„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leyndarmálið upplýst: Körfuboltakappar eignast Mathús Garðabæjar

Leyndarmálið upplýst: Körfuboltakappar eignast Mathús Garðabæjar
Jón Arnór og Fannar eru á meðal nýrra eig­enda Mat­húss­ins.

Mathús Garða­bæjar er komið í hendur nýrra eig­enda. Nokkur leynd hefur ríkt um kaupin und­an­farnar vikur. Á sam­fé­lags­miðli stað­ar­ins hafa margir for­vitn­ast um hina nýju eig­endur og hvort útgefin gjafa­kort séu enn í gildi. Fátt hefur verið um svör.

Nýju eigendurnir

Mannlíf opinberar nú eigendur og rekstraraðila Mathúss Garðabæjar. Þekktir KR-ingar meðal nýrra eigenda.  Fyrrverandi landsliðsmenn í körfuknattleik, þeir Jón Arnór Stefánsson og Fannar Ólafsson eru meðal eigenda samkvæmt heimildum Mannlífs og halda saman á fimmtungshlut. Þeir hafa báðir fagnað fjölmörgum Íslandsmeistaratitlum með KR. Jón Arnór að margra mati besti körfuknattleiksmaður Íslands. Eiginkona Jóns Arnórs mun vera uppalinn Garðbæingur. Meðal annarra eigenda er Andri Gunnarsson sem nýlega keypti einbýlishús Róberts Wessman á Arnarnesinu líkt og Mannlíf greindi frá.

Einar sér um rekstur

Rekstur stað­ar­ins verður í höndum Einars Sturlu Möinichen, fyrrum eig­anda Hress­ing­ar­skál­ans (Hressó) og eig­in­konu hans. Aðrir eig­endur, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, eru þeir Leifur Steinn Árnason, Kristján Grét­ars­son og Þórður Kol­beins­son stjórn­ar­maður í KR og einn af eig­endum Unbroken, sem vinnur vin­sælt fæðu­bót­ar­efni fyrir íþrótta­menn úr norskum eld­is­laxi.

Undirheimamenn

Mathús Garða­bæjar hefur verið einn öfl­ug­asti stuðn­ings­að­ili körfuknatt­leiks­deildar Stjörn­unnar und­an­farin ár og hefur notið vel­vildar bæj­ar­búa. Rekstur Mat­húss­ins mun hafa verið í þungur und­an­farin miss­eri eftir að þjóð­þekktur athafna­maður með tengsl við und­ir­heima hóf að venja komur sínar á stað­inn. Heim­ildir herma að gestum hafi fækkað jafnt og þétt á þessu ári. Fyrr á árinu mun hafa komið til handa­lög­mála milli athafna­manns­ins og ann­ars þekkts und­ir­heima­manns er búsettur er í Garða­bænum.

Sögu­sagnir hafa verið á kreiki um að við­kom­andi aðili, sem hefur und­an­farið byggt hús á Arn­ar­nes­inu, hafi jafn­vel haft eigna­tengsl við stað­inn eða vina­sam­band við fyrrum eig­anda, Stefán Magn­ús­son. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eiga þær sögur ekki við rök að styðj­ast. Stefán er áfram eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Sjáland Matur & Veisla í Garða­bænum. Á sam­fé­lags­miðli stað­ar­ins hafa verið boð­aðar breyt­ingar á mat­seð­ili og virð­ast eig­enda­skiptin og breyttar áherslur leggj­ast vel í bæj­ar­búa ef marka má kommenta­kerfi síð­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins