeirra á Ítalíu en að mögu­lega gætu þau fengið inni í sér­stökum flótta­manna­búðum eða mið­stöð flótta­manna.

Í síð­ustu viku gerði Anton heið­ar­lega til­raun til að ná tali af Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra og höfða til mennsku hans, þegar hann tók eftir honum fara inn í bíl við Alþing­is­húsið. Jón hafði hins vegar engan áhuga á sam­tali og keyrði í burtu. Anton var einnig að reyna að rétt honum skjöl með upp­lýs­ingum um þau hjónin en þar er farið ræki­lega yfir ástæðu þess sem þau sótt um hæli á Íslandi. Það sem Anton heyr­ist segja í mynd­band­inu við Jón er eft­ir­far­andi: „Er of erfitt að opna glugga og taka við þessum upp­lýs­ingum um okkur? Þetta er ekki rétt­læti.“

Hægt er að sjá sam­tal­stil­raun­ina hér fyrir neðan:

Þau Anton og Viktoria hafa ekki gefið upp alla von um að fá að vera hér en þau stofn­uðu und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að þau fái hér dval­ar­leyfi. Hægt er að skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins