„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Varð Kleini vitni að morði í Malaga-fangelsinu? – Spænskir miðlar þöglir sem gröfin

Varð Kleini vitni að morði í Malaga-fangelsinu? – Spænskir miðlar þöglir sem gröfin

Á þeim átta mán­uðum sem Kristján Einar Sig­ur­björns­son, áhrifa­valdur og athafna­maður, sat í hér­aðs­fang­elsi í Malaga á Spáni finn­ast engar fréttir í spænskum miðlum af morði í fang­els­inu. Þrátt fyrir það seg­ist hann hafa orðið vitni að morði þar.

Kristján Einar, sem oft­ast er kall­aður Kleini, full­yrðir að hann hafi orðið vitni að morði inni á kló­setti í fang­els­inu, þar sem engar mynda­vélar voru. Hann seg­ist vera með stór ör á sál­inni eft­ir fang­elsis­vist­ina. Svona lýsir Kleini morð­inu:

Sjá einnig: Kristján Einar gerir upp fang­els­is­vist­ina á Spáni: „Mér var réttur hnífur og sagt að stinga mann“

„Svo var morðið sem ég var vitni að. Þeir voru eitt­hvað að ríf­ast. Svo bara tek­ur hann upp heima­til­bú­inn hníf, sting­ur hann rétt fyr­ir neðan nafl­ann og rist­ir hann all­an upp. Og það bara hryn­ur út.“

Kristján full­yrðir jafn­framt í við­tali við Sölva Tryggva­son að yfir­heyrslur yfir föngum hafi farið fram eftir morðið. En í fang­els­inu kjafti menn ekki frá. „Þarna inni var ekki tekið vel í það ef menn klög­uðu og sögðu frá. Það var einn nítj­án ára pilt­ur, ég end­ur­tek nítj­án ára. Ég veit ekki yfir hverju hann klag­aði, það var eitt­hvað tengt hans klíku. Þá var gert dæmi úr hon­um. Hann var rif­inn úr öllu, all­ir látn­ir koma og horfa þegar hon­um var nauðgað. Þetta ger­ist við þig ef þú klag­ar,“ seg­ir Kristján.

Eins og áður sagði sat Kleini í átta mán­uði í spænska fang­els­inu í Malaga. Þar sat hann síðan hann var hand­tek­inn í mars síð­ast­liðnum, fyrir þrjár alvar­legar lík­ams­árásir þar í landi.

Sjá einnig: Þetta er fang­elsið sem Kristján Einar er vistaður í á Malaga

Mannlíf setti sig í sam­band við fang­elsið þar sem Kristján Einar var vistaður en þar fékkst aðeins stað­fest að hann væri þar en engar frek­ari upp­lýs­ingar um líðan eða stöðu mála. Í sam­tali við Mannlíf var ljóst að nán­asta fjöl­skylda hans vildi ekki að málið fari hátt og þar var ákveðið að ræða málið ekki opin­ber­lega fyrir en það væri afstaðið.

Það er ljóst að fang­els­is­dvölin hefur ekki verið Kleina auð­veld en skyndi­leit á leit­ar­vélum alnets­ins skilar aftur á móti engum nið­ur­stöðum um morð í hér­aðs­fang­elsum Malaga á því tíma­bili sem áhrifa­vald­ur­inn var þar. Síðasta and­látið með sak­næmum hætti sem spænskir miðlar fjalla um var skömmu fyrir jólin í fyrra, nánar til­tekið að morgni dags 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar 51 árs gam­all fangi fannst lát­inn í klefa sínum.

Sjá einnig: Kristján Einar hand­tek­inn fyrir þrjár alvar­legar lík­ams­árásir – Situr í fang­elsi í Malaga

Hins vegar er ljóst á umfjöllun spænskra miðla um umrætt fang­elsi að þar hafa morð á föngum reglu­lega átt sér stað. Árið 2019 voru met slegin þegar á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins voru sjö fangar myrtir innan veggja þess.

Hins vegar má ekki finna í leit­ar­vélum umfjöllun þar­lendra fjöl­miðla um morð í Malaga-fang­elsi á þeim mán­uðum sem Kristján Einar var þar inni. Fyrir því geta auð­vitað verið ýmsar ástæður en síð­asta fréttin er frá því fyrir jólin í fyrra. Síðasta ofbeld­is­frétt úr fang­els­inu var þegar fangi kýldi starfs­mann í and­litið, í júlí­mán­uði þetta sum­arið.

Kristján er 25 ára gam­all og var um tíma trú­l­ofaður Svölu Björg­vins­dóttur söng­konu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins