„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frægir hnakkrífast um móðurmálið: „Þetta eru fárveikar forsendur!“

Frægir hnakkrífast um móðurmálið: „Þetta eru fárveikar forsendur!“

Frægir ríf­ast nú á sam­fé­lags­miðlum yfir kynja­notkun í íslenska tungu­mál­inu og sitt sýn­ist hverjum þegar kemur að breyt­ingum á tungu­mál­inu, sem sífellt hávær­ari krafa er um í sam­fé­lag­inu. Meðal þeirra sem segja skoð­una sína á mál­inu eru Egill Helgason sjón­varps­stjarna, Karen Kjart­ans­dóttir fjöl­miðla­kona, Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði, og Jakob Bjarnar Grét­ar­son stjörnu­blaða­maður.

Ástæða rifr­ild­is­ins eru eft­ir­far­andi full­yrð­ing Hösk­uldar Þrá­ins­sonar, pró­fessor emeritus í íslensku nútíma­máli:

Það er ekki móð­ur­mál neins að segja öll vel­komin.“

Hösk­uldur segir jafn­framt að það sé ekki ein­falt verk að gera íslensk­una kyn­hlut­lausa og að vert sé að velta því fyrir sér hvort eitt­hvert gagn sé af því að venja sig á að segja „öll vel­komin“ ef karl­kynið er út um allt í tungu­mál­inu í almennri hlut­lausri merk­ingu.

„Þetta er ekki eins ein­falt og stundum er látið í veðri vaka, þetta er alls staðar í tungu­mál­inu, þessi notkun karl­kyns­ins,“ segir Hösk­uldur.

Karen er ekki hrifin af full­yrð­ingu Hösk­uldar og fann máli sínu til stuðn­ins gamlar blaða­greinar og aug­lýs­ingar þar sem „öll vel­komin“ kemur fyrir. „Pró­fessor í mál­fræði heldur því fram að það sé ekki móð­ur­mál neins að segja „öll vel­komin“. Forfeður okkar og for­mæður virð­ast þó ekki hafa átt í neinum vand­ræðum með það orða­lag. Alls ekki. Þessi íhalds­semi er ótta­leg nýj­ung,“ segir Karen.

Egill telur málið síður en svo ein­falt. „Það er svosem ein­falt að segja öll vel­komin. En að fara djúpt í málið með þessa breyt­ingu – það þarf mikla mál­verk­fræði til að það tak­ist. En kannski verður það hægt á ein­hverjum kyn­slóðum. Ekki einu sinni áköf­ustu tals­menn­irnir (sic!) ráða við þetta. En svo má auð­vitað segja að þetta komi gömlum körlum eins og mér ekki við – verðum hvort sem er dauðir,“ segir Egill.

Jakob Bjarnar virð­ist ekki mjög hrif­inn af þeirri hug­mynd að breyta mál­hefð­inni þannig að henti öllum kynjum. „Hösk­uldur vill vara við þeirri áráttu að lesa for­dóma í kyn orða. Mér finnst merki­legt hversu auð­velt þessum hópi aktí­vista, sem eru auð­vitað bara með­al­skussar í mál­fræði eins og gengur, veit­ist að hrifsa til sín kenni­valdið. Ein­fald­lega á alt­ari ein­hverra meintra for­dóma. Flestir virð­ast fá hland fyrir fugls­hjartað við það eitt að verða hugs­an­lega vændir um slíkt,“ segir Jakob.

Atli Steinn Guð­munds­son tekur í svip­aðan streng. „Ég skil ekki hvað þetta vefst fyrir fólki, ómark­aða kynið í íslensku, þar sem rætt er um óskil­greindan hóp beggja kynna, er karl­kyn. Það felur ekki í sér neitt kynja­mis­rétti, þetta er bara mál­fræði­leg regla, mætti eins vera kven­kyn. Hljómar hrylli­lega hall­æris­lega þegar stjórn­mála­menn (fyr­ir­gefðu, stjórn­mála­fólk) eru að slá um sig í ann­ars illa staf­settum blaða­greinum með þessu öll-rugli, þetta er ein­fald­lega röng mál­fræði,“ segir Atli ákveð­inn.

Þá tekur Egill aftur til máls og ítrekar þá skoðun sína að málið sé ekki ein­falt. „Það er nátt­úr­lega ekk­ert mál að segja „öll vel­komin“ en þegar við förum dýpra í tungu­málið er meiri vandi á höndum. Ég er ekki að and­mæla þessu – bara að benda á að þetta er ekki hægt – ja, nema þá kannski á mjög löngum tíma. En þá gæti líka verið að að áhug­inn sé horf­inn,“ bendir Egill á.

Eiríkur pró­fessor telur að ekki verði hægt að forð­ast þessa breyt­ingu á tungu­mál­inu. „En ég held að flestum sé ljóst að þetta er ekki ein­falt og ég held að engum detti í hug að þetta sé breyt­ing sem hægt sé eða skyn­sam­legt að keyra í gegn með ein­hverri stýr­ingu að ofan. Það er hins vegar ljóst að þetta er að breyt­ast og það býsna hratt. Vissu­lega getur það valdið alls konar ósam­ræmi – en það er nú ekki eins og tungu­málið sé full­kom­lega reglu­legt kerfi fyrir,“ segir Eiríkur.

Og Jakob á síð­asta orðið. „Það hljóta ein­hvers konar alhæf­ingar að búa að baki því að upp­lifun fólks sé með þeim hætti, vegna ein­hverra meintra for­dóma, að rétt sé að umturna heilu mál­kerfi og í raun rústa því. Og það sé rétt. Við erum komin býsna langt með að ráð­ast á sak­laus orð og útskúfa þeim úr mál­inu á for­sendum upp­lif­unar ein­hverra sem byggja á ein­hverjum ætl­uðum for­dómum. Þetta eru fár­veikar for­sendur,“ segir Jakob og bætir við:

„Þessar alhæf­ingar um heilu hópana og upp­lifun þeirra hljóta eðli máls sam­kvæmt að vera vafa­samar. Og upp­lifun hóps­ins, þar er engu hægt að slá föstu. Tökum idjó­tískt dæmi. 20 manna hópur Hafn­firð­inga stígur fram og heldur því fram að Hafn­ar­fjarð­ar­brand­arar séu niðr­andi, það sé þeirra upp­lifun og hóp­ur­inn fer fram á það, í nafni sinnar upp­lif­unar að þetta sé tekið út af sakra­ment­inu. Að Hafn­ar­fjarð­ar­brand­arar séu sagðir. Er þessi hópur þá, í nafni þess að vera ein­hvers konar þolendur, þar með komnir með kenni­valdið? Jafnvel þó á dag­inn komi að Hafn­firð­ingum upp til hópa þyki þessir brand­arar hreint ekk­ert sær­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Íslenska

Bragi Valdimar lætur auglýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nærhöldin“
Innlent

Bragi Valdimar lætur aug­lýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nær­höldin“

Bragi Valdimar Skúlason lætur aug­lýsendur heyra það í nýrri Facebook-færslu. Baggalút­ur­inn, sjón­varps­mað­ur­inn og íslensku­sjéníið Bragi Valdimar Skúlason lætur aldeilis gamm­inn geisa í nýrri Facebook færslu þar sem hann agn­ú­ast út í ensku­slettur í aug­lýs­ingum fyrir kom­andi bik­svartan föstu­dag og þakka­gjörð­ar­há­tíð­ina. Fyrr í mán­uð­inum hafði hann einnig gagn­rýnt „sing­les day“ mark­aðs­setn­ing­una harð­lega. Sjá einnig: Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „sing­les day“...
Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „singles day“ þéttingsfast upp í greiðslugáttirnar á ykkur“
Menning

Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „sing­les day“ þétt­ings­fast upp í greiðslu­gátt­irnar á ykkur“

Bragi Valdimar Skúlason lætur kaupa­héða heyra það í til­efni „sing­les day“ dags­ins sem er hald­inn „hátíð­legur“ í dag. Í dag er dagur ein­hleypra, 11.11, en þá nota versl­un­ar­menn tæki­færið og bjóða upp á afslætti sem beint er að ein­hleypu fólki. Hefur dag­ur­inn verið aug­lýstur í íslenskum fjöl­miðlum sem „sing­les day“, eitt­hvað sem fer mjög í taug­arnar á Braga Valdi­mari Skúla­syni,...
Egill hefur ekki áhyggjur af íslenskunni: „En auðvitað stendur tungumálið ekki í stað“
Menning

Egill hefur ekki áhyggjur af íslensk­unni: „En auð­vitað stendur tungu­málið ekki í stað“

Egill Helgason hefur engar áhyggjur af íslensk­unni eins og svo margir um þessar mundir. Mikið hefur verið talað um hnignun íslensk­unnar und­an­farið sem og það sem sumir hafa kallað nýlensku, eða kyn­hlut­laust mál sem RÚV hefur nú tekið upp og vakið fyrir það bæði hrós og last. „Það er ágætt að láta sig íslensk­una varða en ég held að mikið...
Eva Hauks: „Af hverju nota svo margir orð eins og meðferðarúrræði þegar átt er við meðferð?“
Menning

Eva Hauks: „Af hverju nota svo margir orð eins og með­ferð­ar­úr­ræði þegar átt er við með­ferð?“

Lög­mað­ur­inn Eva Hauks­dóttir er ekki hrifin af stofn­ana­máli. Eva Hauks­dóttir lög­maður skrif­aði áhuga­verða færslu á Facebook í morgun þar sem hún veltir fyrir sér hvers vegna svo margir flæki tungu­málið með stofn­ana­máli. Nefnir hún nokkur dæmi: „Af hverju nota svo margir orð eins og með­ferð­ar­úr­ræði þegar átt er við með­ferð, aðferða­fræði þegar átt er við aðferð, afgreiðsu­ferli þegar átt er...
Segir íslenska tungu hverfa úr munni manna á næstu 100 árum: „Við þurfum þó engar áhyggjur að hafa“
Menning

Segir íslenska tungu hverfa úr munni manna á næstu 100 árum: „Við þurfum þó engar áhyggjur að hafa“

Illugi Jök­uls­son hefur ekki áhyggjur af því að íslensk tunga deyji út. Gervi­greindin bjargar mál­unum. Ja, eða mál­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði spaugi­lega Facebook-færslu þar sem hann segir íslenskan verði ekki lengur töluð eftir 100 til 200 ár. Það er að segja af mönnum en hann segir að tungu­málið deyji þó ekki þar með út því hægt verði...
Hlegið að umbúðamerkingu Krónunnar: „Eru rifurnar stórar eða kannski bara saumspretta?“
Innlent#Íslenska

Hlegið að umbúða­merk­ingu Krón­unnar: „Eru rif­urnar stórar eða kannski bara saum­spretta?“

Það eru margir mjög skemmti­legir hópar á Facebook og einn af þeim er hóp­ur­inn Skemmti­leg íslensk orð. Hópurinn er einnig mjög fróð­legur. Á dög­unum birti Berglind, með­limur hóps­ins mynd af umbúðum af kjöti, versl­un­inni Krónunni sem vakti tals­verða kátínu í hópnum. Á umbúð­irnar var ritað: Lamba­file með rifum, en rétt væri að skrifa með rifjum. Lamba­file með rifum umbúð­irnar frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins